Samtíðin - 01.11.1943, Side 19
SAMTÍÐIN
17
JÖRGEN FRÁ HÚSUM:
Kvittað fyrir kveðju
Ég þakka kveðju, senda yfir sæinn
ineð sól og yl.
Ó, hve þá birti heim við litla bæinn
um bala og gil.
Ég minnist þín, er sólin höfuð hneigir
við himintjöld.
Ég minnist þín, er blómið krónu beygir
um blíðust kvöld.
Er vetrarsólin vefur geisla bjarta
um vatna byggð,
þá legg ég blóm þín ljúfust mér við hjarta
ög ljæ þeim tryggð.
Bókmenntagetraun
Samtíðarinnar
Hvaða skáld hafa ort eftirfarandi
Ijóðlínur, og úr livaða kvæSum þeirra
eru þær? — Svöriu eru á hls. 29.
1. Mér er orSiS stirt um stef
og stílvopn laust í höndum,
2. Hann lieyrir stormsins hörpuslátt,
hann heyrir harnsins andardrátt,
3. Stormarnir hvína, stráin sölna
stórvaxin alda rís á sæ,
4. Ófrýnn leikur alltaf gránar.
5. Drýpur af stráum, og döggvot
er grund.
Þeir örfáu
áskrifendur í Reykjavík og Hafnarfirði,
sem enn eiga ógreitt árgjald sitt fyrir
Samtíðina í ár, eru vinsamlega beðnir
að greiða það strax, annaðhvort í bréfi
til Samtíðarinnar, Pósthólf 75, eða á ein-
hvern þeirra þriggja staða, sem nefndir
eru á bls. 32 hér í ritinu. Gjalddagi var
í febrúar.
Stríð og friður
eflir Tolstoy er um þessar mundir
geysimikið lesin í Englandi. Sakir
pappírsskorts hefur hún verið ófáan-
leg þar um tveggja ára skeið. Fyrir
nokkrum vikum kom hún út að nýju
í liinu fræga og ódýra ritsafni „Every-
man’s Lihrary“. Var hún þar í tveim
bindum og var prentuð i 50.000 ein-
lökum. Þrem dögum eftir að hún
kom á markaðinn, var hvert einasta
eintak, er komið liafði i bókaverzl-
anir í London, selt!
Munið
verðlaunasamkeppni Samtíðarinnar
um beztu smásögurnar. Sögurnar
verða að vera komnar í hendur rit-
stjóra fyrir næstu áramót. Um sam-
keppnina vísast að öðru leyti til grein-
argerðar í 7. hefti þ. á., bls. 19.
Nýtízku listmáldri, sem h\afði
máilað landslagsmynd í „impres-
síónistiskum“ stíl, spurði vin sinn,
Iwað hann héldi, að rétt væri að
kalla myndina. Vinurinn svaraði:
— Ég mundi kalla hana héimilið,
því að enginn staður er henni líkur.
Sumir rithöfundar eru frægir fyr-
ir bækur, sem þeir lxafa skrifað, en
aðrir fyrir bækur, sem þeir hefðu
ekki átt að skrifa.
Munið Eikarbúðina
Skólavörðustíg 10,
Rvík. Sími 1944,
Pósthólf 843.