Fréttablaðið - 09.01.2010, Blaðsíða 74
42 9. janúar 2010 LAUGARDAGUR
OKKUR
LANGAR Í
…
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Anna Margrét Björnsson
Frístundakor t
Markmið okkar er að gefa sem flestum
tækifæri til að stunda tónlistarnám því
tónlist er stór hluti af lífi okkar og veitir
ómælda gleði og ánægju .
Nú gefst þér tækifæri til þess að stunda
skemmtilegt tónlistarnám - Allir eru
velkomnir, byrjendur sem lengra
komnir, ungir og aldnir.”
Tónlistarnám
Ástvaldur Traustason
skólastjóri Tónheima
Upplýsingar og skráning á tonheimar.is
og í síma 846 8888
Slagverk
Lagasmíðar
Rafmagnsgítar
Kassagítar
Píanó
Djasspíanó
Vorönn hefst 18. janúar
Tónheimar - Fákafeni 9 - tonheimar@tonheimar.is
”
Breski hönnuðurinn Luella Bartley hefur lengi blandað saman áhrif-
um úr rokksögu fyrri áratuga við hönnun sína. Næsta sumar er
engin undantekning en þá færist hún aftur til fortíðar í beep-bop og
rokkabillí og sendi stúlkur niður tískupallinn í dásamlega sykur-
sætum kokkteilkjólum, þröngum hálfsíðum „capri“-buxum, „fift-
ís“-legum blússum og til að kóróna þetta allt saman voru fyrirsæt-
ur með svalan svartan augnskugga og uppsett hár. Pastellitir í bland
við rokk og ról eru það sem koma skal í vor samkvæmt Luellu.
- amb
STELPULEG HÖNNUN FRÁ LUELLA BARTLEY:
Brjóstsykursætt
fyrir sumarið
DOPPÓTT
Ævintýralegur
froðukenndur
hvítur kjóll
með svörtum
doppum.
SVART Sætur rokkabillíkjóll með rauðum
rósum.
Einhvers staðar byrjaði þessi undarlega tíska. Konur á ljósmyndum
með fýlusvip sem stara, oft hoknar og vannærðar, framan í mynda-
vélina. Það er ekki töff að brosa. Nei, nei, auðvitað er ekkert alltaf
töff að brosa, ég samþykki það. Fallegt Colg-
ate-bros og rokk og ról eiga víst litla samleið.
Rokktöffarar síðustu áratuga hefðu sennilega
ekki verið jafn svalir ef þeir hefðu brosað gleitt
á plötu umslögunum. Bob Dylan og Lou Reed
eiga að vera alvarlegir á myndum, því tónlist
er alvarlegt stöff. En samt hugsaði ég út í þetta
um daginn þegar ég fattaði að flestar myndir
sem konur kjósa að setja af sjálfum sér á ver-
aldarvefinn eru enn og aftur þessar yfirgengi-
lega fýlulegu myndir þar sem þær eru með
gervilegan stút á munninum og líta framan í
myndavélina eins og þær hati ljósmyndarann.
Og þessi fýlusvipur er ekkert einskorðaður við
ljósmyndir. Ég minnist þess að þegar ég átti
heima í París þá stóðu frönsku píurnar iðulega í
þröngu gallabuxunum sínum og leðurjakkanum
með sígarettu í annarri hendi og stórfenglegan fýlusvip á vör. Skand-
inavísku stelpurnar fengu plús í kladdann fyrir það eitt að meika það
að tala við annað fólk og brosa. Þessi fýlutíska er samt ekkert á undan-
haldi. Hún sést víða á börum bæjarins þar sem stúlkur eru svo ofur-
svalar að þær standa með stút á vör og horfa út undan sér á annað fólk
eins og þær séu yfir alla hafnar. En stelpur, nú er vetur, það er snjór
úti og kalt, það er janúarmánuður, og lífið er nógu þunglyndislegt
fyrir. Það er nefnilega ótrúlegt hvað fallegt bros getur gerbreytt ásýnd
hverrar manneskju. Bros er eitthvað sem við mannkynið eigum ein,
eitthvað sem við höfum þróað með okkur í milljónir ára til að gleðja
hvert annað og gefa ánægju okkar til kynna. Dýrin geta jú ekki brosað
(nema kannski kettir en það er álitamál). Ég held að það gefi augaleið
að það þarf engu að bæta í fataskápinn núna í janúar en fallega hirtu
hári, ljómandi frísklegri húð og góða skapinu. Það eina sem skiptir
nefnilega máli, eins og góður maður sagði, er að vera hress.
Bros er besti fylgihluturinn
EKKI HRESS Karen O úr
Yeah Yeah Yeah‘s með
töffaralegan stút.
… þetta svala íslenska verð-
launadagatal þar sem hver
dagur er rifinn af á gamla
mátann. Fæst í safnbúð
landnámssýningarinnar,
Aðalstræti.
> WILLIAMSON MEÐ HERRALÍNU
Breski hönnuðurinn Matthew Williamson verð-
ur með eigin herralínu fyrir vor og sumar 2010.
Línan samanstendur af aðsniðnum peysum úr
kasmírull í fjörlegum litum og mynstrum, silki-
treflum og bróderuðum stuttermabolum. Fötin
eru svo gullfalleg að konur eiga eflaust eftir að
kaupa þau líka.
… æðislega tösku til að lífga
upp á janúarmánuð frá Orna
Kiely. Fæst í Kisunni.
… dúndurgott andlitskrem með nær-
ingarefnum úr sveppum sem ættu að
hressa vetrarhúðina við. Frá Origins.
SMART Fallegur
hvítur kokkteilkjóll
með svartri slaufu.
FIFTÍS Fölblár
kjóll með slaufu
og gul hárslaufa
í stíl.
ROKKAÐ Flott-
ar hnébuxur
við mynstraða
skyrtu.