Fréttablaðið - 07.01.2010, Blaðsíða 20
7. janúar 2010 FIMMTUDAGUR
„Ætli ég geri bara ekki eitt-
hvað töfrandi,“ segir töfra-
maðurinn landskunni Jón
Víðis Jakobsson glettinn, beð-
inn um að lýsa fyrirætlunum
sínum í tilefni af fertugsaf-
mælinu sem er í dag.
Þótt Jón hafi ekki skipu-
lagt veisluhöld að þessu sinni
segist hann vera mikið af-
mælisbarn í sér. „Sem dæmi
um það hélt ég þrisvar sinn-
um upp á þrítugsafmæl-
ið mitt. Því er reyndar um
að kenna að íbúðin mín er
svo lítil að ég neyddist til að
bjóða vinum og vandamönn-
um í þremur hollum,“ útskýr-
ir Jón og hlær góðlátlega.
Hann bætir við að sér þyki al-
mennt gaman að gleðja aðra.
„Mér finnst til dæmis voða-
lega skemmtilegt að mæta í
afmælisveislur annarra og
galdra þá gjarnan fram úr
erminni eins og eina köku.
Það töfrabragð nýtur mikilla
vinsælda hjá veislugestum,“
segir Jón, sem hefur ekki
síður fundið þessari þörf til
að gleðja aðra farveg í starfi
sínu sem töframaður.
Jón steig fyrst fram á sjón-
arsviðið sem töframaður
fyrir tólf árum og hefur síðan
þá sýnt víða, gefið út bók og
haldið námskeið í tengslum
við töfrabrögð. Þá var hann
kjörinn fyrsti forseti Hins ís-
lenska töframannagildis. En
hvernig skyldi þessi áhugi á
töfrum vera til kominn? „Al-
gjör tilviljun réði því að ég
fór út á þessa braut,“ svar-
ar Jón. „Einhverju sinni var
ég að sýna börnum systur
minnar töfrabrögð og þau
fóru að kvarta undan van-
kunnáttu minni. Það varð til
þess að systir mín ákvað að
gefa mér töfrabragðasett í
jólagjöf með því skilyrði að
ég myndi sýna töfrabrögð
á afmælinu hennar annan í
jólum. Þegar stundin rann
upp bjóst enginn við neinu
af mér, allra síst krakkarnir,
og þannig tókst mér að koma
öllum á óvart. Síðan þá hef
ég ekki getað hætt,“ minnist
hann og brosir.
Segja má að Jón hafi helg-
að börnum stóran hluta ævi
sinnar, því auk námskeiða-
halds hefur hann unnið á frí-
stundaheimilinu Álfheimum
í Hólabrekkuskóla síðustu
fimm ár. Þar af sem verk-
efnastjóri á annað ár og líkar
vel. „Þetta er frábært því ég
fæ að vera barn allan dag-
inn,“ segir hann og bætir við
að ef sá gállinn sé á honum
sýni hann börnunum nokkur
töfrabrögð.
Ýmislegt er á döfinni hjá
Jóni og þar ber hæst töfra-
sýningar og námskeiðahald
í töfrabrögðum, sem njóta að
hans sögn vaxandi vinsælda
enda eigi töfrabrögð fullt er-
indi bæði til barna og fullorð-
inna.
roald@frettabladid.is
JÓN VÍÐIS JAKOBSSON, TÖFRAMAÐUR OG VERKEFNASTJÓRI: ER FERTUGUR Í DAG
Finnst gaman að gleðja aðra
MAGNÚS MAGNÚSSON LÉST
ÞENNAN DAG.
„Það er stórkostlegt að
gleymast ekki, að eign-
ast orðstír.“
Magnús Magnússon (1929-
2007) var frægur sjón-
varpsmaður í Bretlandi,
þekktastur fyrir hlutverk
sitt sem spyrill í þættinum
Mastermind á BBC. Hann
flutti á unga aldri með for-
eldrum sínum til Skot-
lands, þar sem hann bjó
síðan mestalla ævi sína.
María Markan (1905-
1995) lagði stund á
söngnám í Berlín á árun-
um 1928-1935 og söng
á Íslandi í sumarleyfum
sínum á námsárunum.
María hélt fyrstu sjálf-
stæðu tónleika sína í
Berlín árið 1935 og þótti
takast einstaklega vel, en
hún var talin hafa mikið
raddsvið, var með háa
sópranrödd en gat náð
djúpum tónum. Eftir tónleikana í
Berlín söng María meðal annars í
óperuhúsum í Þýskalandi og Kaup-
mannahöfn.
