Samtíðin - 01.12.1943, Side 25
SAMTIÐIN
21
anna. Ég verð eigi uppnæmur, þótt
ég sjái tröllauknar stjórnaráætlanir,
en er það kom í ljós, að þessi orku-
stöð, ef hún verður reist, mun fram-
leiða helmingi meira afl en TVA,
Grand Coulée og Bonneville stöðv-
arnar til samans, fór ég að gera mér
grein fyrir, að framtíðardraumar
Rússa og áætlanir eru á þann hátt,
að það hæfir hinum niiklu merkur-
löndum þeirar og sléttum. Mér var
skýrt frá því, að framkvæmdinni
iiefði verið frestað sökum styrjaldar-
innar.
Nokkrir stjórngæðingar fylgdu
mér um hin fögru undirgöng Moskva,
er ég óskaði þess. Þau eru með að-
laðandi áfangastöðum og að öllu
liin glæsilegustu. Mér var sagt, hvern-
ig þessi fárra mílna löngu göng hefðu
næstum því verið orðin hundruð
mílna á lengd, er styrjöldin skall á.
Mér voru sýndar tröllauknar áætl-
anir um vatnsveitur, bæði í Suður-
Rússlandi og Norður-Síberíu. Alltaf
sami stórfengleikinn og sama skýr-
ingin, stvrjöldin ruglaði okkur í rím-
inu. Einnig kvað alls staðar við sama
spurningin: „Er nokkuð svona stór-
fenglegt í Ameríku?“
Ég kom í nokkrar verksmiðjur og
lalaði við herra Stalin um einstakar,
sem ég hafði lieimsótt. Hann spurði
mig spjörunum úr um, livernig þær
þvldu samanburð við amerískar
verksmiðjur um afköst, aðferðir og
verklag. Hann vildi eigi leyfa mér
að sleppa með almennum svörum.
Hann langaði til að vita nákvæm-
lega, hve nálægt hann hefði komizt
amerískum fyrirmyndar-framleiðslu-
háttum.
Öldtnf J.höLcLmq,
Co.tnpaM.if
79 Wall Street
New York.
Hafnarhvoli
Reykjavík.
Önnumst liúsa- og skiparaflagnir,
setjum upp vindrafstöðvar fyrir
sveitabæi og útvegum allt efni til
þeirra.
Sjáum um teikningar af stærri og
smærri rafveitum.