Samtíðin - 01.12.1952, Síða 12
6
SAMTÍÐIN
Tónlist verður ekki numin eingöngu í skólum
Samta t v'd Cjidmund ^óniion píanóteil
TTAUSTIÐ 1950 fór ungur Reyk-
víkingur, Guðmundur Jónsson,
til Parísar til framhaldsnáms í píanó-
leik. Hann hafði lokið stúdentsprófi
frá Menntaskólanum í Reykjavík
vorið 1949, en jafnframt mennta-
skólanáminu hafði hann stundað
nám í píanóleik við Tónlistarskólann
og lokið þar burtfararprófi vorið 1948
með ágætum vitnisburði. Guðmund-
ur lauk prófi í forspjallsvísindum við
Háskóla Islands vorið 1950, en hefur
síðan haustið 1950 dvalizt í París og
stundað þar píanónám við Le
conservatoire national de musique.
„Samtíðin“ hitti hann að máli, er
hann var staddur hér heima fyrir
skömmu og átti þá við hann eflir-
farandi samtal.
„Ert þú fyrsti Islendingur, sem
stundað hefur nám í píanóleik við
þennan tónlistarskóla í París?“
„Ég held ég þori að fullyrða það“,
segir Guðmudur.
„Hvað viltu segja um skólann?“
„Fyrst, að hann stendur á mjög
gömlum merg. Skólinn var stofnað-
ur á ofanverðri 17. öld, og þaðan
hafa útskrifazt margir af frægustu
tónlistannönnum Frakka, svo sem
Rerlioz, Bizet, Debussy, Fauré,
César Frank, Gounod, Massenet og
Ravel. En einnig hafa allmargir út-
lendingar stundað þar nám, svo sem
Kreisler og Enesco, sem m. a. var
kennari hins fræga fiðluleikara
Menuhins. Það er örðugt að komast
ara
inn í skólann, þar sem aðsóknin er
geysimikil, en nemendafjöldinn hins
vegar takmarkaður. Ég stunda þar
nám í útlendingadeildinni. Við vorum
milli 50 og 60, sem þreyttum sam-
keppnispróf inn i skólann haustið
1950, og var ég svo heppinn að vera
meðal þeirra 16, sem inn komust.
Utlendingadeildin er að mörgu
leyti frábrugðin öðrum deildum skól-
ans. M. a. hafa nemendur hennar
ekki rétt til að keppa um verðlaun
(prix), en öðlast í þess stað próf-
skírteini. Ég hefði nú líklega reynt
að komast inn i frönsku deildskólans,
ef ég hefði þvi miður ekki verið
orðinn tæpu ári of gamall til að mega
þreyta þar inntökupróf; aldurstak-
markið er 20 ár fyrir útlendinga,
en aðeins 18 ár fyrir Frakka.“
„Hve margar tónlistargreinir eru
kenndar í skólanum?" •
„Samkvæmt skólaskýrslum eru
kenndar þar um 30 greinir, er lúta að
tónlist, en auk þess er innan vébanda
skólans kenndur listdans og leiklist.
— Meðal annarra útskrifaðist hin
fræga leikkona, Sarah Bernhardt, á
sínum tíma þaðan. — En ekki eru
nemendur skuldbundnir til að leggja
stund á fleira en sérgrein sína, a. m.
k. ekki í útlendingadeildinni“.
„Hver hefur verið aðalkennari
þinn ?“
„Marcel Ciampi. Hjá honum naut
Rögnvaldur Sigurjónsson áður
kennslu í einkatímum. Ciampi er