Fréttablaðið - 07.01.2010, Page 4
4 7. janúar 2010 FIMMTUDAGUR
OLÍS ÁLFHEIMUM, OLÍS GULLINBRÚ, OLÍS MJÓDD, OLÍS NORÐLINGAHOLTI, OLÍS
AKRANESI, OLÍS AKUREYRI, OLÍS BORGARNESI, OLÍS KEFLAVÍK, OLÍS REYÐARFIRÐI
O
lís
e
r l
ey
fis
ha
fi
Q
ui
zn
os
á
Ís
la
nd
i
TB
W
A\
RE
YK
JA
V
ÍK
\
S
ÍA
890kr.
BÁTUR MÁNAÐARINS,
PEPSI, SNAKK & SMÁKAKA
Að síðustu var tekist á um það hvort upp-
lýsingarnar sem endurupptakan byggðist á,
fundargerðir samráðshóps um fjármálastöð-
ugleika frá því sumarið 2008 og upplýsingar
sem aðrir fulltrúar í hópnum kynnu að búa
yfir, væru nýjar upplýsingar eða ekki.
Dómarinn telur að svo hafi verið þrátt fyrir
þau rök lögmanns Baldurs að FME hafi borið
að rannsaka málið með fullnægjandi hætti á
þeim sex mánuðum sem fyrsta rannsóknin
tók og að óeðlilegt sé að taka mál upp að nýju
vegna þess að rannsókn hafi áður verið ábóta-
vant.
Þá segir í úrskurðinum að eftir að málið
var tekið til úrskurðar hafi dómnum bor-
ist bréf frá Baldri þar sem athygli er vakin á
efni fréttar Fréttablaðsins, þar sem Jónas Fr.
Jónsson, fyrrverandi forstjóri FME, skýrir
fyrirkomulag skjalavörslu fundargerða sam-
ráðshópsins sem áður var nefndur. „Hér er
um að ræða atriði sem heyrir undir rannsókn
sérstaks saksóknara,“ segir dómari.
Baldur hefur einnig krafist þess að kyrr-
setningu eigna hans – sömu upphæðar og
meint svik námu – verði aflétt. Málflutn-
ingur vegna þeirrar kröfu fer fram 12.
janúar. stigur@frettabladid.is
GENGIÐ 06.01.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
233,2829
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
124,99 125,59
199,83 200,81
179,44 180,44
24,110 24,252
21,867 21,995
17,585 17,689
1,3511 1,3591
195,40 196,56
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
DÓMSMÁL Héraðsdómur hafnaði í gær kröfu
Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðu-
neytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, um að
rannsókn sérstaks saksóknara á meintum
innherjasvikum með 192 milljóna króna hlut
í Landsbankanum yrði lýst ólögmæt og hún
felld niður. Baldur seldi hlutabréfin rétt fyrir
bankahrunið.
Í úrskurðinum, sem Fréttablaðið hefur
undir höndum, kemur meðal annars fram
að Fjármálaeftirlitið hafi gert fyrirvara um
mögulega endurupptöku á máli Baldurs þegar
það tilkynnti honum í maí í fyrra að upphaf-
legri rannsókn á máli hans væri lokið.
Ein af röksemdum lögmanns Baldurs fyrir
því að málið skyldi fellt niður var sú að hann
hefði í raun verið sýknaður þegar honum var
tilkynnt um að rannsókninni væri lokið, og
því væri óheimilt að rannsaka það að nýju.
Á þetta fellst dómari ekki og segir engin
rök til þess að slík tilkynning, með fyrirvara
um mögulega endurupptöku, hafi réttaráhrif
lokadóms um sýknu í sakamáli.
Lögmaður Baldurs gagnrýndi raunar einn-
ig þennan fyrirvara í tilkynningunni, og sagði
að ekki væri stoð fyrir honum í lögum. Því er
dómari ósammála og segir að telja verði eðli-
legt að FME geri slíkan fyrirvara, jafnvel
þótt hvergi sé sérstaklega kveðið á um hann í
lögum.
