Fréttablaðið - 07.01.2010, Síða 33
FIMMTUDAGUR 7. janúar 2010 3
Að vanda hófust útsöl-ur í París í gær, fyrsta miðvikudag eftir ára-mót. Það verður þó að
segjast eins og er að sífellt fleiri
þjófstarta útsölunum hér í landi
en þær eru bundnar í lög um
verslun og viðskipti og einung-
is heimilar í fimm vikur vetur
og sumar. Fjöldi verslana hefur
boðið upp á alls konar afslátt frá
því á laugardag og sumar þeirra
seldu hreinlega á útsöluverði
til valinna viðskiptavina, settu
peningana eða ávísanirnar á
góðan stað og slógu svo öllu inn
í kassann í gær. Svo er það netið
sem er í stöðugri sókn og tekur
sífellt stærri hluta af verslun-
inni.
Stóru verslunarhúsin í París
leggja mikið upp úr að útsöl-
ur takist vel og í gær var einn
allra stærsti verslunardag-
ur ársins hjá þeim ef ekki sá
stærsti. Vetrarvörur eru dýrari
en sumarvörurnar og því vega
vetrarútsölur þyngra í velt-
unni. Sum verslunarhúsin voru
opnuð klukkan hálf átta með því
að bjóða upp á kaffi og croiss-
ant en aðrir létu sér nægja að
byrja klukkan átta. Eitt er þó
öllum sammerkt, hvort sem um
er að ræða smáverslanir, stóru
magasínin eins og Printemps og
Galeries Lafayette eða tískuhús,
alltof mikið er eftir af vetrar-
vörunum. Einstaklega hlýtt og
gott haust var heldur ekki til
að örva verslun og nú þarf að
bjarga því sem bjargað verður.
Meira að segja gríðarlegir vetr-
arkuldar sem nú leika lands-
menn grátt og hafa gert með
hléum frá því fyrir jól, hafa
ekki dugað til þess að bjarga
árinu.
Efnahagskreppan hefur
einnig breytt hegðun fólks,
til dæmis eru nú margir sem
kaupa sem minnst fyrir jól til
þess að geta gert góð kaup í
janúar. Aðrir óska sér peninga-
gjafa um jól til þess að geta gert
sér dagamun nú. Endalausir
tilboð, svo og hinar svokölluðu
fljótandi útsölur sem voru fyrir
nokkru innleiddar hér og gefa
verslunum tækifæri til að halda
útsölu í eina viku utan venju-
legs útsölutíma, til að losa sig
við vörur sem ekki ganga, rugla
menn einnig í ríminu. Afleið-
ingar af þessu eru þær að nú
veit fólk varla hvenær það á að
versla, af ótta við að kaupa kött-
inn í sekknum ef það lætur slag
standa. Tilboð og afsláttur hlýt-
ur að vera á næsta leiti og því sé
betra að bíða.
En það spilar fleira inn í. Til
að koma franska bílaiðnaðinum
til hjálpar setti ríkisstjórnin á
sérstakan tímabundinn skatta-
afslátt til þeirra sem endurnýj-
uðu bíla sína á síðasta ári. Nú
er þessi afsláttur ekki lengur í
boði og fataframleiðendur von-
ast eftir því að 2010 verði ár
fataskápsins en ekki bílskúrs-
ins eins og 2009 og að nú takist
að snúa við átta prósenta sam-
drætti síðasta árs. Jafnvel búast
kaupmenn jafnvel við upp-
sveiflu.
Ég óska lesendum og lands-
mönnum heilla og hamingju á
nýju ári.
bergb75@free.fr
Fimm vikna veisla
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París Tískuspekúlantar tískutímaritsins
Vogue hafa kveðið upp sinn dóm
um best klæddu konur ársins 2009
og þykja tuttugu fönguleg fljóð bera
af. Þar á meðal er að finna kunnug-
leg nöfn eins og Kate Moss, Siennu
Miller, Söruh Jessicu Parker, Angelinu
Jolie og Michelle Obama.
