Samtíðin - 01.09.1951, Blaðsíða 15
SAMTÍÐIN
11
1. grein
Kjörorð frægra manna
RÐ, SEM HAFA LÍFSGILDI (Words to
Live By) nefnist bók, sem kom út
í Bandatikjunum fyrir nokkrum árum og
getið hefur verið hér i „Samtíðinni“. Þar
gera 96 frægir karlar og konur grein fyr-
ir, hvaða orð þau liafi valið sér að kjör-
orðum í lífsharáttunni. Hér munu smám
saman verða teknar upp nokkrar greinar
úr þessari atliygliverðu bók. — Ritstj.
ANDRÉ MAUROIS,
heimsfrægur . frakkneskur rithöf-
undur, velur þessi orð eftir RENJA-
MÍN DISRAELI: „Lífið er of stutt
til þess, að við sóum því í smámuni“.
G r e i n a r g e r ð :
Uppáhalds tilvitnun mín er fram-
anskráð setning, rituð af Disraeli.
Hún hefur bjargað mér í margri
sárri raun.
Það hendir okkur oft, að við fjarg-
viðrumst ósköpin öll yfir smámun-
um, sem við ættum að virða að
vettugi og glevma. Ef til vill hefur
einhver maður, sem við réttum
hjálparhönd, reynzt okkur van-
þakldátur . . . einhver kona, sem
við töldum vinveitta okkur, hefur
talað illa um okkur .. . við höfum
farið á mis við einhverja þá umbun,
sem við álitum okkur eiga heimt-
ingu á. Yið erum svo lömuð af von-
brigðum yfir þessu, að við fáum
aði í skrælþurrum viðarkestinum.
Umhverfis bálið steig æpandi mann-
djöfull dans.
Þannig kom blóðfórnin, hræsnin
og villimennskan inn í lofgerðina
um drottin.
hvorki starfað né notið svefns. En
nær slíkt nokkurri átt?
Ilér erum við á þessari jörð og
eigum aðeins fáa áratugi ólifaða.
Og þarna sóum við mörgum óbæt-
anlegum klukkustundum í harma-
tölur, sem bæði við og allir aðrir
verða búnir að steingleyma að ári
liðnu. Nei, helgum lif okkar mann-
sæmandi störfum og tilfinningum,
Iiáfleygum hugsunum, sannri ástúð
og staðfastri framtakssemi, því að
lifið er of stutt til þess, að við só-
um því í smámuni.
+ Það er sagt: +
að bleyða sé hugrakkur maður, sem
hegðar sér eins og fifl.
♦
að eiginkona sé hið mikla athvarf
þess manns, er ratar í alls konar
mótlæti, sem ókvæntur maður
verður aldrei fyrir.
♦
að höfðingjasleikja sé sá maður,
sem heldur sig miklu merkilegri
persónu en hann er.
♦
að siðfágun sé sötur, sem ekki heyr-
ist, þegar maður borðar súpu.
♦
að kommúnisti sé sá, sem hnerrar
í hvert skipti, sem Stalin tekur í
nefið.
Ef yður vantar góð herra- eða dömu-úr, •
ættuð þér að tala við mig.
Sent um allt land.
GOTTSVEINN ODDSSON,
ú rsmiður,
Laugaveg 10. — Reykjavík.