Samtíðin - 01.04.1943, Síða 10
6
SAMTÍÐIN
takast í náinni framtíð að gereyða
allri rottu hér á landi. Eins og nii
standa sakir vildi ég biðja Samtíðina
að flytja öllum sínum mörgu lesend-
um þetla ráð: Aukið hreinlætið í land-
inu sem mest á öllum sviðum, með
því minnkið þið lifsskilyrði meindýr-
anna að miklum mun og stuðlað þai
með rækilega að eyðingu þeirra.
BREZKT HERSKIP liafði sökkl
þýzkum kafbáti og tekið skips-
höfnina til fanga. Skipherra herskips-
ins áminnti skipshöfn sína um að
veita kafbátsmönnum alla nauðsyn-
lega lijúkrun og sýna þeim fullo
kurteisi. Fyrsta dvalardag Þjóðverj-
anna um borð í herskipinu gekk alll
vel, en næsta dag var einn sjóliðanna
lcærður fyi'ir skipherranum og gefið
það að sök, að hann hefði slegið einn
kafbátsmanna. Kallaði skipherra
sökudólginn fyrir sig og spurði, hvort
honum hefði ekki verið kunnugt um
fyrirskipanir sínar.
—- Jú, svaraði sjóliðinn. Ég gerði
þeim heldur ekkert mein, þó að þeir
kölluðu Churchill asna, bölvuðu Eng-
landi niður fyrir allar hellur og segðu,
að allir Englendingar væru barna-
morðingjar og brennuvargar, en þeg-
ar þessir dónar fóru að spýta í sjóinn
okkar, þá stóðst ég ekki mátið, en
gaf honum einn.
Rúml. 200 greinar flytur Samtíð-
in yður árlega, auk 10 smásagna,
skopsagna o. fl. fyrir aðeins 10 kr.
JÖRGEN FRÁ HÚSUM:
HEIM
Hvar, sem ég fer um fold,
Fljótsdalinn kýs ég mér.
Sólvermd hin svarta mold
sumarsins skrautið ber.
Þar leit ég bláust blóm,
bjartasta liljuskraut,
þar á ég helgidóm
hverri í skógarlaut.
Sólmögnuð blómin blá
blika um heiðarlönd;
brumfögur björkin há
breiðist um Lagar-strönd.
Fyllir mig ferskum þrótt
fjörefni úthagans.
A sér þar orkugnótt
æska vors fagra lands.
Vel skýla veðrum fjöll
vaknandi Fljótsdals-grund;
blikar á fossaföll
fagra um morgunstund.
Guð verndi bóndans bæ,
blessi hans sifjalið.
Vaxi á vorin fræ,
verðmæti heimilið!
Heillaður heim frá sæ
horfi’ ég í vesturátt.
Lognstafar lítinn bæ
Lagarfljót jökulblátt.
Enn er hér allt sem fyrr:
angan frá björk og reyr.
í dýrðinni’ ég drottin spyr:
Dásemd hvar finnist meir’.
Þeir, sem nota
'sápuna.
einu sinni, nota hana aftur.