Samtíðin - 01.02.1943, Side 6
2
SAMTÍÐIN
Þetta eru ekki jólabækur, heldur bækur, sem börnin yðar
verða að eiga,
bækur, sem gera börnin að
betri börnum:
Sérstök útgáfa fyrir unglinga, með nýju sniði.
Klassiskar bókmenntir í snilldarþýðingum og frumsamdar bækur upp-
eldisfræðinga og kennara.
Fyrstu fjórar bækurnar komu úi fyrir jól og eru prentaðar á vandaðan,
þykkan bókapappír. Ein, Mjallhvít, í þýðingu Tómasar Guðmundssonar,
kom í fyrra og er nærri uppseld.
Björnstj:rne Björnson: KÁTUB PILTUR, þýdd af Jóni Ólafssyni, skáldi
Hin nýja MJALLHVÍT, eftir Tómas og Disney.
Selma Lagerlöf: MILLA, þýdd af Einari Guðmundssyni, þjóðfræðasafnara.
Um þessar bækur er óþarft að fjölyrða. Þær eru allar heimsfrægar og
óumdeilanleg listaverk.
KÁTUR PILTUR er þýdd af Jóni Clafssyni, skáldi og ritstjóra, skömmu
eftir aldamót, og munu fleslir á einu máli um, að bókin verði ekki
betur þýdd. Um bókina sagði einn gagnmenntaðasti og víðsýnasti
íslenzkur bókménntafrömuður nýlega, að liann hefði enga bók leslð
jafnoft.
MILLA er síðasta bók Selmu Lagerlöf og lýsir lítilli stúlku, krypplingi,
sem gerist svo góður dýralæknir, að undrum sætir.
Það er ekki hægt að gera börnin yðar að betri
börnum, ef þessar bækur fá engu áorkað. —
TJÖLD í SKÓGI heitir frábær unglingabók eftir Aðalstein Sigmundsson,
kennara. Hún lýsir sumardvöl ungra pilta í Þrastaskógi. Aðalsteinn
fylgir bverju fótmáli þeirra frá morgni til kvölds, starfi þeirra, leikj-
um og erfiðleikum; viðskiptum þ'eirra við silungana í Soginu, mýsn-
ar í holunum og jafnvel flugurnar. Hver einasti dagur er spennandi
skáldsöguefni, fullur af unaði og fegurð og heilbrigði. — Þetta er
ágæt bók fyrir stráka.
Eigið þér bækurnar: Gullroðin ský, Æfintýri Odysseifs, Ferðalangar og
síðast en ekki sízt Segðu mér sögu, eftir síra Jakob Jónsson?