Eyjablaðið - 03.10.1926, Síða 3
KYJABLAÐIÐ
Símjregnir
F. B. Trá 24. sept. til 1. okt.
Bifreiðarakslur
Beir sem þuvfa á hentugum og ódýrum bifi eiða-
— flutningi að halda, ættu að snúa sjer tii —
cTáís Crlenóssonar
bílstjóra — Ráðagerði
Vidskifiavinir
minir og aðrir sem þurfa á ódýrum og hentugum bifreiðaflutningi að
halda, snúi sjer til
Síísla ^innsonar
Sólbakka eða Brekku
wb—■————BWB—mrr"7nwffi,igBmpMjp—
Matur, Kaffi, súkkulaði öl
og ýrnsar aðrar veitingar, eru altaf seldar ódýrt i
Kaffihúsi Vestmannaeyja
Erlendar:
ÓFRIÐARBLIKA!
Samkvæmt nýustu símfregnum
frá Berlín og París er talið líklegt
að samningaitiraunir Bríands og
Stresemans beri til hernaðarbanda-
lags milli Frakka og Bjóðverja.
Mussolini og Chamberlain munu
hittast bráðlega og ræða vináttu
samning milli Italíu ,og Bretlands.
Rússar gera tilrauir til hlutleys-
issamninga við Eystrasaltslöndin |
og Finnland.
Frá London er símað að Ford j
ákveði 5 vinnudaga í viku í :
verksmiðjum sínum — og j
álýtur það arðvænlegast er til
lengdar lætur.
Innlendar:
Akureyri:
Sildveiðin í sumar er orðin
106745 tunnur saltsíld og 35504
kryddsíld.
Reykjavik
Togararnir Belgaum og Júpiter
hafa selt nfla sinn í Bretlandi. Sá
fyrri fyrir 1617, en hin síðari
íyrir 1826 sterlingspund.
Skráning atvinnulausra byrjuð
og þegar liðlega 400 menn skrá'
settir. Bráðapestar . hefir ■ orðið
töluvert vart sunnaniands.
Hjermeð
er skorað á alla þá, sem ekki
hafa ennþá sett sótramma í hús
sín, að gjora það nú þegar. sam.
kvæmt fy.úrmælum vátrygginga:
fjelagsins. - - Rammarnir fást hjá
undirrituðum.
t’orbjörn Arnbjörnsson
sótari
Kaupfj. Drífandi
heldur almennan fjelagsfund í
Borg, miðvikudaginn 6 október
kl. 7 e.m.
Alþýðu f lokksf undur
verður lialdinn 4. október i Borg ld
8 stmidvíslega.
Stjórnendum Yorkamannafelags Vcst-
raannaeyja boðið á fundinn'
Umræðuefni:
Kaupgjaldsmálið, Afvinauleysið
Ofsóknir kaupmannanna
Verkamannafjelagið „Drífandí",
Verkakvennafjelagið „Hvöt“
I. 0. G. T.
St. Sunna nr. 204 fundur i dag
kl. 2 e.h. Æ. T.
T>1 sölu uug snembær kýr. Nanari
upplýsingar gefur
Eyjólfur Þorleifaeon
Höfðabrekku
Vinnulausir Frh. af 1. síðu
eftír að byrjað yrði á hinum nýja
vegi sem á að leggja í kiingum
Helgafell, til þess að greiða fyrir
ræktun landsins. Jörðin bíður eftir
ötulum höndum og margir hafa
þegar fengið loforð fyrir landi til
ræktunar, en fyr en vegurinn er
lagður, eða vissa fengin fyrir þvi
að hann verði lagður er engin
leið að byrja á jarðabótum suður
í heiðinni.
Ríkisstjórn kaupmannanna íhald-
stjórnin, er aðiljinn sem ræður
því hvort verkið verður hafið í
haust. Tvívegis hefir hún sent
verkfræðinga til þess að mæla og
kanna vegarstæðið. Lengi var látið
i veðri vaka að verkið yrði byrjað
í september. Fyrirsjáanlegt ei að
svo verður ekki. Nú kvað stjórnin
eiga von um að byrjað verði í
október. Má gera ráð fyrir að
tiðarfar verði þá mjög farið ab
versna. Agætum tíina hefir verið
slept og verkamenn bíða með tvær
liendur tómar til þess að vinnan
verði haíin.
Fieð til vegagerðarinnar er nóg
fyrir hendi. Ihaldsatjórn og íhalds
þing hafi pressað það úr alþýðu
með verðtolli og sköttum. Dag-
launaverkamenn og jarðræktarmenn
eiga heimbfngu á að þessu fje verði
þegar varið til vegalagningarinnar
kring um Fellið.
Verkamenn! krefjist skjótra að-
gerða í vegagerðarmálinu.
Látum makráðum valdhöfunum
okkí líðast að tefja lengur nauð.
synlegar lögboðnar framkvæmdir.
Jarðvöðull.
JAeö Gullíossi
komu allskonar:
Raflampar, Perur og Straujárn
Ennfremur fyrirliggjandi alt til ljósinnlagninga
---Til sýnis á Heimagötu 20 (Karlsbergi)-
Lúther Jóhannsson
Heíðí
Tilkynning.
Viðgerðir og innlagningar á raftækjum annast þessir löggiltir
rafvirkar:
Haraldur Eiriksson, simí 66
Lúther Jóhannsson, simar 89 og 195
Ber því að tilkynna þeim bilanir á öryggum og raftaugum innanhúss.
RAFSTÖÐIN.
Kensla
Foreldrar sem þegar hafa beðið mig fyrir l}örn sín til kenslu, láti
þau koma á mánudag kl. 2—4 e.h. — Og ennfremur dönsku nem-
endur, komi á mánudagskvöld kl. 8
EDVARÐ FRIÐRIKSSON, — Kirkjubæ