Þegar seinni heimsstyrjöld-
in skall á flutti María til Ástralíu
og síðar Kanada.
María var ráðin við
Metropolitanóp-
eruna í New York
1941-1942 og varð
fyrst Íslendinga til
að koma þar fram í
aðalhlutverki. Það
gerðist einmitt á
þessum degi árið
1942 en þá steig
María á svið í hlut-
verki greifafrúarinn-
ar í Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart.
María var búsett í Bandaríkjun-
um til ársins 1955 en flutti þá til Ís-
lands. María bjó eftir það í Reykja-
vík og kenndi söng.
Heimild: www.fjallkonan.is
ÞETTA GERÐIST: 7. JANÚAR 1942
María í Metropolitan
ABRAKADABRA! Jón Víðis sýnir börnum á frístundaheimilinu Álfheim-
um töfrabrögð við góðar undirtektir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
timamot@frettabladid.is
Innilegar þakkir færum við þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför ástkærs eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
Halldórs Friðrikssonar
Smáratúni 7, Keflavík.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki heima-
hjúkrunar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
Sigríður Vilhelmsdóttir
Óla Björk Halldórsdóttir
Sigríður Björg Halldórsdóttir Kristján Sigurpálsson
Sævar Halldórsson Susie Ström
Þórunn María Halldórsdóttir Axel Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum innilega samúð og vinarhug
við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
Guðrúnar Elísabetar
Þórðardóttur
Starfsfólki Droplaugarstaða þökkum við ómetanlega
umönnun. Með nýárskveðjum
Þórdís Árnadóttir Ingvar Birgir Friðleifsson
Þórður Árnason Vilborg Oddsdóttir
Guðrún Ingvarsdóttir, Hildur Ingvarsdóttir, Árný
Ingvarsdóttir, Elísabet Þórðardóttir.
Elskulegur maðurinn minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Þorvaldur Steingrímsson
fiðluleikari
sem lést sunnudaginn 27. desember, verður jarðsung-
inn frá Fríkirkjunni í Reykjavík á morgun, föstudaginn
8. janúar kl. 11.00.
Jóhanna Cortes
börn, barnabörn og aðrir aðstandendur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Þóra Margrét Jónsdóttir
andaðist á Hjartadeild Landspítalans 31. desember.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
8. janúar kl. 15.00.
Baldvin Jónsson Margrét S. Björnsdóttir
Ólafur Örn Jónsson
Konráð Ingi Jónsson Anna Sigurðardóttir
Helga Þóra Jónsdóttir
Þormóður Jónsson Sigríður Garðarsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Okkar elskulegi,
Kristján Jón Jónasson
frá Múla í Þorskafirði,
lést á líknardeild Landakots 4. janúar. Útförin fer fram
frá Árbæjarkirkju föstudaginn 15. janúar kl. 13.00.
Guðbjörg M. Kristjánsdóttir
Guðmundur P. Pálsson
Ingi B. Jónasson
og fjölskyldur.
Elskulegur sonur minn, bróðir og
faðir,
Sigurgeir Snæbjörnsson
lést á Landspítalanum 4. janúar. Útförin verður
auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Snæbjörn Sigurgeirsson.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Finnbogi Vikar
Hjalla í Ölfusi,
sem lést á Hjúkrunarheimilinu Ljósheimum Selfossi
fimmtudaginn 24. desember síðastliðinn, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 8. janúar kl.
13.00.
Guðmundur K. Vikar Guðný Snorradóttir
Lilja Vikar Þorsteinn Hauksson
Erna Vikar
Unnur Vikar Friðrik Kjartansson
Sigrún Vikar Benedikt Sigurjónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför sonar okkar og bróður,
Tien Dat Tran
Fellsmúla 6, 108 Reykjavík,
sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi,
laugardaginn 26. desember. Bálförin hefur farið
fram að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til lækna og
starfsfólks á dagdeild blóð- og krabbameinslækninga
Landspítalans við Hringbraut og starfsfólks á líknar-
deild Landspítalans í Kópavogi. Þeim sem vilja minnast
hans er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Khac Thanh Tran
Thi Bich Thuy Nguyen
Hoai Nam Duc Tran
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristín Bjarnadóttir
Hrafnistu í Reykjavík, áður til heimilis
að Óðinsgötu 15 Reykjavík,
lést sunnudaginn 3. janúar. Útförin fer fram frá
Dómkirkjunni mánudaginn 11. janúar kl. 13.00.
Gunnar Þór Geirsson Anna Guðrún Hafsteinsdóttir
Bjarni Geirsson Þuríður Björnsdóttir
Jón Hróbjartsson Margrét Dan Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.