Samtíðin - 01.04.1943, Side 23
SAMTÍÐIN
19
likamlega vinnu, er þetta: Hvorl
sem verk er einfalt eða margbrotið,
má leysa það vel eða illa af liendi
.... Starfsgleði getur verið það full-
komin, að hún yfirgnæfi allt ann
að. Þegar ég er að reyna að skapa
mér hugmynd um paradís, sé ég ekki
í anda stað, þar sem vængjaðar sál-
ir gera lítið annað en syngja og leika
á hörpur. Miklu fremur sé ég í anda
skrifstofu, þar sem ég vinn um ald-
ir alda að samningu afarmikilfeng-
legrar skáldsögu, sem aldrei tekur
enda, með meiri starfsorku og ná-
kvæmni en ég' átti mér yfirleitt hér
á jörðu. Paradís garðyrkjumanns-
ins er garður, trésmiðsins vinnu
stofa.
Agætt dæmi um sambland líkam-
legrar og andlegrar starfsemi er
fólgið í störfum húsfreyjunnar, þeg-
ar hún lætur sér annt um að full-
nægja skyldum sínum. Ivona, sem
stjórnar heimili sínu vel, er hvorl
tveggja i senn, drottning þess og
þegn. Það er hún, sem skapar manni
sínum og börnum starfsskilyrði.
Hún verndar þau gegn áhyggjum,
fæðir þau og annast um þau. Hún
er fjármálaráðherra heimilisins, og
henni er það að þakka, ef útgjöld-
in fara ekki fram úr tekjunum. Hún
ræður fögrum listum á heimilinu
og það er henni að þakka, ef húsið
eða ibúðin hefur yndisþokka lil að
bera. Hún er kennslumálaráðherra
fjölskyldunnar, og það er henni að
þakka, ef synirnir komast í skóla
eða til æðstu mennta og dæturnar
verða verklagnar og' kurteisar.
Kona ætti að láta það vera sér
ámóta mikið metnaðarmál, að gera
9
Eigið þér
bina nýju bók:
Vettvangur dagsins
eftir
Halldór Kiljan Laxness.
Þelta er mikil bók, um 500 bls.,
og geymir allar greinar og ritgerð-
ir skáldsins frá síðustu árum.
Lesið bana og njótið bersögli og
vopnfimi hins djarfa snillings. —
VÉLSMÍÐI
ELDSMfÐI
MÁLMSTEYPA
SKIPA- OG
VÉLAVIÐGERÐIR