Fleiri smekkkonur komast þó á
blað og má þar nefna Audrey Tautou
sem fór með hlutverk Coco Chanel
í myndinni Coco Before Chanel og
Diane Kruger sem þótti skarta fögrum
klæðum við kynningu á mynd sinni
Inglourious Basterds. Þá
þykir Anna Friel sem
fer með hlutverk Holly
Golightly í Breakfast
at Tiffany’s hafa afar
góðan smekk. - ve
Bera af í klæðaburði
Á LISTA VOGUE YFIR BEST KLÆDDU
KONUR ÁRSINS 2009 ER AÐ FINNA
GAMALKUNNUG NÖFN Í BLAND VIÐ NÝ.
Diane
Kruger þótti
smart við
kynningu á
Inglourious
Basterds.
Audrey Tautou
leikur tískuhönn-
uðinn margróm-
aða Coco Chanel.
30-70%
afsláttur
Kjólar áður 14990
Nú 7990
Kápur og úlpur
áður 19990
Nú 11990
Peysur áður 7990
Nú 3990
ÚTSALA
Laugavegi 53 • s. 552 3737
Opið mánudag til föstudag 10-18, laugardag 10-17
Upplýsingar og skráning í síma 899 5020 eða á eig@heima.is
Námskeiðsgjald kr. 4.400,-
Ný námskeið að hefjast í janúar - Nánari upplýsingar á www.heilsuhusid.is
Staðsetning: Heilsuhúsið Lágmúla kl. 19:30 - 22:00
INGA KRISTJÁNSDÓTTIR, næringarþerapisti D.E.T.
leiðir ykkur í allan sannleikann um hversu auðvelt það er
í raun að breyta mataræðinu til batnaðar!
Miðvikudaginn........13. janúar
þriðjudagurinn........19. janúar
þriðjudagurinn........26. janúar
DAVÍÐ KRISTINSSON næringar- og lífsstílsþerapisti heldur
fyrirlestur í Heilsuhúsinu um 30 daga hreinsun á mataræði.
Fimmtudaginn ..........14. janúar Heilsuhúsið Akureyri kl. 20 - 22
Miðvikudaginn..........20. janúar Heilsuhúsið Lágmúla kl. 20 - 22
Miðvikudaginn..........27. janúar Heilsuhúsið Lágmúla kl. 20 - 22
Farið verður með einföldum hætti yfir:
• Hvernig við getum náð stjórn á blóðsykrinum!
• Hvernig verðum við okkur úti um þau næringarefni sem líkaminn þarfnast!
• Hvernig við getum auðveldlega öðlast meiri orku, vellíðan og heilbrigði!
Viltu breyta mataræðinu
til batnaðar, en veist ekki
hvar þú átt að byrja?
Um 400 manns hafa lokið 30 daga hreinsun með mjög góðum árangri!
Fyrirlesturinn hjálpar þér í átt að bættum lífsstíl. Þú nærð jafnvel af þér 5 -10 kg.
á 30 dögum. Þú kemst að því hvað í mataræðinu er að valda þér vandamálum
eins og orkuleysi, þreytu, blóðsykursvandamálum, gigt, sykursýki,
vöðvabólgu o.fl. auk þess sem líkami þinn, fæðuval og neysla
kemst í betra jafnvægi. Aðgangseyrir kr. 6.900 kr.
Glæsileg handbók fylgir með öllum upplýsingum sem þarf!
Upplýsingar og skráning í síma 864 9155 eða davidkr@simnet.is
Nánari upplýsingar á vefslóðinni www.heilsuthjalfun.is
30 daga hreinsun á mataræði
Frábært tækifæri til að byrja núna að
axla ábyrgð á eigin heilsu!
ÚTSALA
Auglýsingasími
– Mest lesið