Samtíðin - 01.12.1964, Blaðsíða 24

Samtíðin - 01.12.1964, Blaðsíða 24
16 SAMTÍÐIN gera eitthvað til að lækna liann. „Kannske þetta sé hara draumur?“ hugsaði liann. „Ætli ég vakni nú ekki?“ Ilann lieyrði dauft þrusk, þegar glugga- tjöldin voru dregin frá til að hleypa inn morgunbirtunni, og síðan birtust tveir menn við rúmið. Þeir stóðu andartak þögulir, en síðan sagði annar Jæja, ætli það sé þá ekki hezt við byrjum?“ „Þetta er myndarmaður,“ sagði liinn. „Það verður ágætt að eiga við hann.“ „Mér er nú alls ekki sama, hvernig skrokkarnir líta út. Mér hýður við þess- um feitu, gömlu kerlingum,“ sagði sá fyrri. „Skrítið er nú þetta,“ anzaði hinn, „og mér er alveg sama um allt slíkt. Það eru helzt hörnin, sem einhver áhrif liafa á mig.“ Þessu fáránlega samtali lauk með því, að sængurföturium var svijit ofan af honum og fleygt á gólfið. Styrkar hendur færðu liann úr náttfötunum, og liann heyrði gutl í vatni. Þegar honum var velt á liina hliðina, sá hann gegnum örmjóa rifuna milli augnhvarmanna, hvar livít, löng og mjó líkkista stóð við rúmið lians. „Guð minn góður,“ hugsaði hann gagn- tekinn skelfingu, „ég er þá dáinn, og þetta eru menn frá útfararstjóranum." Þegar mennirnir héldu rösklega og liiklaust áfram við þetta ógeðfellda starf, reyndi hann af öllum mætti að hreyfa sig, þó að ekki væri nema einn vöðva í líkamanum. „Ég er ekki dauður!“ öskraði hann með sjálfum sér. „Það er eins og hver önnur fjarstæða. Ég veit það bezt sjálf- ur.“ Þarna bölsótaðist hann altekinn skelf- ingu og lieyrði varla, livað mönnunum fór á milli. En áður en varði, lá hann i líkkistunni. „Hann er hara alls ekki dauðalegur,“ sagði annar mannanna. „Maður skyldi ekki halda, að þetta væri lik, eða livað sýnist þér?“ „Ég er ekki dauður, er ekki dauður!“ æpti hann án þess að koma upp orði. Eu þegar lokið var látið á kistuna, varð liann enn gripinn ægilegri hræðslu. „Þið megið þetta ekki,“ hað hann í þögn. „Ég kafna — ég dey!“ Svo fann liann, að kistunni var lyft og að hún var horin niður stiga. Þá varð honum hugsað til útfararinnar og að liann liafði látið þess getið í erfðaskrá sinni, að hann vildi láta hrenna lík sitt. Honum var ekki ljóst, hve lengi hann liafði legið í kistunni, en þar sem glei'- rúða var í lokinu yfir andliti hans, gat hann fremur áttað sig á umhverfi sínu. Hann sá nokkur andlit, sem lulu niður að kistunni, fyrst andlit konu sinnar, gráthólgið; síðan andlit sonar síns og tengdadóttur. Hann sá ekki betur en tengdadóttirin væri ánægð á svipinn. „Bölvuð tófan!“ liugsaði hann. „Sú verð- ur vonsvdkin, þegar hún kemst að raun um, að ég er alls ekki dauður.“ Þannig birtist hvert andlitið af öðru a rúðunni. Ýmist voru þau sorgbitin, ótta- slegin eða forvitin — jafnvel öfundsjúk. Þannig virtist honum svipurinn á nieð- eiganda hans. Síðan var glerrúðan a kistunni þakin hlómum, og allt fótatak þagnaði skyndilega, ])vi að presturinn hóf að flytja ræðu sína, hárri, stillilegi’i röddu. Hann laulc henni með þvi að til- nefna sáhn, sem liann óskaði, að sunginn yrSi- T. „ Maðurinn í kistunni hugsaði: „Nu vero ég að láta til skarar skríða. Útförinni ei' að verða lokið, og ég má ekki verða of seinn.“ Hann reyndi af öllum mætti að opna augun, og honum tókst það, en þa gat hann ekkert séð vegna hlómanna, sem huldu glerið í kistulokinu. IJann varð þess einnig var, að hann gat dreg-

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.