Fréttablaðið - 02.01.2010, Blaðsíða 70
58 2. janúar 2010 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT
2. að lokum, 6. mannþvaga, 8. hald,
9. borg, 11. ung, 12. flandur, 14.
húrra, 16. fisk, 17. tilvist, 18. tæki, 20.
gyltu, 21. formóðir.
LÓÐRÉTT
1. nauðsyn, 3. pot, 4. glettnislegur, 5.
móðuþykkni, 7. blóm, 10. meiðsli, 13.
óvild, 15. óviljugur, 16. svif, 19. 950.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. loks, 6. ös, 8. tak, 9. róm,
11. ný, 12. flakk, 14. bravó, 16. ál, 17.
líf, 18. tól, 20. sú, 21. amma.
LÓÐRÉTT: 1. þörf, 3. ot, 4. kankvís, 5.
ský, 7. sólblóm, 10. mar, 13. kal, 15.
ófús, 16. áta, 19. lm.
Ari Eldjárn
Aldur: 28 ára.
Starf: Textasmiður og uppistandari.
Stjörnumerki: Meyja.
Fjölskylda: Á kærustu sem heitir
Linda Guðrún Karlsdóttir.
Búseta: Bý í Vesturbænum.
Ari gaf út plötuna Grín skrín á dögunum
og er meðlimur í uppistandshópnum
Mið-Ísland.
„Við vorum með nokkrar evrur til að koma
okkur á hótelið og það kemur einhver arabi
með gulltönn. Hann segir okkur að fara inn
í bílinn.“
Svona hefst ferðasaga Sigurðar Ásgeirs
Ásgeirssonar, söngvara Ultra Mega Techno-
bandsins Stefáns, sem kom fram í Amster-
dam á dögunum. Lestarkerfið var stopp
vegna mikillar snjókomu og Sigurður og
félagar stigu því upp í leigubíl sem reynd-
ist vera vafasamur. „Við förum inn, bílstjór-
inn læsir bílnum og segir að við þurfum að
bíða eftir kollega hans,“ segir Sigurður. „Þá
segi ég við Arnar: „Það kemur einhver gæi
inn og ef hann setur mælinn ekki í gang, þá
erum við bara dauðir.“ Svo kemur einhver
leðurjakkaklæddur durtur og sest við hlið-
ina á bílstjóranum. Hann var svona þreföld
útgáfa af hinum.“
Bíllinn fer af stað og strákarnir í hljóm-
sveitinni sitja skjálfandi af hræðslu aftur í.
Bílstjórinn og risinn spjalla saman á óskilj-
anlegu tungumáli og strákarnir velta fyrir
sér hvort þeirra hinsta stund sé runnin upp.
„Við veltum fyrir okkur hvort við ættum að
hoppa út úr bílnum og héldum að við værum
að fara að deyja þarna, í skítugum leigubíl í
Amsterdam,“ segir Sigurður. Þeim var svo
skutlað á hótelið og rukkaðir um 80 evrur
á mann. Evrurnar áttu þeir ekki þannig að
glæpamennirnir tóku það litla sem þeir áttu
og reyndu að fá þá til að taka meira út úr
hraðbanka. „Við náðum einhvern veginn að
sannfæra þá um að við værum þrír mestu
fávitar jarðkringlunnar og ættum engan
pening,“ segir Sigurður. „Við flúðum svo inn
á hótel og þeir létu sig hverfa.“
Ekki tók svo skárra við, en þegar strák-
arnir fóru út af hótelinu og ætluðu að skoða
borgina hópaðist fólk saman og grýtti í þá
snjóboltum. „Þeir kölluðu okkur helvítis
túrista og sögðu okkur að fara heim,“ segir
Sigurður. - afb
Rændir og grýttir í Amsterdam
DARRAÐARDANS Í AMSTERDAM Meðlimir Ultra Mega
Technobandsins Stefáns voru rændir í Amsterdam.
Tanja Sif Árnadóttir hannar
skyrtuskraut fyrir herra og konur
undir heitinu tANJA fOREVER.
Skrautið er fáanlegt í Herrafata-
verslun Kormáks og Skjaldar.
„Ég byrjaði á þessu fyrir ekki
svo löngu síðan. Ég var í hönnun-
arhópi og við ætluðum upphaflega
að hanna barnaföt en ákváðum
fyrst að byrja á því að hanna aðra
hluti til að fjármagna framleiðslu
barnafatanna.
Hinar stelpurnar fóru að hanna
skart og ég skyrtuskrautið,“
segir Tanja Sif, sem er viðskipta-
og markaðsfræðingur að mennt.
Skyrtuskrautið fæst í einni stærð
sem passar á flestar skyrtur og
tekur Tanja Sif fram að skrautið
passi einnig á sumar barnaskyrt-
ur. „Það er svolítil kreppuhugsun
á bak við þetta. Skrautið passar á
hvaða skyrtu sem er og þess vegna
er hægt að taka venjulega skyrtu
og dressa hana upp.“
Aðspurð segist Tanja Sif hafa
mikinn áhuga á hönnun á herra-
fatnaði og segist sjálf gjarnan
klæðast skyrtum með bindi.
Skyrtuskrautið seldist upp
stuttu fyrir jól en ný sending af
skyrtuskrauti var væntanleg í
Herrafataverslun Kormáks og
Skjaldar þegar blaðamaður náði
tali af Tönju Sif. „Ég á enn eftir að
ná jafnvægi í framleiðslu og eft-
irspurn. Saumastofan sem ég hef
notast við annar þessu ekki því
það er svo mikið að gera hjá henni.
