Samtíðin - 01.02.1943, Side 16

Samtíðin - 01.02.1943, Side 16
12 SAMTÍÐIN ÞÓRIR ÞÖGLI: 104. saga Samtíðarinnar BANADÆGUR AGÚSTSÓLSKINIÐ flæddi inn um gluggann á einkaskrifstofu Gríms gamla verzlunarstjóra. Háv- ær kliður gargandi hvítfugls, er sveimaði yfir dökkbláum fleti fjarð- arins, örskotslengd frá glugganum, barst inn til mín. Sjávarloftið, bland- ið séltunni, streymdi inn til mín um opinn gluggann. Ég hallaði mér aftur á bak í mjúk- um skrifstofustólnum og naut þess að lifa. Dvöl mín í þorpinu virtisl ælla að verða hin ánægjulegasta. Slarfið — samningagerð við skuldu- nauta verzlunarinnar — reyndist auðveldara en ég hafði búizt við, og frá því gáfust margar tómstundir. íslenzka sumarveðráttan var örlát á blíðu sína. Norðlenzka sólskinið vermdi mig inn að hjartarótum. Kvöldstundirnar úti í hlíðinni fram- an við þorpið liðu í rómantískum sæludraumum. Ungu stúlkurnar í þorpinu voru margar snotrar og liæfilega fljótar til viðkynningar. Ég hugði mjög gott til að dvelj- ast þarna fram eftir haustinu, ef verkefni entust svo lengi. Og færu kynni mín við vissa persónu, sem ég hitti stundum úti i blíðinni, eins og nú voru helzt horfur á, mundi ég finna einhver ráð til að láta verkefnin endast nokkuð fram á haustið. Ég liafði nýlokið samningi við karl framan úr Firði, þjösnalegan, óþægan karl, sem mér tókst þó að lokum að ná góðum samningi við. Og ég var dálítið hreykinn af frammistöðu minni við liann. Smá- brösur við skuldunautana, eins og við þennan karl, verkuðu í starfi mínu eins og liæfilegt krydd í góðri máltíð. Og nú sat ég þarna og beið þess næsta. Vindlarnir Iians Gríms gamla voru prýðilegir. Blár reykurinn sveif í kynjamyndum út í skrifstof- una. Ég var ungur, hraustur og á- liyggjulaus og naut dagdrauma minna. Þá skeði það, þetta óvænta, ó- skiljanlega. Var þvi hvislað að mér? Sá ég það í vindlareyknum? Ég veil það ekki. Hvað mér stendur þessi löngu liðna stund í skrifstofu Grims g'amla Ijóslifandi fyrir hugskotssjón- um. Sólargeislinn inn um gluggann hafði náð livítri, óskrifaðri pappírs- örk, sem lá á borðinu. Sleingrá dúfa, með græna spegla í vængjunum, flaug í kröppum boga fyrir glugg- ann. Ég leit sem snöggvast á papp- irsörkina, I>aðaða í sólarljósinu. Endurkast ljósgeislanna blindaði mig, svo að ég lokaði augunum and- arlak. Og' þá, á því augnabliki, kom hún upp i lniga mínum hin ógn- þrungna vissa. Ég átti að deyja.

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.