Fréttablaðið - 14.01.2010, Blaðsíða 2
2 14. janúar 2010 FIMMTUDAGUR
Bjarni, væri ekki nær að þú
byðir þig fram í sveitarfélagi í
Kraganum?
„Það skírist vonandi giftusamlega.“
Séra Bjarni Karlsson, sóknarprestur í
Laugarneskirkju, hefur ákveðið að sækj-
ast eftir sæti á lista Samfylkingarinnar í
Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnar-
kosningar.
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
STJÓRNMÁL Búist er við að formenn
stjórnmálaflokkanna hittist að nýju
í dag til að ræða mögulegar samn-
ingaviðræður um Icesave.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins bíða oddvitar ríkisstjórn-
arinnar viðbragða frá stjórnarand-
stöðunni. Þeim þykir standa upp á
hana að lýsa yfir þeim samnings-
markmiðum sem hún vill stefna
að, um hvað verði hægt að ná sam-
stöðu í viðræðum við Breta og
Hollendinga. Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, formaður Framsókn-
arflokksins, og Bjarni Benedikts-
son, formaður Sjálfstæðisflokksins,
sögðu báðir á mánudag ótímabært
að nefna samningsmarkmið. „Við
höfum ekki farið út í nein smáatriði
samningsins á meðan það hefur ekki
einu sinni legið fyrir að stjórnin telji
að það þurfi að fá nýjan samning,“
sagði Sigmundur Davíð í gærkvöld.
Hann gagnrýndi ráðherra ríkis-
stjórnarinnar fyrir yfirlýsingar síð-
ustu daga. „Ég hafði skilið það sem
svo að menn ætluðu að sleppa öllum
yfirlýsingum á meðan verið væri að
finna einhverja lausn.“
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins verður ekki farið í viðræð-
ur við Hollendinga og Breta nema
fyrir liggi samkomulag stjórn-
málaflokkanna um markmið. Þá
verði tryggt að slíkur samningur
haldi. Fyrr séu viðsemjendur ekki
til viðræðna um nýja samninga og
fyrr sé ekki ástæða fyrir ráðherra
til að setjast yfir málið. Ráðherr-
ar og embættismenn hafa þó hitt
breska og hollenska kollega sína
undanfarið. - kóp
Formenn stjórnmálaflokkanna hafa ekki hist aftur til að ræða nýjar leiðir í Icesave-málinu:
Stjórnin bíður viðbragða andstöðunnar
FUNDAÐ Formenn stjórnmálaflokkanna hittust á mánudag ásamt Þráni Bertelssyni
og Birgittu Jónsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
NEYTENDUR Fólk sem flyst úr landi
getur ekki tekið bílinn með sér
hvíli á honum lán. Talsmaður
neytenda talar um átthagafjötra.
Viðkomandi þurfa annaðhvort að
rifta samningi, með tilheyrandi
afföllum, eða borga af bíl hérlend-
is sem þau geta ekki notað.
Gísli Tryggvason, talsmaður
neytenda, segist reglulega fá
ábendingar vegna þessa. Bíla-
lánafyrirtæki hafi stundum synj-
að sölu með tilheyrandi erfið-
leikum. „Þau hafa þá bæði viljað
halda kökunni og borða hana,“
segir Gísli.
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra
bifreiðaeigenda, segir þetta tölu-
vert vandamál. Bíllinn sé fastur
hér, enda skráður á lánafyrirtæk-
in, og oft geti verið um töluverð-
ar fjárhæðir að ræða. „Fólk þarf
þá að sæta afarkostum á riftun
samnings eða hafa bílinn hér og
borga af honum.“
Gísli og Runólfur eru sammála
um að ekki sé nægilega komið
til móts við fólk vegna bílalána.
Gísli segir mikilvægt að leysa úr
ágreiningi um lögmæti gengis-
lána. Skjótari úrlausnir þurfi en
héraðsdóm og best sé að skipa
stjórnskipaðan og lögþvingað-
an eða samningsbundinn gerðar-
dóm.
