Samtíðin - 01.11.1943, Qupperneq 17

Samtíðin - 01.11.1943, Qupperneq 17
SAMTÍÐIN 15 og ópíumsneyzlu. Þeir flýja til hans til þess að leitast við að gleyma til- verunni og komast inn í heim hug- myndanna. Fólk, sem haldið er af þessum, lesti, er sílesandi. Þvi er al- veg sama, hvað það les. Það opnar alfræðiorðahók og les þar með jafn- mikilli áfergju grein um meðferð vatnslata eíins og grein um skot- vopn .... Það leitar hvorki að staðreyndum né hugsjónum, heldur eingöngu að endalausum orðaflaumi, sem vemdar það gegn því að þurfa að horfast í augu við lífið og tilver- una .... Skemmtilestur er miklu veiga- meira starf. Skáldsögu-unnandinn les sér til skemmtunar og í þeirri von, að hann finni annaðhvort fegurð eða komist í æsingu. Annar les yfir- leitt til þess að njóta þess að upp- götva hjá skáldunum og siðameist- urunum fullkomnari túlkun á at- hugunum sínum og tilfinningum. Enn annar er vanur að lesa án þess að hirða sérstaklega um nokkurt tímabil sögunnar, til þess eins að sannfærast um sameiginlegar tilfinn- ingar manna á ýmsum öldum. Þess háttar skemmtilestur er hollur. Að lokum kemur svo starfslestur þeirra manna, er leita þekkingar sér til fi'óðleiks. Þeim dylst ekki, að slíkt er nauðsyn til þess að öðlast þá menntun, sem þedr vita, að er furðu mikilsverð. Þegar menn lesa í þessum tilgangi, verða þeir að hafa penna eða blýant við höndina, nema þeir séu gæddir frábæru minni. Að leita tvisvar að grein, sem menn þurfa á að halda, er eyðsla á dýr- mætum tima........ Lestur fylgir eins og allt starf föstum reglum. Fullkomin þekking á verkum fárra rithöfunda er gagn legri en yfirhorðsþekking á verkum margra. Fíngerðustu atriðin í hók dyljast mönnum oftast við fyrsta lestur. I æsku ættu menn að velja sér bækur á sama hátt og þeir velja sér vini. Og þegar þeir hafa á annað borð fundið þessa vini í heimi bók- anna, verða þeir að njóta þeirra í einrúmi. Náin kynni af Montaigne, Saint-Simon, Retz, Balzac eða Proust mundu nægja til þess að auðga allt lif hvers og eins. Þegar menn lesa, ættu þeir að gefa mestar gætur að hinum mildu höf- undum fortíðarinnar. Auðvitað er bæði eðlilegt og sjálfsagt, að nienn séu handgengnir verkum samtíðar- manna sinna, því að meðal þeirra er sennilegast, að þeir finni vini, sem óttast og ásælast það sama og þeir sjálfir. En drekkjnm oss ekki í haf- sjó ómerkilegra bóka. Snilldarverkin eru þegar orðin það mörg, að vér fáum, aldrei kynnzt þeim öllum. Lát- um oss trúa á val rita frá fyrri öld- um. Einurn manni getnr skjátlazt og heilli kynslóð líka, en mannkyn- inu í heild sinni fatast ekki. Hómer, Tacitus, Shakespeare og Moliére eru áreiðanlega vel að frægð sinni komn- ir. Vér metum verk þeirra sýnu meira en verk þeirra höfunda, sem enn er ekki séð, hvort standast muni tímans tönn. Vér verðum að velja oss andlega næringu með mikilli kostgæfni. Sér- liver sál þarfnast sinnar sérstöku fæðu. Göngum úr skugga um, hvaða höfundar eru vorir höfundar. Þeir

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.