Mig vantar eiginlega saumakonu
sem er tilbúin til að taka þetta að
sér, tilboð óskast,“ segir Tanja Sif
og hlær. Í framtíðinni hyggst hún
koma með fleiri vörur, bæði flík-
ur og fylgihluti, á markaðinn og
nýja skyrtuskrautið verði líflegra
og litaglaðara. - sm
Hannaði skyrtuskraut sem kreppulausn
SKRAUTLEGT Tanja Sif Árnadóttir hannar
skemmtilegt skyrtuskraut bæði fyrir
herra og konur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN MYND
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 182 milljónir króna.
2 Djúpa laugin.
3 Reading.
„Ég byrjaði nú bara daginn á því
að fara í golf. Við fórum fimm
félagar á Setbergs-völlinn, sóp-
uðum snjónum á undan okkur
og spiluðum með appelsínugular
kúlur. Við kláruðum fimm holur
sem verður að teljast afrek út af
fyrir sig,“ segir Gunnar Björn
Guðmundsson, leikstjóri Ára-
mótaskaupsins í ár, sem byrjaði
gamlársdag á golfvelli þetta árið.
Gunnari virðist hafa tekist vel
upp því það voru fáar sprengjur
sprengdar í nágrenni við hann á
meðan á Skaupinu stóð og almennt
virtust sprengjuóðir Íslending-
ar hafa verið seinir í gang eftir
Skaup. „Já, ég hef heyrt það úr
nokkrum áttum, að flugeldaregn-
ið hafi byrjað nokkuð seint í þeirra
hverfi og mér skilst á mér eldri og
reyndari mönnum að það sé besta
gagnrýnin.“
Sjálfur horfði Gunnar á Skaupið
í faðmi fjölskyldunnar, var heima
hjá bróður sínum og var því í nokk-
uð öruggu umhverfi, ef svo má að
orði komast. Hann segist ekki hafa
fengið nein dularfull sms-skila-
boð né farsímahringingar eftir
að Skaupinu lauk en margir höfðu
orð á því að Áramótaskaupið í ár
hefði verið nokkuð sterk ádeila á
það sem undan er gengið.
Hins vegar vakti það óskipta
athygli áhorfenda að Ásdís Rán
lék Fjallkonuna og hetjan í lokin,
sú sem hreinsar upp eftir góðær-
ispartíið á Bessastöðum, var sjálf-
ur Páll Óskar Hjálmtýsson. „Hann
kom mjög snemma inn í myndina
sem hetjan í lokin. Var eiginlega
fyrsta nafn á blað þegar við vorum
búin að setja niður fyrir okkur
söguþráðinn og hvernig Skaupið
ætti að líta út,“ segir Gunnar en
Páll brá sér í líki Michaels Jack-
son og flutti Smooth Criminal með
sínu nefi. Af öðrum þekktum sem
brá fyrir í Skaupinu þetta árið
má nefna Magna Ásgeirsson sem
mætti í mótmælin fyrir utan Hótel
Borg með mótmælaspjald merkt
nafni hljómsveitar hans.
Þótt vissulega hafi verið nokkur
kunnugleg andlit á borð við Örn
Árnason, Pálma Gestson og Ladda
í Skaupinu þetta árið þá voru einn-
ig fjölmargir nýliðar sem fólk
hefur ekki vanist að sjá. Gunnar
Björn segir það ekki hafa verið
meðvitaða ákvörðun að koma inn
með ferskt blóð. „Aðalatriðið var
að þekkta fólkið myndi þekkjast
og auðvitað hver passaði best við
hvert atriði.“ freyrgigja@frettabladid.is
GUNNAR BJÖRN: MJÖG FLJÓTT ÁKVEÐIÐ AÐ PALLI VÆRI HETJAN
FÁAR SPRENGJUR
SPRUNGU YFIR SKAUPINU
Í GÓÐUM
HÓPI
Páll Óskar var hetja
dagsins í Áramóta-
skaupinu í ár og hann
naut dyggrar aðstoðar
frá Ásdísi Rán sem
lék fjallkonuna.
Gunnar Björn
Guðmundsson,
leikstjóri Skaupsins,
segir nafn Páls hafa
komið snemma inn
í umræðuna um hver
ætti að vera hetjan í
lokin.
Aðdáendur íslenskrar
tónlistar ættu að
halda sér fast
því samkvæmt
heimildum Frétta-
blaðsins eru tón-
listarmennirnir og
slagarahöfundarnir
Einar Tönsberg, betur
þekktur sem Eberg,
og Pétur Bene-
diktsson, þekkastur
sem Pétur Ben., að vinna saman
að nýrri plötu. Þessi dúett, ef satt
er, gæti orðið ansi söluvænlegur og
liggja þeir víst undir feld með nafn
á sig. Eftir því sem Fréttablaðið
kemst næst hefur hugmyndin um
að kalla sig Einar Ben fengið ágætis
undirtektir hjá vinum og vanda-
mönnum.
Það voru margir sem
lögðu leið sína í
Engjateiginn á gaml-
árskvöld en þar bauð
nýjasta parið í lista-
heiminum, þau Elsa
María Jakobsdóttir,
menningar-
frömuður
Kast-
ljóssins,
og Þórir Snær Sigurjónsson
kvikmyndaframleiðandi gestum og
gangandi í veislu í tilefni af nýja
árinu. Margt var um manninn í
veislunni enda vinamörg bæði.
Edda Heiðrún Backman þurfti
heldur betur að sinna útvarps-
stöðvunum á gamlársdag því hún
var kjörin „maður ársins“ hjá bæði
hlustendum Rásar 2 og Bylgjunnar.
Edda er að sjálfsögðu vel
að þessum verð-
launum komin
en hún stóð fyrir
söfnunarátakinu
Á rás fyrir Grensás
sem miðaði
að því að bæta
aðstöðuna hjá
endurhæfing-
ardeildinni.
- fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI