Eyjablaðið - 23.10.1926, Síða 1

Eyjablaðið - 23.10.1926, Síða 1
25. október 1926 „Eyjablaðii11 Sínmefni: „Eyjablaðið“ Pósthólf 113. Útgefandi Verkamanna- fjelagið „I)rífandi“ Vestmannaeyjum. Eitstjóm: íeleifur Högnason, Haukur Björnson og Jón ítafnson. Kemur út hrem sunnudagsmorgun. Argangurinn kostar 6 krónur innanbæjar 7 krónur I. árgangur — Nr. 5 út um land. Auglýsiugaverð 1 króna sentimeter eindálka. Smáauglýsíngar 5 aura orðið. Auglýsingum sje skilað | prentsmiðjuna. Afgreiðsla blaðsins or x prentsmiðju Guðjónsbræðra Heimagötu 22 sími 163 Prentað í prentsmiðju — Guðjónsbræðra Vestmannaeyjum — Sonn mynd úr þjóðskipulagi auðvaldsins. Veturinn er nú aö nálgast. At- vinnuleysið skorturinn og kuldinn ber aö dyrum hjá fátæklingunum. Afkoma þeirra versnar. Þegar svo er ástatt koma hinar dimmustu rökkurmyndir af stjórnsemi yfir- stjettarinnar best fram í dagsljósið. Ein slík mynd sönn og skýr birt- ist hjer í blaðinu í dag — það er brjef til bæjarstjórnarinnar frá fá- tækri ekkju og hefir hún gefið leyfi til að birta það. fað hijóðar svo: „Fátækrafulltrúinn hjet hefir tjáð mjer að, framfræðsluhrepp- ur minn Norðurfjarðarhreppur, vilji ekki greiða mjer og börnum mín- um hjer og að með næstu ferð eigi að Benda mig og börn mín hreppaflutning í hjerað sem jeg þekki engan mann. Einnig hefir hreppstjóri Norðfj uðarhrepps — tilkynt mjer skriflega að jeg eigi að koma austur þangað og börn- in eigi að setja niður í ýmsa staði en mig eigi að ráða í vist. Enda þótt ráðstafanir þessar sjeu að sjálfsögðu lögum sam- kvæmar, á jeg ómögulegt með að setja mig inn í að nokkur maður skuli geta beitt mig þessari þungu hegningu að senda mig nauðuga í ókunnugt hjerað og tvístra börn- unum mínum í ýmsar áttir, þar sem jag á ómögulegt með að líta eftir þeim. Hvað hefi jeg til saka unnið? Fyrir fjórum árum drukknaði mað- urinn minn hjerna við Eyjarnar. í þrjú ár hefi jeg unnið baki brotnu fvrir fimm börnum og hefi aðeins þurft að Þyggja í tæpt ár. Jeg vona að ráðandi menn í þessum bæ afstýri því ranglæti, sem stendur til að hjer verði fram- ið, þótt eigi að heita að gert sje í laganna nafni og sjái um að jeg fii að vera hjer áfram og hugsa um börnin mín.“ (undirskriftin). Þannig er þá íátækralöggjöf ís- lensku þjóðarinnar. Daglega guma borgararnir af aukinni menningu, mannúð og guðsótta. En hvar er menningin, mannúðin og guðsótt. ; inn?Brjefekkjunnar er spegilmyndin Hverjir stjónia? Fað er áreiðan- lega fyrsta spurningin, sem kemur fram 1 huga þeirra manna, sem á annað borð nokkuð hugsa og ekki hafa hjarta steypt úr pening- um. Fað er fyrsta spurningin eftir að hafa lesið þettað brjef — þessa svipu á hið borgaralega þjóðskipu- lag. Hvað getur betur opnað augu manna fyrir ofbeldi hins verandi skipulags? Getur ekki hver góður maður fyllst rjettlátri reiði og gremju yfir slíku framferði, sem nú á að fara að fremja? „Hvað hef jeg til saka unnið?