Samtíðin - 01.04.1943, Blaðsíða 28
24
SAMTÍÐIN
Raddir lesenda vorra
yESTFIRÐINGUR skrifar Samtíðinni 23.
' febr. s.l.:
.... „Við hér á bæ lesum Samtíðina
alltaf með mikilli ánægju. Hún er alger-
lega einstæð i sinni íöð, fullkomin til-
breyting frá öðrum tímaritum Yður hef-
ur, hr. ritstjóri, tekizt að skapa beíra og
fjölbreyttara tímait en ég hef áður þekkt.
Þér birtið ekki einungis úrval úr beztu
útlendum tímaritum, heldur lika fjölda
ágætisgreina eftir isl. höfunda. Ég les með
mikilli ánægju feitletruðu leiðarana yðar
á bls. 3 og furða mig oft á því, hve yður
tekst að segja þar mikið í stuttu máli.
í rauninni eru þær greinar á við margra
blaðsíðna ritgerðir, og þær fá mér oft
margt að hugsa.“ ....
Að norðan skrifar merkur bóndi:
„Það er sannarlega þakklætisvert að
halda úti tímariti, sem er iaust við alla
pólitík, eu lætur flest annað til sín taka.
Ég hef á nokkuð langri æfi aldrei vitað
til þess, að nokkurt íslenzkt tímarit væri
jafnstundvíst og Samtíðin. Hún bregst
aldrei. Og svo er hið lága verð: 10 krón-
ur. Fyrir þetta tvennt: stundvisina og
það, hve verði ritsins er i hóf stillt,
miðað við hinar rándýru bækur (sem
sýniiega eru margar hverjar eingöngu
gefna út í gróðaskyni) á Samtíðin skilið
virðingu og þökk allra íslendinga.“
Úr Skaftafellssýslu er oss skrifað:
„Leiðarar yðar, greinaflokkurinn: Við-
horf dagsins, síðan: Merkir samtíðarmenn
og dálkurinn: Þeir vitru sögðu, eru af-
bragð. Samtíðin er hollur og kærkominn
gestur á mitt heimili."
— Þér hafið málað engilinn með
sex fingnr á liægri hendinni. Haf-
ið þér nolckurn tíma séð engil með
sex fingur?
—- Nei, en hafið þér séð engil
með fimm?
löálsbindagerðin
Jakobína Ásmundsdóttir
Suðurgötu 13, Reykjavík.
Sími 2759.
Rýr til alls konar
hálsbindi, trefla og s’æður.
Selur lcaupmönnum og kaupfélög-
um um land allt.
Fyrsta flokks efni og vinna.
Þetta
merki
tryggir
yður
gæðin.
A I 1 s k o n a r
rafvéla-
viðgerðir
viðgerðir og nýlagnir
í verksmiðjur,
hús og skip.
H.f. SEGULL
Verbúðunum
Reykjavík.