Samtíðin - 01.04.1943, Page 8
4
SAMTÍÐIN
Meindýrin eru orðin landplága
Viðtal við AÐALSTEIN JÓHANNSSON
AÖalsteinn Jóhannsson
X HIÐ 1914, skönimu áður en
heimsstyrjöldin fyrri skall á,
fór ungur Seyðfirðingur, Aðalsteinn
Jóhannsson að nafni, vestur um liaf.
Hann fór fyrst til Winnipeg og vann
þar ýmsa algenga vinnu, en starfaði
siðan uni þriggja ára skeið við land-
húnaðarvinnu vestur í Saskatsche-
wan-fylki. Árið 1920 gerðist Aðal -
steinn starfsmaður hjá Jóhannesi
Jósefssyni íþróttakappa og tók þátt i
sýningum lians víðsvegar um Banda-
ríkin og Kanada, en einnig í Berlin
og París á árunum 1920—’27. Að
jivi loltnu hvarf hann heim til ís-
lands, og undanfarin ár hefur hann
unnið að því að útrýma ýmiss konar
meindýrum hér á landi og er nú orð-
inn þjóðkunnur maður fyrir það
starf sitt.
Samtíðin hitti Aðalstein að máli
fyrir nokkrum dögum og hað liann
að skýra lesendum sínum frá lierför
hans gegn meindýrunum. Varð liann
fúslega við þeim tilmælum.
— Hvar lærðuð þér slarf yðar?
IJjá mági mínum, Tryggva Að-
alsteinssyni, sem er kunnur mein-
dýraeyðir vestur í Minneapolis. 1
Bandaríkjunum er mesti urmull af
alls konar skaðsemdardýrum, og má
í því samhandi nefna, að sérfræðing-
ar lelja, að ekki séu færri en um
250 þúsund skordýrategundir í heim-
inum. Vitanlega er margt þessara
dýra óskaðlegt, en ýmsar tegundir
þeirra vinna þó gífurlegt tjón. Vestur
í Bandarikjum vinnur fjölmenn stétl
manna það eilt starf, að útrýma skað-
legum dýrum, og i liveri einustu stór-
horg þar eru margir meindýraeyðaf
að verki. ,
— Hver eru helztu meindýrin, sem
þér fáiz,t við að útrýma hér á landi ?
— Þar til vil ég fyrst nefna rottui
og mýs, en einnig mölflugur, veggja-
lýs, kakalaka, flær og ýrnsar pöddur,
sem að vísu eru óskaðlegar, en liins
vegar það livimleiðar, að fólk vil!
fyrir hvern mun losna við þær lu
hihýlum sínum.
Af þessum dýrum eru rottur lang
óvinsælastar. Þær eru nú orðnai
landplága í flestum kaupstöðum,
kauptúnum og sveitum landsins, og
á seinustu árum hefur þeim fjölgað
gífurlega. Með hættum samgöngum
hafa þær horizt út um allar sveitir
landsins.
— Er rottan húin að leggja undir
sig öll hvggðarlög landsins?
— Nei, eftir því, sem ég hef komizt