“ spyr ekkjan. Og því er ekki hægt að svara nema á einn veg, þú hefir það til saka unnið, að þú ert fá- tæk og átt fátæk börn. „Maðurinn minn drukhaði" segir ekkjan. Var hann ekki einn af þeim mörgu sem þræla fyrir gull- kystu auðmannanna, en bera sjálf- ir lítið úr býtum, til þess að geta trygt framtíð konu sinnar og barna? Feirra voru launin, en hver eru núlaun ekkjunnar og barna hennar? I þrjú ár hefir hún ein unnið baki brotnu til þess að geta látið litlu börnunm sínum liða vel. Til að geta alið þau vel upp; til þess að geta látið þau njóta hlýju og ummhyggju móðurástarinnar. En hvað á nú að gerast? Móðurástina á að virða að vettugi. Litlu sak- lausu börnin, sem aldrei fyr hafa orðið fyrir hinum útdregnu klóm laganna, á nú að slíta frá móður- brjóstinu og heimilinu á að sundra. Hreppstjórinn hefir skrifað henni og tilkynt aðþaðeigi að ráða hana í vist. En sú umhyggja! „Henni er Skipað og hennar er að hlýða" segir aðvaldið- Svona er þá ástandið, þrátt fyr- ir allar ölmusugjafir borgaranna/í Hvar eru nú öll ykkar lýknar- fjelög og hjálpræðisherir ? Hvar eru nú allir ykkar samverjar? Fað er vitanlegt, að í næstum hvert skifti þegar eitthvert slysið steðjar að fátæku heimili, þegar ástandið er svo slærat, að það sje opið hverjum manni. Þegar neyðin er svo himinhrópandi að allir heyra. Þá hlaupa margir góð- hjartaðir menn til og gefa gjafir, en það eru ölmusugjafir. „Eins og naglilófann stingur fimmeiryngur“. En að hvaða gagni koma þær? Skoðun jafnaðarmanna er sú, að ölmusugjafir eigi ekki að eiga sjer stað. Heldur að auðæfi nátt- úrunnar og framleiðslan sje svo mikil að öllum geti liðið vel og allir eigi heimtingu á því að fá nóg til nauðsynlegs lífsviðurhalds, án ölmusugjafa. En til þess að þettað verði framkvæmt þaif að breyta skipulaginu. Og það geta fyrst og fremst ekki aðrir en þeir sem hafa fengið augun opin fyrir göllum þjóðfjelagsins. Það er rjettur til handa verka- lýðnum, sem krafan snýat um en ekki ölmusugjaflr. Þær ná skamt til þess að bæta neyðarástandið. Fjöldi fátæklinga sveltur heilu hungri áður en þeir knjekrjúpa fyrir fátækrastjórnum og afsala sjer mannrjettindum. En gegn öllum slíkum kröfum berjast valdhafarnir með oddi og egg, og nota öll sú mörgu meðöl í baráttunni, hverju nafni sem nefnast, hvort sem það heitir al- þingi, bæjarstjórn, lög, skólar, kirk- ja, ríkislögregla, tollar og skattar. Blöð gefa þeir út til þess að blinda fólkið með. —Mætti „tannagnístran bolsjevikanna" kveða við frá strönd að strónd, yfir álfur og höf frá landi til lauds. Mættu samtök verkalýðsins — fá- tæklinganna hinna undirokuðu og olnbogabarnanna, hinna útskúf- uðu eflast og aukast að viti og orku, að meðulum og krafti, þangað til þessi þjóðskipulags- prammi ihaldsins sekkur tilbotns. Jafnvel þó allar sagnir auðvalds ins á okkur jafnaðarmenn um landráð, trúleysi, glæpaundirróður og hræsni, væru sannar, þó kæm- ust þær þó aidrei í hálfkvisti við hinar fjallháu syndir þessa þjóð- skipulags valdhafanna. Alþýða, verkamenn. verkakonur, bændur! A ykkur hvílir ábyrgðin. Ykkar er að slá svörtu striki yflr hin borgaralegu mannúðarlausu lög. Vilfij. S. Vilhjálmssou. Burt með ihaldið Kjósið Ali % 1 ^

x

Eyjablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eyjablaðið
https://timarit.is/publication/646

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.