Brautin


Brautin - 28.06.1929, Side 2

Brautin - 28.06.1929, Side 2
2 _ BRAUTIN CSOOOOOOOO BRAUTIN kemur út & föstudögum. — MAnaCargjald fyrir fasta á- skrifendur er 60 aura; einstðk blöð kosta 15 aura. AFGREIÐSLA blaCsins er á Laugaveg 20 A. — Sími 571. Opin kl. 5—7 daglega. lam-strMir seljast nú meö miklum afslætti. Torsli £9111 Jscobsen ta Siðgöfgisstefnan. KvæÖi sent »Brautinni« í tilefni af ársafmælinu. Flyttu mál, sem var gleymt, fyndu gull, sem er geymt, undir gerfi. pess fátœka og smáa. Ef að grœða vilt mein gildir einingin ein. Sjá í ilmblómi kœrleik þess háa. Ljáðu guðdómnum hönd, þar, sem líf byggir lönd til að líkna pví vermda og unna, veittu elsku þess sál, gef pví gleðinnar mál, líkt og geisla hin heilaga sunna. M. G. nllrar andlegrar rotnunar og xpillingar með þjóðinni. Þetta er hin nýja stefna, siðgöfgisstefnan. Það er erfitt að lýsa henni í fáum orðum svo almenningur skilji, en í líkingum mætti orða það svo, að hún á að sameina alt það guðdóm- lega í fari þjóðarinnar og gera það að ráðandi virki- leika. Þó hér sé átt við íslensku þjóðina fyrst og fremst, því vér getum alls ekki náð til annara þjóða vegna smæðar vorrar og vanmáttar, þá á auðvitað stefn- an erindi jafnt til allra þjóða, því öllum þjóðum er siðgöfgis- barátta nauðsynleg. En hitt er víst, að hjá oss er baráttan bein þjóðarnauðsyn. Vér erum svo litlir, mótstöðuaflið svo veikl, erlendar siðleysisstefnur svo ásæknar, að oss veitir ekki af því að beina sérstakega kröft- uin vorum að því að verða sið- ferðislega sjálfstæð þjóð. — Siðleysi þjóðarinnar hef- ir einu sinni orðið henni að falli. Það má ekki koma fyrir aftur. Þeir sem halda að alt sé kom- ið undir efnalegu sjálfstæði þjóðarinnar reikna ekki alveg rétt. Það var ekki af efna- skorti, að fsland misti frelsi sitt og varð að ganga erlendum konungi á vald. Það var ekki að efna- skorti, sem hið mikla og volduga rómverska rfki leið undir lok. — Það var af siðferðisskorti þjóð- anna. Og þó eru enn til menn, sem halda að alt sé undir því kom- ið að vér verðum auðug þjóð, að helst allir verði ríkir. Hví- lik dæmalaus fásinna. Það gæti svo farið að það væri ef til vill hin mesta bölvun fyrir þjóðina að verða rík, eða svo hefir það að minsta kosti reynst sumum öðrum þjóðum. En ef svo er, því eigum vér þá að leggja alla stjórnmálakrafta vora inn á það eitt, að gera þjóðina ríka. Láta hana þræla sem mest. Afla sem mest og sóa sem mest. Hvað erum vér betri eða meiri menn á eftir. Vér sjáum það ekki. En hitt sjáum vér, að freistingarnar til sællífis og nautna, tildurs og prjáls verða ennþá ákafari og auðveldara að láta eftir þeim. Og þá er opnað upp á gátt fyrir siðleys- isstefnunum og öllu því illa og skaðlega, sem þær kunna að hafa í för íneð sér. Þetta er það sem kon- urnar íslensku hafa séð og þó þær skilji nauðsyn þess að efnaleg afkoma þjóðar- innar sé sæmileg, þá telja þær hitt jafnvel enn meira um vert að siðferðiskraft- ur þjóðarinnar sé sem sterkastur. Þessvegna gera þær siðgöfg- isstefnuna að aðaltakmarki í stjórnmálalífi þjóðarinnar og vilja beina öllu því mesta, sem vér eigum af hugsun, viti og dugnaði að baráttunni fyrir siðgöfgis- og mannúðarmálum þjóðarinnar. Fgrir þetta má hiklaust telja ársafmæli Brautarinnar með merkustu viðburðum í stjórn- málasögu þjóðarinnar. Þeir íslendingar, sem síðar fæðast og líta yfir þær stefn- ur, sem nú