Eyjablaðið - 26.06.1927, Page 1
____ 26 júní 1927___________
lítgefandi „Verkamannafjelagið Dríf-
andi Vestmannaeyjum. Abyrgðarmað-
ur Jón Rafnsson. Blaðið kemur út
hvern suanudagsmorgun. — Kostar kr.
í .50 um ársfjórðunginn innanbæjar.
7 krónur árgangurinn útum land —
-• - "■■> ■ . ■ ■: tU
Málgagn alpýðu
í Yestmannaeyjum
1. Qrgangur - T6l. 42.
15 aura eintakið i lausasölu. — Aug-
lýsingaverð 1 króna sentimeterinn ein-
dálka. Smáauglýsjngar tíu aura orð-
ið. 50 aura stofngjald. Sírai, Prent-
smiðjan 160. Box 113. — Prontimiðja
Eyjablaðsins —
I.
frátt fyrir öflug mótmæli ís-
lenskrar alþýftu gsgn færslu kjör-
dagsins, lauk þinginu þannig, að
stjórnarskrárbreyting ihaldsflokks-
ins olli færslu hans. 9. júlí eiga
nú kosningar fram aÖ fara. Eng-
um blöSum er lengur um það að
tletta, i hvaða augnamiði frum-
varp Framsóknar og íhalds um
færslu kjördagsins kom fram. Á
hverjum einasta degi sem líður
fara nú kjósendur Aiþýðuflokksins
burt frá heimahögum sínum, í at
vinnuleit, á aðra staði landsins.
Það má með sanni segja, að
faiið sje að verða þiöngt um )ýð
ræði ícilenskrar alþýðu. Atkvæða-
fjöldi flokkanna við næstsíðasta
landskjör, færði heim sanninn um
það, hve sterk ítök Alþýðuflokkur-
inn heflr áflað sjer meðal kjósenda
landsins. Þrátt fyrir 85 ára ald-
urstakmarkið, var hann þriðji
stærsti stjórnmálaflokkur landsins
og munaði minstu að hann yrði
annar í röðinni.
En' hvaða itök hefir riú Alþýðu
flokkurinn í löggjöf þjóðarinnar ?
Heflr ekki síðasta þing verið sönn
myná argasta ranglætir ? Hefir
ekki verið skelt skollaeyrum við
flest.um kröfum, sem að hinir
tyeir fulltrúar alþýðunnar hafa
boirið fram í nafni þriðja eða
annars stærsta st.jórnmálaflokks
landsins ?
Fiumvörp þeirra voru virt að
vettugi. Háðglósum vs\r fleygt að
frumvarpi þeirra um rjettláta kjör-
dœmaskipun, kjördæmaskipun sem
ef til vill hefði verið tilraun í þá
átt að skipa Alþingi Islendinga
fulltrúum samkvæmt vilja þjóðar
innai. Það er éngin tilviljun, þót.t
álit hugsandi manna á þeBsari
stofnun,' sém kallar sig Alþingi,
sje farið að þvera.
9. júlí
Enn á ný standa nú kosning
ar fyrir dyrum. t Aftur eru ís-
lensku blöðin komin út í kosn-
ingabaráttuna. Með 18 þingmanns
efni leggur Alþýðuflokkurinn ís-
lenaki út í hríðina. á versta tíma
ársins, undir kjördæmaskipun sem
er ímynd órjettlætis, og undir
ákvæðum um 35 ára aldurstak-
mark til kosningarjettar og kjör-
gengis.
Þetta er hinn almenni kosninga
rjettur í konungsríkinu Islandl!!
H.
