Samtíðin - 01.07.1951, Blaðsíða 28
24
SAMTÍÐIN
SKDPSÚGUR
JÓN LÁ fyrir dauðanum. Hann.
sagði við Guðnýju, konu sína: „Þeg-
ar ég er dáinn, verður þú að vera
mér trú, Guðný mín, því í livert
skipti, sem þú reynist mér ótrú, mun
ég snúa mér við i gröfinni.“
Tuttugu árum seinna dó Guðný.
Hún fór rakleitt til Sankti Péturs og
spurði eftir Jóni sínum. Ekki fyrir-
fannst Jón á þeim slóðum. Þá fór
frú Guðný í hinn staðinn og spurði
þar eftir manni sínum. Dyravörður
kvað þar slíkan urmul af alnöfnum
mannsins hennar, að alveg væri von-
laust að hafa upp á honum, nema
hún gæli veitt einhvérjar upplýsing-
ar um hann.
„Það var hann Jón, sem sagðist
mundu snúa sér við i gröfinni i
livert sinn, sem ég yrði honum ótrú,“
sagði Guðný gamla.
„Nú, hann Jón snarsnúningur,“
mælti dyravörðurinn brosandi, „við
höfum hann nú bara fyrir viftu til
að kæla loftið i borðsalnum.“
MAÐUR NOKKUR kom inn í veit-
ingahús og bað um mat og vænan
snafs á undan. Allt kom innan
stundar. Þá tók gesturinn eftir mál-
ara, sem stóð uppi í stiga skammt
frá honum og virtist liafa alveg sér-
stakan áhuga fyrir snafsinum hans.
Við það náfölnaði gesturinn, hætti
alveg við að bera glasið að vörum
sér, en þaut í l>ess stað eins og
byssubrenndur út úr salnum.
Málarinn flýtti sér þá niður úr
stiganum, skundaði að borði gests-
Vanti yður
bólstruð húsgögn, þá spyrj-
izt fyrir hjá okkur. — Við
leitumst við að fullnægja
smekk yðar, jafnframt því
sem lögð er áherzla á vöru-
vöndun og hóflegt verðlag.
~_JJú
l lóLti
run
taó^a^nab
JJig urljömá (JJ. JJinaTióonar
Sölubúð Bergstaðastræti 41,
(opin kl. 2—6).
Vinnustofa Höfðatúni 2,
sími 7917.
Glertryggingar
hefur lengi vantað, en
nú eru þœr fáanlegar
hjá oss, með sérstak-
lega lágum iðgjöldum.
Leitið upplýsinga.
Almennar
Tryggingar h.f.
Austurstrœti 10.
Sími 7700.