Saksóknari og lögmaður Baldurs tókust
einnig á um það hvort skilyrðinu fyrir því að
taka málið upp hefði verið fullnægt. Benti lög-
maður Baldurs á að fyrst hefði eitthvað þurft
að koma til sem ógilti fyrri niðurstöðu. Á
henni hefðu með öðrum orðum þurft að vera
gallar af völdum annarra en FME. Saksóknari
benti á að svo væri ef aðili máls hefði, viljandi
eða af gáleysi, veitt rangar eða villandi upp-
lýsingar í fyrstu atrennu. Því skilyrði væri
fullnægt, enda hefði Baldur sagt ósatt um það
að hann hefði aldrei hitt stjórnendur Lands-
bankans að máli.
Dómari segir að þetta skipti í raun ekki
máli. Þegar nýjar upplýsingar bárust í málinu
í sumar hafi komið fram rökstuddur grun-
ur um saknæmt athæfi og þá hafi FME borið,
lögum samkvæmt, að vísa málinu tafarlaust
til lögreglu, í þessu tilviki sérstaks saksókn-
ara. Við þær aðstæður þurfi fyrri niðurstaða
ekki að vera ógildanleg.
Dómari hafnar kröfu Baldurs
Rannsókn á máli Baldurs Guðlaugssonar verður ekki stöðvuð. Dómari kvað upp þann úrskurð í gær. FME
gerði fyrirvara um endurupptöku þegar tilkynnt var um lok fyrri rannsóknar. Málið fer fyrir Hæstarétt.
Verjandi Baldurs lýsti því yfir fyrir dómi í
gærmorgun að úrskurðinum yrði áfrýjað til
Hæstaréttar. Það mun því fyrr en varir reyna
á það í fyrsta sinn hvort einhverjir hæsta-
réttardómarar eru vanhæfir í máli tengdu
bankahruninu.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins
telja starfsmenn sérstaks saksóknara rétt að
efast um hæfi minnst tveggja dómara í máli
Baldurs; þeirra Árna Kolbeinssonar og Jóns
Steinars Gunnlaugssonar. Báðir voru þeir í
briddsklúbbi með Baldri á árum áður, ásamt
Davíð Oddssyni. Einnig séu tengsl á milli
Baldurs og Gunnlaugs Claessens sem kunni
að gera hinn síðarnefnda vanhæfan.
Ekki er þó búist við því að þeir dómarar
sem kunna að verða umdeildir verði skipaðir
í dóminn í máli Baldurs. Komi hins vegar til
þess er líklegt að saksóknari muni mótmæla
því og krefjast þess að þeir víki.
ÞRÍR HÆSTARÉTTARDÓMARAR MÖGULEGA VANHÆFIR
ÁRNI
KOLBEINSSON
GUNNLAUGUR
CLAESSEN
JÓN STEINAR
GUNNLAUGSSON
BALDUR
GUÐLAUGS-
SON Hefur
einnig krafist
þess að kyrr-
setningu eigna
hans verði aflétt.
Málflutningur í því
máli fer fram 12.
janúar.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/ STEFÁ
N
VIÐSKIPTI Eina dæmið um pólitísk
afskipti af málefnum bankanna virð-
ist snúa að byggingu tónlistarhússins
við Reykjavíkurhöfn. Þetta upplýsti
Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri
Arion banka, í viðtali við Ingva Hrafn
Jónsson í þættinum Hrafnaþingi á
ÍNN í vikunni.
Aðspurður segir Finnur að forræði
verkefnisins um byggingu tónlist-
arhússins hafi verið hjá ráðherrum
mennta- og fjármála, en telur einingu
hafa verið um það hjá ríki og borg að
bygging hússins væri það langt komin
að halda yrði áfram með hana. Finn-
ur segir bankana hins vegar ekki hafa
viljað koma að verkefninu án þess að
fjármögnun væri tryggð. Þar hafi
ríkið hlaupið undir bagga. Aðkoma
ríkisins segir Finnur að hafi skipt
miklu máli vegna áhættuflokkunar
verkefna innan bankanna. Áhættu-
vægi verkefnisins verði minna og því
bindi það minna eigið fé bankanna en
lán til venjulegra fyrirtækja. Lands-
bankinn leiðir lánveitinguna til verk-
efnisins, en Arion banki og Íslands-
banki koma einnig að henni.
