Fréttablaðið - 09.01.2010, Blaðsíða 80
48 9. janúar 2010 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
Handboltaparið Einar Jónsson, þjálfari kvennaliðs Fram, og Kristín
Jóhanna Clausen, fyrirliði Stjörnuliðsins, eiga von á
barni um miðjan júlí. Af þeim sökum mun Kristín
ekki spila meira með meisturum Stjörnunnar í
vetur.
Stjarnan og Fram hafa háð hatramma baráttu
um titilinn síðustu ár þar sem Einar hefur
ítrekað mátt lúta í gras fyrir sambýliskonunni.
Lét hún hafa eftir sér að Einar yrði aldrei
Íslandsmeistari á meðan hún
væri enn að spila.
„Tækifærið fyrir hann er þá
væntanlega núna,“ segir Kristín
létt. „Þetta er eina leiðin fyrir hann að verða
meistari en ég er samt ekkert viss um að honum
takist það. Bestu liðin eru það jöfn.“
Silfurmaðurinn Einar segir að vissulega vænk-
ist hagur Framliðsins við það að Stjarnan missi
Kristínu. „Hún er einn mikilvægasti maður liðsins,“
segir Einar. Þrátt fyrir óléttuna spilaði Kristín í deildabikarnum milli
jóla og nýárs en þá mættust Fram og Stjarnan í úrslit-
um. Fram hafði betur aldrei þessu vant.
„Það var rosalega fúlt að tapa þeim leik enda
í fyrsta skipti sem ég tapa fyrir Einari. Það er afar
fúlt að vera ekki lengur með 100 prósenta árangur
gegn honum. Ég var nú samt ólétt í leiknum
þannig að það er spurning hvort þessi leikur eigi að
teljast með. Ég gat náttúrlega ekkert beitt mér af
fullum krafti,“ segir Kristín en af hverju ákvað
hún að spila leikinn?
„Ég er bara svo mikil keppnismanneskja.
Ég ræddi þetta auðvitað við þjálfarann en
daginn fyrir leik ákvað ég bara að vera með
en passaði mig eðlilega. Þetta er bara svo
gaman að ég gat ekki sleppt leiknum,“
sagði Kristín sem þarf nú að fylgjast
með síðari hluta Íslandsmótsins af
bekknum.
EINAR OG KRISTÍN EIGA VON Á BARNI: EINAR Á ÞVÍ LOKS MÖGULEIKA Á AÐ VERÐA ÍSLANDSMEISTARI SEGIR KRISTÍN
Þetta er eina leiðin fyrir hann að verða meistari
FÓTBOLTI Þegar Kára Árnasyni var
tilkynnt með sms-skilaboðum í
sumar að hann væri ekki lengur
velkominn á æfingar með AGF
í Danmörku átti hann ekki von á
því að fáeinum mánuðum síðar
væri hann kominn í lykilhlutverk
hjá liði í ensku B-deildinni. Það
varð engu að síður raunin en Kári
hefur slegið í gegn með Plymouth
í vetur. Hann skrifaði í vikunni
undir nýjan samning við félagið
sem gildir til 2012.
Fleira hefur einnig breyst hjá
Kára. Allan sinn feril í Svíþjóð
og Danmörku hefur hann spilað
sem miðvallarleikmaður en er nú
að blómstra í hlutverki miðvarðar
hjá Plymouth.
„Ég hef þó fengið að heyra reglu-
lega á ferlinum að ég sé betri varn-
armaður en miðjumaður. Siggi
Jóns sagði mér það á sínum tíma
og líka þjálfari í Svíþjóð,“ segir
Kári við Fréttablaðið en Sigurður
Jónsson var þjálfari Kára hjá Vík-
ingi á sínum tíma – áður en hann
hélt utan í atvinnumennskuna.
„Mér var svo af og til hent í vörn-
ina og vonað það besta. En núna er
loksins verið að kenna mér að spila
þessa stöðu og þá hefur þetta geng-
ið mjög vel,“ bætir hann við.
Kári fór til Svíþjóðar fyrir tíma-
bilið 2005 og lék með Djurgården
til 2006. Þá skipti hann yfir til
Danmerkur þar sem hann lék með
bæði AGF og Esbjerg.
Um mitt síðasta keppnistíma-
bil var Kári lánaður frá AGF til
Esbjerg en vegna meiðsla náði
hann lítið að spila með síðarnefnda
liðinu. Hann hafði lent upp á kant
við nýjan þjálfara hjá AGF og þeir
skiptust á skotum í fjölmiðlum.
