Samtíðin - 01.04.1943, Blaðsíða 20
16
SAMTÍÐIN
25 ÁRA STARFSAFMÆLI
ABRÆÐRABORGARSTÍG 16 í Reykja-
vík stendur eitt af myndarlegustu og
vinsælustu brauð- og kökugerðarhúsum
höfuðstaðarins, eign Jóns Símonarsonar
bakarameistara. í þessum mánuði eru lið-
in rétt 25 ár, síðan Jón stofnsetti brauð-
og kökugerðarhús í Reykjavík, og vill
Samtíðin minnist þess, ckki sízt, þar sem
hinn góðkunni eigandi stofnunarinnar
verður sjálfur fimmtugur í næsta mánuði.
Starfssaga Jóns Símonarsonar er í stuttu
máli sem hér segir: Árið 1918 stofnsetti
hann brauð- og kökugerðina Ágúst Jón
& C o. í Þingholtsstræti 23, með þeim
bræðrum Ágústi og Pétri Jóhannessonum
og mági þeirra, Einari Halldórssyni, sem
nú er látinn. Jón gekk þó úr þessu fyrir-
tæki eftir rúmt ár og stofnaði þá hina
góðkunnu kökugerð á Laugaveg 5. Með-
eigandi hans var þar um eins árs skeið
Júlíus M. Guðmundsson, en frá 1920—1928
rak Jón þessa starfsemi einn. Á árunum
1928—34 rak Óskar Thorberg Jónsson
brauð- og kökugerð með Jóni á Lauga-
veg 5, en eftir brunann þar árið 1930
reistu þeir félagar hið mikla brauð- og
kökugerðarhús á Bræðraborgarstíg 16,
sem Jón hefur rekið einn síðan 1934.
Ég kynntist Jóni Símonarsyni fyrst árið
1918, er hann var nýkominn heim frá
útlöndum að loknu tveggja ára framhalds-
námi þar. Hann var þá svo sem ungum
mönnum er títt stórhuga og ætlaði sér
að vinna mikið og gott starf á sínu sviði.
En hann var einnig hugsjónamaður á
ýmsum öðrum sviðum. Nú vita það allir,
sem til þekkja, að Jón hefur jafnan ver-
ið starfi sínu trúr. í starfsemi hans hef-
ur ávallt verið kappkostað að ryðja braut
hvers kyns nýjungum, er til bóta hafa
horft. Til dæmis má nefna, að árið 1940
lét Jón setja upp hjá sér stærsta rafmagns-
bökunarofn, sem þá var til hér á landi.
Saga þessa brauðgerðarhúss er því jafn-
framt saga þeirra miklu framfara, sem
orðið hafa á því sviði hér á landi uni
aldarfjórðungsskeið. Það er gott að vita
af mönnum eins og Jóni Símonarsyni í
hverri starfsgrein, framsæknum og yfir-
lætislausum sómamönnum, sem aldrei
nægir minna en það bezta sér og við-
skiptavinum sínum til handa. Samtíðin
óskar honum til hamingju á þessum tíma-
mótum.
S. Sk.