Fréttablaðið - 07.01.2010, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2010
Þær eru ófáar stjörnurnar sem
hafa spreytt sig á fatahönnun og
það skal engan undra enda tísku-
og skemmtanaiðnaðurinn nátengd-
ur. Af þessum stjörnum hafa þó
nokkrar sett á markað sérstakar
íþróttalínur.
Rapparinn Sean John Combs
sem margir þekkja betur undir
nafninu P. Diddy hafði lengi gælt
við tískuiðnaðinn og lét langþráð-
an draum verða að veruleika árið
1998 þegar hann kom á fót íþrótta-
línu undir nafninu Sean John.
Línan fékk góðar viðtökur og hlaut
P. Diddy meðal annars CFDA-verð-
launin sem besti fatahönnuður árs-
ins 2004.
Söng- og leikkonan Jennifer
Lopez setti á fót eigin fata- og
fylgihlutalínu undir nafninu JLO
árið 2001. Tveimur árum seinna
bjó hún til sérstaka íþróttalínu
sem fékk nafnið Sweetface. Hún
seldist vel allt fram til ársins
2006 en var lögð niður síðastlið-
ið vor þó JLO-línan sé enn í sölu
víða um heim.
Árið 2004 gerðu Adidas og
breski fatahönnuðurinn Stella
McCartney með sér samn-
ing og hefur McCartney hann-
að kvenlínu fyrir íþróttavöru-
framleiðandann síðan. Í henni
má sjá pífur, rykkingar og ný-
stárleg efni og þykir hún hafa
komið með ferskar áherslur
inn í íþróttavöruframleiðsluna.
Madonna tók höndum saman
við H&M 2007. Hún hannaði
kjóla, nærföt og íþróttaföt undir
merkinu M by Madonna og þótt
línan hafi verið tekin úr sölu þá
þykir henni hafa tekist vel til. - ve
Stjörnurnar hanna
Nike leggur áherslu á léttan
íþróttafatnað sem heldur svita
frá líkamanum.
Léttleiki einkennir æfingalín-
una frá Nike en fötin eru öll úr
svokölluð Dry Fit-efni sem hefur
þann eiginleika að halda svita frá
líkamanum. „Þannig haldast flík-
urnar ferskari og þær klístrast
síður sem gerir úthald til æfinga
betra,“ segir Drífa Pálín Geirs,
svæðisstjóri Nike hjá Útilíf.
Hún segir mikilvægt að eiga
góða skó, buxur og bol þegar um
er að ræða tímaíþróttir eins og
leikfimi og jóga og að vörurnar
frá Nike séu léttar og skemmti-
legar. Þá segir hún mikilvægt
fyrir konur að eiga góðan íþrótta-
topp. „Í æfingalínunni okkar erum
við með topp sem kemur alltaf
aftur og aftur en hann heldur vel
við bakið og er með góðri teygju
undir brjóstunum. Toppurinn helst
kyrr og er þannig úr garði gerð-
ur að enginn núningur verður
undir brjóstunum eins og oft vill
verða.“
Drífa segir buxurnar marg-
ar með svokölluðu Loose Fit-sniði
en þær eru ekki eins þröngar og
íþróttabuxur hafa verið að undan-
förnu. Þær eiga það þó langflestar
sameiginlegt að vera svartar. „Það
er helst að fólk taki gráar bómull-
arbuxur en þær eru ekki hugsað-
ar til íþróttaiðkunar heldur frek-
ar heima við.“
Drífa hefur starfað hjá Nike um
margra ára skeið og beðin um að
greina frá ríkjandi tískustraumum
segist hún verða vör við að bolir
og peysur séu að síkka og það eigi
til dæmis við í nýju jógalínunni
frá Nike. „Mér finnst það jákvæð
þróun enda þá hægt að teygja sig
og beygja án þess að vera með bert
á milli.“
Drífa segist hafa orðið vör við
vakningu í hreyfingu og útivist
að undanförnu og er ekki frá því
að kreppan hafi með það að gera.
„Það hefur orðið sprenging í hlaup-
um enda um að ræða ódýra hreyf-
ingu auk þess sem hjólreiðar tóku
mikinn kipp í sumar. Á þessum
árstíma er síðan allt vitlaust að
gera eins og venjulega og fólk að
kaupa hentug föt í ræktina.“
Léttleikinn í fyrirrúmi
Stella McCartney
hannar kvenleg
íþróttaföt með pífum
og rykkingum og þykir
hafa ferskar áherslur.
Jennifer Lopez
hannaði íþrótta- og
götufatnað undir
nafninu Sweetface um
nokkurra ára skeið.
Drífa segir íþróttafólk kaupa Dry fit Nike-föt í miklum mæli enda haldist þau óbreytt
þrátt fyrir mikla notkun og þvotta. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sean John
Combs hannaði
eigin íþróttafata-
línu árið 1998.
Nike æfingatoppur
7.990 kr.
kemur í svörtu og hvítu
Nike stuttermabolur
8.490 kr.
kemur í svörtu og bleiku
Nike „Be True“
Loose Fit æfingabuxur
10.990 kr.
fást aðeins í svörtu
Nike
Aerobic-skór
„Steady VI Leather“
12.590 kr.
fást aðeins í svörtu