„Ég sagði einfaldlega að ég
skildi ekki af hverju gamli þjálf-
arinn var rekinn enda hafði hann
byggt upp liðið frá grunni. Nýi
þjálfarinn var bara með einhver
smábarnalæti á móti og svaraði
ég því aldrei,“ segir Kári.
„Svo eftir sumarfríið hafði ég
samband við AGF og spurði hve-
nær ég ætti að mæta til æfinga hjá
félaginu enda var ég samnings-
bundinn því í eitt ár til viðbótar.
Tveimur dögum síðar var mér til-
kynnt með sms-skilaboðum að það
væri líklegast best að ég myndi
ekki mæta.“
Það var þá sem Kári fór til
reynslu hjá Plymouth sem ákvað
að bjóða honum samning. „AGF
ætlaði svo allt í einu að setja verð-
miða á mig þegar Plymouth sýndi
mér áhuga. Ég sagði að það kæmi
bara einfaldlega ekki til greina
og sem betur fer fór það mál ekki
lengra.“ Kári segir að sér líði vel í
Plymouth. „Ég hef sennilega aldrei
spilað betur á ferlinum. Það er líka
svo einfalt að ég er ánægður svo
lengi sem ég fæ að spila. Ég sé því
í raun enga ástæðu fyrir því að
flytja mig.“
Plymouth er enn í fallsæti en
virðist vera á uppleið. Liðið hefur
að minnsta kosti ekki tapað í þrem-
ur leikjum í röð og Kári skoraði til
að mynda eitt mark í 4-1 sigri á
Reading á dögunum.
„Hvert stig er fljótt að telja enda
þéttur pakki í neðri hluta deildar-
innar. Það var því kærkomið að
komast á svona fínt skrið,“ segir
Kári.
Landsliðsferill Kára telur sextán
leiki en hann hefur enn ekki hlotið
náð fyrir augum Ólafs Jóhannes-
sonar, núverandi landsliðsþjálfara.
„Ég hef ekki einu sinni talað við
hann og það er töluvert langt síðan
ég hætti að gera mér einhverjar
vonir um landsliðið,“ segir Kári.
„Auðvitað var það alltaf aðalmark-
miðið að komast í landsliðið en það
er ekki lengur í fremsta forgangi,
eins sorglegt og það er. Ef ég verð
valinn er það mjög jákvætt en ég
efast stórlega um að það gerist.“
eirikur@frettabladid.is
Fyrst núna að læra að spila í vörn
Kári Árnason hefur slegið í gegn með Plymouth í ensku B-deildinni og skrifaði hann í vikunni undir nýjan
samning við félagið. Hann efast þó stórlega um að hann verði valinn aftur í íslenska landsliðið á næstunni.
LANDSLIÐSMAÐURINN KÁRI Landsliðið er ekki lengur í forgangi, segir Kári Árnason.
NORDIC PHOTOS/GETTY
KÖRFUBOLTI Jakob Örn Sigurðar-
son og félagar í Sundsvall urðu
á þriðjudagskvöldið fyrsta liðið
síðan í október til þess að vinna
toppliðið í sænsku úrvalsdeildinni
þegar liðið vann glæsilegan 91-79
sigur á heimavelli Norrköping.
Sundsvall náði þar með að
minnka forskot Norrköping í fjög-
ur stig. Norrköping var fyrir leik-
inn búið að vinna þrettán deildar-
leiki í röð en það átti fá svör við
stórleik íslenska bakvarðarins.
Sundsvall-liðið lék þarna án
tveggja sænskra landsliðsmanna,
leikstjórnandans Mats Levin og
skyttunnar Johans Jeansson.
Jakob var með 28 stig og 5 stoð-
sendingar í sigrinum á toppliðinu
og fékk mikið hrós í leikslok frá
báðum þjálfurum liðanna. „Jakob
var mjög góður. Hann mætti
þarna sænska landsliðsbakverð-
inum og átti leikinn,“ sagði Peter
Öqvist, þjálfari Sundsvall, við
sænska blaðið í Sundsvall.
Jakob hefur spilað frábærlega í
fjögurra leikja sigurgöngu Sunds-
vall og hefur skorað 23,5 stig og
hitti úr 52,4 prósentum skota
sinna í sigrunum á Solna,
Gothia, 08 Stockholm og
Norrköping.
