Samtíðin - 01.12.1964, Page 20

Samtíðin - 01.12.1964, Page 20
12 samtíðin til hugar að aka hilnum. Hann haí'Si vikið úr ekilssætinu og sveipað sig á- hreiðu, og brátt var liann sofnaður eins og venja var til, þegar hann hafði fengið sér einum of mikið. Um leið og frú Margrét settist við stýrið, gat hún ekki annað en dáðst að, hve allt liafði gengið samkvæmt áætlun og vel það. MYRKRIÐ og þokan juku á umferðar- hætturnar. Allt var þvi eins og hezt varð á kosið, og frúin gat með góðri sam- vizku ekið hægt. Andrés virtist stein- sofnaður eftir andardrættinum að dæma. Og nú var bíllinn kominn inn á hættu- svæði. Hvítmálaðir steinar á vegarhrún- inni vitnuðu um það. Þeir voru með mjög heppilegu millibili. Enginn vandi var að láta vagninn renna út af veginum milli þeirra og steypast niður hengiflug- ið. Eiginmaðurinn var steinsofandi, og þau voru alein á þessum slóðum. Svo virlist sem áform frúarinnar yrði miklu auðveldara í framkvæmd en hún hafði húizt við. Vandinn var ekki ann- ar en sá að losa hemlana og stökkva síð- an út úr bílnum. Hanzkar hennar kærnu i veg fyrir að önnur fingraför en Andrés- ar sæjust á stýrinu, ef farið jTrði að rann- saka þess háttar. Hún myndi segja lög- reglunni, hvernig Andrési hefði — und- ir áhrifum víns — orðið hált á að aka eftir þessum vegi í myrkrinu, þokunni og ísingunni. Sjálf hefði hún skynjað yfirvofandi lífsháskann á síðustu stundu, og sér liefði vegna einskærrar Guðs mildi lekizt að stökkva út úr bílnum, um leið og hann rann út af veginum. Andrés veslingurinn, sem orðinn var bæði gam- all og óstyrkur, hefði hins vegar stevpzt með honum fram af vegarbrúninni nið- ur hengiflugið. Það voru sorgleg enda- lok elskulegs eiginmanns! Þegar hér var komið sögu, myndi setja að henni sáran grát, og liklega væri heppilegast, að liún félli í minni háttar yfirlit. Þeir myndu áreiðanlega trúa henni. Það höfðu þeir alltaf gert! Síðan — jjegar hún hefði komið heitt elskuð- um eiginmanninum sómasamlega í jörð- ina og hirt allar eigur lians, samkvænil erfðaskránni, myndi hún hverfa ofboð ldjóðlega af sjónarsviðinu, eins og hún var vön. Frú Margrét var ósjálfrátt tek- in að liugleiða, hvernig næsti eiginmað- ur hennar myndi nú verða til líkama og sálar. TVEIM klukkustundum seinna hafði lögreglan lokið við að semja skýrslu um hílslysið á Alpaveginum. Þeir höfðu auð- vilað grannskoðað líkið i bílflakinu. Eng- inn vafi lék á því, að frúin hafði látizt undir eins. Höfuðkúpan var brotin. En hendurnar voru enn krepptar um stýrið» og af því drógu þeir þá ályktun, að sU látna hefði ætlað að forða slysi á síðustu stundu. Vitanlega flökraði j)að ekki að Andrési að hafa orð á ])ví, að hann hefði rotað konu sina með skrúflykli, áður en hann sendi bílinn fram af vegarbrúninni og að vegna erfðaskrár frúarinnar vrði hann nú einni milljón franka ríkari eu hann hafði verið, áður en hann lagð1 upp í ferðina til systur sinnar, sem uð vísu hafði aldrei verið til! Margrét lians liafði gert honum alh þetta svo ótrúlega auðvelt, því blessað1 liann minningu hennar af heilum hug- En ef til vill hafði þetta tekizt Vvo vel* af því að liún var 7unda konan hans. Talan 7 hafði nefnilega alltaf reynzt hon- um einstök happatala. 4 SÉRHVERT heimili þarfnast fjölbreylls og skemmtilegs heimiiisblaðs. SAMTÍÐIN vei1’ ir lesendum sínum þá þjónustu. 4 MUNIÐ að tilkynna SAMTÍÐINNI und' ir eins bústaðaskipti til að forðast vanski •

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.