Fréttablaðið - 07.01.2010, Qupperneq 34
7. 4
Hinum unga hollenska hönnuði Maarten
Baas hlaust sá heiður nýverið að vera út-
nefndur hönnuður ársins 2009 á hönnunar-
sýningu í Miami.
Hollenski hönnuðurinn Maarten Baas
var valinn hönnuður ársins 2009 á
hönnunarsýningunni Design Miami
sem haldin var í Miami í Bandaríkjun-
um í byrjun desember.
Baas er aðeins 31 árs og hefur
ungur aldur hans vakið nokkurt umtal
enda algengara að þeir sem hljóti
nafnbótina hönnuður ársins séu á
mun virðulegri aldri. Í mati dóm-
nefndar kom fram að þrátt fyrir
ungan aldur hefði Baas breytt gangi
hönnunarsögunnar og að verk hans
hefðu breytt viðhorfi safnara til nútíma-
hönnunar.
Baas vakti fyrst athygli fyrir safn muna
undir nafninu Smoke en þeir voru útskrift-
arverkefni hans. Þrír af munum hans úr
Smoke línunni hafa verið framleiddir af
hinu fræga hönnunar-
fyrirtæki MOOOI.
Þeim sem vilja
kynna sér nánar
verk Baas er bent
á síðuna www.
maartenbaas.com.
Snakkið sem ber heitið „Slim
chips“ er í raun ætt þunnt frauð,
með bragði og því nær algerlega
hitaeiningasnautt. Án þess að vita
hvort hægt væri að framleiða slík
matvæli þróaði Hafsteinn Júlíus-
son vöruhönnuður til að byrja með
hugmyndina að snakkinu.
Hugmyndin virðist þó ætla að
eiga upp á pallborðið því nú þegar
hefur pöntun borist frá Rússlandi
þar sem pantaðir voru um 100.000
pakkar af Slim chips. Hafsteinn
sá sér því þann kostinn vænstan
að reyna að koma hugmyndinni í
framleiðslu og svara eftirspurn-
um sem einnig hafa borist frá
Mið-Austurlöndum, Kína og fleiri
löndum.
„Maður reynir auðvitað að vera
með báða fætur á jörðinni og taka
öllu með fyrirvara en þessi áhugi
fyrir snakkinu hefur samt orðið til
þess að ég hef farið í þróun
á vörunni með íslensku
fyrirtæki. Ég var ekki
viss einu sinni hvort hægt
væri að framleiða eitthvað
af þessu tagi,“ segir Haf-
steinn.
Þróun á vörunni stend-
ur yfir og Hafsteinn
vonast til að hún geti
farið á markað fljót-
lega. „Ég var frekar
hissa á þessum mikla
áhuga fyrir snakk-
inu en hugmyndin
kviknaði upphaf-
lega þegar ég fór
að spá í snakk og
nammi og af hverju fólk
sækir í að borða það, því oftar en
ekki er maður ekki svangur þegar
maður nartar í þetta. Ég komst
að þeirri niðurstöðu að slíkt væri
líklega að einhverju leyti
félagsleg athöfn.
Þannig gæti papp-
ír, eða einhvers
konar frauð, allt eins
dugað til slíks áts en
frauðið sem snætt er
er hitað í ofni. Þetta er
svolítið fyndið, að vera
kannski að fara út í það
að flytja út fulla gáma af
lofti.“ julia@frettabladid.is
Risapöntun á íslensku
snakki frá Rússlandi
Skartgripir Hafsteins Júlíussonar hafa vakið heimsathygli undanfarið, og greinar birst í dagblöðum og
tímaritum. Snakk, sem er í þróun en þó ekki enn komið á markað, virðist ekki síður ætla að slá í gegn.
Hafsteinn Júlíusson vöruhönnuður hefur verið búsettur á Ítalíu síðastliðin tvö ár og lagt stund á mastersnám í Mílanó. Hann
útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands vorið 2008. Skrifað hefur verið um hönnun hans í tímarit og dagblöð víða um heim, nú síðast
í breska dagblaðinu Telegraph. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Snakkið Slim chips verður
framleitt hér heima en efniviður-
inn í það kemur frá Frakklandi.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Undir fínu hvítu keramiki leynist
rósótt mynstur ef marka má
listakonuna Beccy Ridsdel.
Bollastell bresku leirlistakonunnar
Beccy Ridsdel er líklega af svolít-
ið öðrum toga en þau sem til eru
á heimilum ömmu og Önnu gömlu
frænku.
Ridsdel fetar veg milli klassískr-
ar keramiklistar og skurðstofu-
tækni en diskar hennar og bollar
eru á þann veg að hún virðist hafa
flett ofan af þeim efsta laginu til
að sýna skrautlegt mynstur.
Nánar má skoða list Ridsdel á vef-
síðunni www.beccyridsdel.co.uk/
Afhjúpuð keramik
Fallegur rósóttur diskur.
SAFNBÚÐ MOMA er líkt og flestar verslanir hér
heima með útsölu nú í janúar. Þeir sem eru ekki á
ferðalagi um New York þennan mánuðinn geta gert góð kaup
á völdum hlutum í netverslun safnsins: www.momastore.org
Sófi úr línunni Smoke.
Tréstóll í líki
gömlu plast-
garðstólanna.
Baas valinn hönnuður ársins
Ljósakróna úr
Smoke-línunni.
Fæstir nota diskarekka
í dag en margir slíkir
eru til á heimilum enda
hafa þeir gengið í arf
frá ömmu og afa. Slíka
rekka er til dæmis hægt
að breyta í bókahillu í
barnaherberginu.
www.martha-
stewart.com
Hulunni svipt af diski.
Enskuskóli Erlu Ara
Auglýsir enskunám í Hafnarfi rði fyrir
byrjendur og lengra komna með áherslu á tal
Verð 24 þúsund fyrir 10 vikur (20 kennslust) - Styrkt af starfsmenntunarsjóðum
Bjóðum einnig námsferðir til Englands fyrir fullorðna og unglinga
Þú ert velkomin í heimsókn og tekur ákvörðun
eftir fyrsta tíma hvort þú viljir taka þátt!
enskafyriralla.is
Skráning stendur yfi r í síma 891 7576 og erlaara@simnet.is
“teg. 62304 - glæsilegur í BC
skálum á kr. 3.950,- buxur
í stíl kr. 1.950,-”
“teg. 21255 - mjúkur og flottur í
BCD skálum á kr. 3.950,- buxur
í stíl kr. 1.950,-”