Samtíðin - 01.02.1943, Síða 12

Samtíðin - 01.02.1943, Síða 12
8 SAMTÍÐIN POUL REUMERT: Þegar leikarinn skapar persónur [Lesendur Samtíðarinnar munu hafa gaman af að kynnast í þessari grein sjónarmiðum hins fræga danska leikara, sem kvænt- ur er hinni ágætu leikkonu vorri, Önnu Borg.] SÁ LEIKARI mun tæplega fyrir finnast, er ekki hafi þó nokkr- um sinnum á ævinni rekizt á fólk, sem spurði hann undrandi og jafn- framt með talsverðum aðdáunar- hreim í röddinni: — En livernig í ósköpunum farið þér að því að læra og muna öll þau hlutverk, sem þér leikið? Sá, sem fyrir spurningunni verður, lilýtur að hugsa sig um and- artak, áður en hann fær svarað henni. Hann hugsar nefnilega að jafn- aði ekki vitipid um þessa Iilið máls- ins. Slíkt kemur fyrst til greina, er menn taka gð gerast gamjir eða ef þeir verða fyrir veikindum. Það er jafn Iiversdagslegt og sjálfsagt, að leilcari sé fær um að læra og muna eins og að banlcastjóri kunni að skrifa og reikna og trésmiður að saga og liefla, og varla finnur nokkur maður upp á því að furða sig á eða dást að slíku. Svarið við spurningunni verð- ur því eilthvað á þessa leið: — Ég fer engan veginn að því! í raun og veru læri ég alls ekki lilutverkin mín, og ég man þau heldur ekki. Sann- leikurinn er sá, að hlutverkin breyt- asl i persónur, og þessar persónur eru nú einu sinni eins og þeim er á- skapað að vera. Þær hugsa og finna til liver á sina visu, og málfæri þeirra og ytra útlit er með ákveðnu móti. í margbreytni og' blæbrigðum leiksins verða þær að haga sér, spyrja og svara nákvæmlega eins og þær gera. Þar er ekki um neina aðra leið að ræða, og í raun og veru gerist allt þella af sjálfu sér! Hér er þó um eina undantekningu að ræða, nefnilega þegar leikarinn verður fyrir því sorglega óhappi, að hónum tekst ekki, þrátt fyrir baráttu og erfiði, að öðlast það mikinn áhuga fyrir híutverki sinu, að það taki hug hans allan. Slíkt er meira óhapp en auðvelt sé að gera sér í hugarlund,

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.