Samtíðin - 01.05.1958, Page 15

Samtíðin - 01.05.1958, Page 15
SAMTÍÐIN 11 um og fálmaði út í loftið. Um leið og ég sentist fram af berginu, greip ég hrísluna dauðahaldi. Á því andartaki þráði ég lífið. Og þessi einstæðings hrisla varð líftaug min. Ég stöðvaðist á fluginu. Andartak húkti ég á bergbrúninni. Svo brölti ég á fætur og skjögraði nokkur skref í áttina til lífsins. Þá var kröftunum lokið. Ég bné niður og missti með- vitund. Ekki vissi ég, hve lengi ég lá þarna, en nokkurn tíma befur það verið. Þegar ég raknaði við, var tekið að rökkva. I fyrstu fannst mér Helga hvíla i örmum mínum, titrandi af beiskum grátekka. En þá tók ég eftir hrislunni og áttaði mig. Féð var á beit skammt frá berg- brúninni, og ég drattaðist á eftir því til beitarhúsanna. Það tók langan tinia, og var orðið mjög áliðið kvölds, er ég hélt lieimleiðis. Þegar ég kom heim undir bæinn, sá ég, að ljós log- uði í stofunni. Og enn greip mig sami hrseðilegi grunurinn og áður, en ég hratt honum frá mér. Samt gat ég ekki annað en gægzt inn um glugg- ann, þegar ég gekk framhjá honum. Kennarinn var háttaður og var að iesa í bók. Mér létti við að sjá það. Eg snaraðist inn í bæinn og opnaði eldhúsdyrnar. Helga kom á móti mér öll útgrátin. Hún fleygði sér í faðm niér og stundi: >,Guði sé lof, að þú ert kominn heim! Ég var orðin svo hrædd um, að eitthvað voðalegt hefði komið fyr- E þig. En þú mátt ekki lialda, að ég .. Meira gat liún ekki sagt fyrir grát- ekka, en hjúfraði sig titrandi að mér. Aldrei hef ég skammazt mín eins, hvorki fyrr né síðar. Ég stóð þarna eins og jarðfastur steinn og gat engu orði upp komið. Eftir nokkra stund sagði Helga: „Hann bað mín og ætlaði að kyssa mig, en ég sagði NEI og sleit mig af honum, einmitt í því að þú opnaðir dyrnar. Ég sá, að þú varst reiður og treystir mér ekki, sem ekki var von.“ „Segðu það ekki, elskan mín,“ sagði ég. „Svo hljóp ég upp í herbergið mitt,“ liélt hún áfram, „fleygði mér upp í rúm og grét. Ég hef sjálfsagt blund- að rétt sem snöggvast, því mig drevmdi, að ég þóttist sjá einhverja ófreskju. Ég vissi, að það var dauð- inn. Hann hélt í fæturna á þér og glotti svo hræðilega til mín. Um leið ln-eiddi ég faðminn og hrópaði á þig. Siðan bef ég verið svo hrædd um, að eitthvað hafi komið fyrir þig, en nú er allt gott aftur. Nú ertu hjá mér.“ Og hún þrýsti sér að mér. „Geturðu fyrirgefið mér, ástin mín, allt, sem ég lief gert, allt vantraust- ið? En ég fæ bara ekki skilið, að þú skulir heldur taka lionum en mér.“ „Æ, þú ert flón, elskan mín. Við skulum gleyma þessu,“ sagði bún og kyssti mig. „En ég skal segja þér gleðitíðindi. Pósturinn kom áðan með hringina okkar. Við getum selt þá upp um jólin.“ VORIÐ EFTIR tókum við við búi í Illíð. Eitt það fyrsta, sem ég gerði, var að hlaða varnargarða á Reitar- húsahjallanum, til þess að litlu ang- arnir, sem spruttu þar upp af fræ-

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.