Jakob hefur leikið sérstak-
lega vel í síðustu tveimur
leikjum þar sem liðið var
án sænska landsliðsba-
kvarðarins
Mats Levin
sem er
nýbúinn
að semja
við ítalska
liðið Casale. Jakob og Levin
mynduðu frábært bakvarðapar
en Jakob hefur sýnt enn frekar
styrk sinn þegar hann hefur þurft
að leiða liðið sjálfur.
Jakob hefur heldur betur tekið
upp hanskann fyrir Levin en
hann hefur skorað 51 stig og
gefið 11 stoðsendingar í þess-
um tveimur leikjum liðsins
síðan Levin stökk á tilboð-
ið frá þessu ítalska b-
deildarliði.
Það sem meira er,
hann hefur aðeins
tapað tveimur bolt-
um í þessum leikj-
um þrátt fyrir að
pressan hafi verið
meiri á honum að
búa eitthvað til
fyrir Sundsvall-
liðið. - óój
Jakob Örn Sigurðarson hefur leikið vel í forföllum lykilmanna Sundsvall:
Í stuði í sigurgöngu Sundsvall
SPILAR VEL Jakob Örn
Sigurðarson. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖRFUBOLTI Nick Bradford átti
að lenda á Íslandi í gærkvöldi
og fara á fund Njarðvíkinga til
ganga frá samningi um að klára
tímabilið í Ljónagryfjunni.
„Þegar maðurinn er ekki búinn
að skrifa undir og ekki mættur
til landsins þá er ekkert öruggt.
Hann þarf ekki annað en að
missa af einni vél eða eitthvert
annað lið að krækja í hann,“ sagði
Sigurður Ingimundarson, þjálf-
ari Njarðvíkur, í gær en hann var
þá búinn að vera í sambandi við
Bradford.
Magnús Þór Gunnarsson,
núverandi leikmaður Njarðvík-
ur, spilaði með Bradford hjá
Keflavík. „Hann er ekki að fara
að vinna neitt fyrir okkur. Hann
kemur ekki og skorar 40 stig og
þá vinnum við. Á meðan Íslend-
ingarnir spila eins og þeir hafa
verið að gera þá vinnum við með
hann í fararbroddi,“ sagði Magn-
ús og bætti við:
„Ég spilaði mjög vel bæði á
Íslandi og í Evrópukeppninni
með Nick Bradford og ég hlakka
mikið til ef hann kemur. Hann
kemur með þessa extra stæla
sem vantar,“ sagði Magnús. - óój
Bradford á leið í Njarðvík:
Átti að lenda í
gærkvöldi
FRÁBÆR Nick Bradford fagnar titli með
Sigurði Ingimundarsyni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
> KKÍ hefur ekki efni á því að senda lands-
liðin í Evrópukeppni næstu tvö árin
Körfuknattleikssamband Íslands tilkynnti það í gær að
sambandið hefði ekki efni á að senda landsliðin sín til
keppni í Evrópukeppninni eins og undanfarin ár. Karlaliðið
hefur tekið þátt í Evrópukeppninni nánast sleitulaust frá
1975 og stelpurnar hafa verið með frá 2006. A-landslið
Íslands í karla og kvennaflokki munu því ekki
taka þátt í EM fyrr en í fyrsta lagi haustið
2012. Landsliðin hafa þó ekki verið lögð
niður því þau munu eftir sem áður taka
þátt í Norðurlandamótunum sem eru
haldin á fjögurra ára fresti. Karlaliðið
spilar á Norðurlandamóti í Svíþjóð
á þessu ári.
Suðræn sveifl a er skemmtileg líkamsrækt fyrir konur á öllum aldri.
Námskeiðið byggist upp á mjúkri upphitun, latin dönsum eins og
Cha Cha, Jive, Salsa og fl ., kviðæfi ngum og góðri slökun. Hver tími er
60 mínútur og kennt er tvisvar í viku á þriðjudögum og fi mmtudögum
kl. 17:30 í leikfi missal Hvassaleitisskóla. Einnig verður kennt á
miðvikudögum kl. 19:00 og laugardögum kl. 09:30 í Stúdíói Sóleyjar
Jóhannsdóttur, Mekka Spa. Kennari er Birgitta Sveinbjörnsdóttir
danskennari.
Skráning er hafi n á námskeiðið
sem hefst þriðjudaginn 12.janúar.
Upplýsingar og skráning í s:899-8669.