Eftir lestur aðalblaða þeirra
Fiamsóknar- og íhaldsmanna, ligg
ur; í augum uppi, að íhaldsflokk-
urinn býr sig undir kosningaósig-
ur, um leið og sigurvon Framsókn
armanna litar greinar þeirra. —
„Yörður". talar nm 9. júlí sem
merkisdag í sögu landsins og dieg
ur i upp „hræðilegar" myndir um
hina algerðu byltingu á þjóðfjelags
skipuninni, sem sje í vændum ef
íhaldið missi völdin. — Fyrir utan
myndasafnið yfii frambjóðendur
Framsóknar, flytur „Tíminn grein-
ar undir fyrirsögninni eins og
„Stjórnarlöngun — Sjórnarmynd-
un“, þar sem kjósenduin kurteis-
lega er gefið til kynna, í hversu
hörmulegu ástandi lanilið sje og
ekki megi menri búast við mjög
miklum stakkaskiftum þótt stjórn-
arskifti yrðu. — Loks er í blöðum
beggja þessara flokka, harmagrát-
ur yfir því, að það geti þó ef til
vill komið til mála að jafnaðar-
menn nái nokkrum þingsætum.
Þannig skrifar Jónas Jónsson frá
Hriflu í „Tímann“ :
Ef verkamenn vinna eitt
hvað á til muna1), getur svo far
íð að hvorugur stærri flokkurinn
1) Það þýðir 4—5 þingsæti fyrir
líka marga kjósendur og Framsóku
er 14—16. ImpL
Samkvæmt samþykt bæjarstjórnar Siglufjarðar, aðvarast verka-
fólk við að koma hingað í atvinnuleit óráðið.
Skrifstofu Siglufjarðarkaupstaðar, 7. júní 1927.
G. Hannesson.
A
geti verið við stjórn án þess aft
rijóta hlutleysis eða stuðuings
ji§irra“.
Og „Vörður" (23; tbl.) segir:
að þegav Framsoknarflokk
urinn hefði tekið við völdum í
landinu með tilstyrk socialista, þá
væri Framsókn neydd til að borga
fyrir stuðninginn það sem social
istar heimtuðu, því eila' mundu
þeir hætta að styðja stiórnina0.
Af þessu má ráða hvar fiskur
liggur undir steini, og sennilegt
er, að einmitt þannig muni íara,
að hvoiugur stærri flokkanna geti
myndað stjórn án tilstyrks hinna
fáu fulltrúa verkamanna.
Nauðsyn krefur því að Alþýðu-
flokknum sje Ijóst hvaða afstöðu
hann verði að taka sem slíkur
aðili á þingi.
Þótt öllum flokksmönnum sje
ljóst að flokkuriun muni hvorki
fyr nje síðar koma stefnuskrá sinni
í framkvæmd á grundvelli þing
ræðisins, ætti slík aðstaða sem
ofangreind, að geta orðið til þess
að koma á ýmsum þeim endur
bótum sem fulltrúár ílokksins hafa
barist fyrir á undanförnum þing
um. Má þar til nefna : Rjettlátari
kjördæmaskipun, 21 árs kosninga
rjett, fullkominni tryggingarlög
gjöf, einkasölu á síld og saltflski
o. m. fl.
Þáttaka i stjórn með öðrum
flokkum kemur ekki tíl mála og
eru raddir þær, sem heyrast um
Í»að, á engum rökum bygðar, enda
Eyjablaðið
kostar framvegis í lausasölu 15
aura eintakið. —: Duglegir sölu-
drengii óskast. Góð sölulaun greidd.
Þeir sem vilja auglýsa í blaðinu
láti greiðslu fyrir auglýsingar sín-
ar fylgja.
hafa helstu foringjar flokksins
margoft látið i ljósi að slíkt gæti
ekki komið til mála (samanber
Jón Baldvinsson á verkamanna
fundi í Reykjavík ekki als fyrir
löngu).
Alþýðuflokkurinn getur aldrei
skoðað Ftamsóknarflokkinn annað
en andstæðing sinn. Nægir þar
að benda á orÖ Jónasar Jónssonar
frá Hriflu um það, að þegar verka
mannaflokkurinn verði orðinn svo
sterkur, að eignarrjetti einstaklings
ins sje hætta búin,komi til greina
sameiginlegir hagsmúnir þeirra
(Framsóknar) og íhalds.
Hvernig sem úrslit íhöndfarandi
kosninga kunna að verða, er brýn
nauðsyn á því, að Alþýðuflokkur
inn skapi sjor ákveðinn grundvðll
um starfsemi sína í nánustu fram
tíð, grundvöll sem allir flokksmenn
yrðu ásáttir um að væri sá rjetti.
Implacabilis.