Samtíðin - 01.06.1944, Blaðsíða 6

Samtíðin - 01.06.1944, Blaðsíða 6
2 SAMTÍÐIN Ný útgáfa aí Heimskringln Snorra Stnrlnsonar. Hinn sívaxandi áhugi þjóðarinnar fyrir íslenzkum bókmenntum og þó sérstaklega fornbólunenntum, er glæsilegt tákn um vaknandi sjálfstraust hennar og þjóðernisvitund. Fer vel á því, að sá áhugi láti á sér bera ein- mitt nú, er öll þjóðin býr sig undir að verða stjórnarfarslega frjáls. Helgafellsútgáfan hefur um þessar mundir í undirbúningi vandaða út- gáfu á einu glæsilegasla öndvegisverki norræns anda, Heimskringlu Snorra Sturlusonar. Hefur útgáfan fengið leyl'i til að nota um 300 mynd- ir, er sex frægustu málarar Norðmanna gerðu í'yrir siðustu aldamót í hina stóru, norsku heimilisútgáfu af Heimskringlu, og munu þær hafa átt sinn þátt í því, að greiða götu þessa mikla snilldarverks inn á svo að segja hvert einasta norskt heimili, enda eru myndirnar hin ágætustu listaverk og einstakar í sinni röð. Það hefur lengi verio oss mikil vanvirða, hversu þetta höfuðverk fræg- asta og mesta ritsnillings Islendinga hefur fram að þessu verið í fá: ra höndum í sjálfu ættlandi höfundarins, þótt Heimskringluútgáfa Forn- ritafélagsins, sem hafin er fyrir nokkrum árum, kunni að hafa bætt þar nokkuð úr. Aldrei hefur þó verið brýnni þörf á því en einmitt nú, að æskulýður landsins kynnist slíku riti og sæki þangað heilbrigðan metnað og ást á tungu sinni og þjóðerni. Það er því í alla staði vel til fundið, að þessu fullveldisári vcrði fagnað með vandaðri og veglegri útgáfu þessa ómetanlega íslenzka listaverks. Gerizt nú þegar áskrifendur að Heimskringlu. BÓKASTOFAN HELGAFELL, AðalstrætL

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.