eru á dagskrá þjóð- arinnar, munu eftir nákvæma athugun komast að raun um það, að sú stefna, senr Braut- in hefir fyrst allra blaða þor- að að hefja og fylgja fram, eftir því, sem hún hefir getað, er eina rétta stefnan, sem enn þekkist og sú stefna, sem þjóð- inn mun inest blessun af hljót- ast, ef hún fæst til að fylgja henni með ráðnum hug og svikalaust. íslenskar konur munu hljóta sæmd fyrir að hafa fyrstar allra flutt hana og tekið hana á stefnuskrá sína í sínu fyrsta stjórnmálablaði, það verður alt af talið mikils virði, því það er mikið til í því sem máltækið segir: hálfnað er verk, þá hafið er. — Ársafmæli Brautarinnar er fæðingarár fyrstu fegurstu og frumlegustu stjórnmálastefnu, sem vér höfum enn eignast. Slík ár verða ætíð talin gæfuár í sögu íslensku þjóðarinnar. Ekkert stjórnmálablað mun hafa hafið göngu sina með jafn- mörgum íyrirbænuin og góðum óskum íslenskra kvenna eins og Brautin. Konurnar vissu að þær voru að leggja út á nýjar og óþekt- ar leiðir. Þær voru fátækar og lítils megnugar. Margar þeirra áttu ekki ann- að að leggja til blaðsins en sín • ar heitustu og innilegustu fyrir- bænir um að þetla starf kvenn- anna mætti verða þjóðinni til góðs. Það eru sumir, sem hafa enga trú á fyrirbænum og á líta þær gagnslausar með öllu, jafnvel hlægilegar. Vér vitum ekki hvað rétt er í þessu, en hitt teljum vér alls ekki ósenni- legt, að góður hugur manna geti haft einhver áhrif, líkt og hönd móðurinnar getur haft fróandi áhrif á barnið hennar, þegar það kvelst af þungri hita- sótl og vanlíðanin ætlar að verða því ofurmegn. Manni finst þetta, að strjúka um enni barns- ins sé gagnslítil hreyfing og þó er eins og barnið finni sérstaka fróun þegar mamma þess gerir þetta með allri þeirri varúð og o o o o -'•'*SHBUnN-CR033'(5C^ ^Qin Med&i Húsmæður! Kaupið »Gold Medal* § hveiti til bökunar. — ö Fæst alstaðar. | 3BSBS00B0ES000Se000B0B0 DSÖOTfltaroroOTísöOTSaGtSSS sooooacKJOoatsoootsooaaoooo Blómkál, Spisskál, Tomatar, Agurkur, Ðananar, Epli, Appelsínur, Perur, Persille, Rabarbari. § | Verslnnin KJÖT og FISKUR o — Símar 828 og 1764. —■ 00000000000000000 o ooooooS blíðu sem hún á til. Getui ekki hugsast, að það sé eitthvað sál rænt i þessu? Vissa er það eng- in, en hugsast gæti það. Svo er og um hinar góðu fyr- irbænir til Brautarinnar. Vér vitum það ekki, en ó- sennilegt er það ekki, að þær hafi aukið þeiin konum styrk og kraft, sem fyrir verkinu stóðu og trú á það, að þær væru að vinna mikilsvert verk, og yrðu að vinna það af samvisku- semi. Og vist er um það, að þær hafa allar barist eins og hetj - ur, án nokkurs endurgjalds. Og árangur af starfi þeirra, er meiri, en þær bjuggust við í fyrstu. Þær hafa haldið baráttunni áfram sleitulaust i heilt ár, þrátt l'yrir ýmislegt mótlæti og þrengstu fjárhagsástæður. Má hiklitið segja, að aldrei hafi íslenskar konur stigið öflugra spor til viðreisnar þjóðinni og framfaramálum hennar, en með útgáfu sins fyrsta stjórnmálablaðs og stuðningi þess við öl) helstu stórmál, sem þjóðinni má til farsældar verða. Ungfrúin: Þér gætuð gerl mér mikinn greiða, herra liðs- foringi. Liðsforinginn: Með ánæg ju — og það er. Ungfrúin: Gifst mér, svo að vinstúlkur minar verði verulega reiðar.

x

Brautin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Brautin
https://timarit.is/publication/629

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.