Í viðtali við Fréttablaðið í byrjun
desember sagði Finnur hafa komið
sér þægilega á óvart hversu mikinn
frið bankinn hafi fengið fyrir væng
stjórnmálanna og kvað stjórnmála-
menn jafnvel meðvitaðri en áður um
að slík afskipti væru óæskileg. - óká
TÓNLISTARHÚSIÐ Eina dæmið um
að stjórnmálamenn hafi beitt bank-
ana þrýstingi í lánveitingum eftir
hrun virðist vera vegna tónlistar-
hússins í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Pólitísk afskipti af málefnum bankanna virðast einskorðast við eitt tilvik:
Skiptu sér bara af tónlistarhúsinu
DÓMSMÁL Forseti Íslands náðaði í
desember Þjóðverja á sjötugsaldri
sem í janúar í fyrra var dæmdur
í fimm ára fangelsi fyrir að flytja
rúm 20 kíló af hassi og 1,7 kíló af
amfetamíni til Íslands. Þetta kom
fram í fréttum Ríkisútvarpsins.
Maðurinn flutti efnin til lands-
ins falin í bíl í Norrænu haustið
2008. Síðasta sumar fékk mað-
urinn heilablóðfall og dvaldi í á
annan mánuð á sjúkrahúsi. Vegna
ástands mannsins mælti náðunar-
nefnd með því að hann yrði náð-
aður. Á það var fallist. Maðurinn
er snúinn aftur til Þýskalands, en
náðuninni fylgdi endurkomubann.
- sh
Eldri Þjóðverji fékk slag:
Forseti náðaði
veikan smyglara
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
13°
2°
-7°
-2°
0°
-3°
1°
-3°
-3°
22°
1°
15°
3°
16°
-17°
-2°
14°
-3°
Á MORGUN
Vaxandi S-átt
V-til síðdegis.
LAUGARDAGUR
Strekkingur vestan-
lands, annars hægari.
2
3
1
0
-4
-4
-6
2
-1
4
-8
2
6
7
6
5
4
3
2
2
4
5
4
2
0
-4
0
6
4 4
0
3
VEÐUR FER
HLÝNANDI Það hef-
ur hlýnað heldur um
vestanvert landið frá
því sem verið hefur
og í dag má búast
við allt að sex stiga
hita við ströndina.
Á morgun dregur úr
frosti norðanlands
og á laugardag
verða víða komnar
rauðar hitatölur, síst
þó austanlands.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
SVEITARSTJÓRNIR Byggðaráð Borg-
arbyggðar hefur ákveðið að lækka
greiðslu vegna dagforeldra um 25
prósent. Er þetta hluti af sparnað-
araðgerðum.
Einnig á að grípa til mik-
ils sparnaðar í leikskólum sem
verður lokað í fimm vikur næsta
sumar. Endurskoða á reglur sem
gilda um barnafjölda á hvert
stöðugildi til að spara í manna-
haldi. Fækkað verður á deildum í
leikskólum þar sem barnafjöldi og
aðstaða gefur tilefni til og draga á
úr stjórnunarkostnaði. Starfsemi í
leikskólanum í Varmalandi verður
hætt um mitt þetta ár. - gar
Sparnaður hjá Borgarbyggð:
Skera niður hjá
dagforeldrum
BORGARNES Niðurskurður bitnar á
barnafólki eins og öðrum.
LÖGREGLUMÁL Tveir karlmenn
og ein kona, öll Litháar á þrí-
tugsaldri, hafa verið úrskurð-
uð í gæsluvarðhald til 3. febrúar
vegna gruns um aðild að smygli á
þremur kílóum af metamfetamíni
og um 4.200 MDMA-töflum.
Málið er rannsakað í samvinnu
við lögregluyfirvöld í Færeyjum
og Litháen með aðkomu Europol
og tollyfirvalda á Íslandi. Tveir
menn eru í haldi í Færeyjum og
eru þeir einnig frá Litháen. Um
er að ræða grun um innflutning á
fíkniefnum sem falin voru í öku-
tæki. Efnin fundust við leit í bif-
reiðinni í Færeyjum en hún var
þá á leið til Íslands. - jss
Þrennt í gæsluvarðhaldi:
Þrjú kíló af
metamfetamíni