„Ráðherra segir fólki hins vegar
ítrekað að fara í héraðsdóm. Það
er sérkennilegt að sömu stjórn-
völd og vilja ekki beina Bretum
og Hollendingum í héraðsdóm vísi
einstaklingum þangað. Í báðum
tilvikum er um réttarágreining að
ræða. Hér eru þúsundir mála sem
eru, ef ekki samkynja, þá keimlík
og væri hægt að leysa úr hratt og
örugglega með gerðardómi.“
Runólfur segir ófært að oftar
en ekki hverfi eignarmyndun út í
veður og vind. Hann nefnir nýlegt
dæmi þar sem eigandi sat uppi
með skuld en engan bíl.
„Bíllinn var verðmetinn á 1.800
þúsund, en lánið stóð í 3 milljón-
um. Keyrt var á bílinn á bílastæði
og hann gjöreyðilagður. Eftir
standa 1.200 þúsund krónur í eft-
irstöðvar, en enginn bíll.“
Töluverð viðskipti voru í haust
með notaða bíla, að sögn Runólfs,
en frost sé á innflutningi nýrra
bíla. Nú sé svo komið að nýlega
notaða bíla skorti.
kolbeinn@frettabladid.is
Bílalánin fjötra fólk
sem flytur úr landi
Fólk sem flyst úr landi getur ekki tekið bílinn með ef á honum hvíla lán. Það
þarf að borga af honum hér heima eða rifta samningum. Dæmi er um að keyrt
hafi verið á bíl á stæði og eigandi setið eftir með milljónaskuld en ónýtan bíl.
RUNÓLFUR
ÓLAFSSON
Á LEIÐ ÚR LANDI Fjöldi bíla hefur verið fluttur úr landi eftir að bílalánafyrirtæki hafa
tekið þá yfir vegna vanskila. Fólk sem flytur úr landi hefur lent í erfiðleikum skuldi
það mikið af bílunum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
GÍSLI
TRYGGVASON
VIÐSKIPTI Ragnar Z. Guðjónsson er hættur sem
sparisjóðsstjóri Byrs og hefur Jón Finnbogason,
forstöðumaður lögfræðisviðs sparisjóðsins, tekið
við starfinu. Ragnar hefur verið í leyfi frá störf-
um frá því í nóvemberlok vegna rannsóknar sér-
staks saksóknara á málefnum Byrs og eignar-
haldsfélagsins Exeter Holding.
Í tilkynningu um málið frá Byr segir að Ragnar
hafi sagt upp störfum og að stjórn bankans hafi
ekki gert við hann sérstakan starfslokasamning.
Ragnar hefur stöðu sakbornings í rannsókn
sérstaks saksóknara. Greint var frá því í fréttum
Stöðvar 2 að hann hafi þurft að dúsa í fangaklefa
yfir nótt eftir að hann var handtekinn í nóvember
þegar húsleitir fóru fram vegna málsins.
Rannsóknin snýr að kaupum Exeter Holding á
stofnfjárbréfum í Byr fyrir lán frá MP Banka.
Bréfin höfðu meðal annars verið í eigu eignar-
haldsfélags Ragnars, sem og stjórnarmanna í
Byr, þeirra á meðal Jóns Þorsteins Jónssonar,
fyrrverandi stjórnarformanns. Jón Þorsteinn
gisti einnig fangaklefa eftir handtöku.
Hvorki náðist í Ragnar né Jón Finnbogason
í gær. Stjórnarformaður bankans, Guðmundur
Geir Gunnarsson, svaraði ekki heldur
skilaboðum. - sh
Sakborningur í rannsókn sérstaks saksóknara segir upp sem sparisjóðsstjóri:
Ragnar Z. hættur hjá Byr
GISTU Í FANGAKLEFA Stöð 2 sagði frá því í vikunni að Ragnar
hefði þurft að gista í fangaklefa vegna rannsóknar sérstaks
saksóknara. Vinstra megin á myndinni er Jón Þorsteinn Jóns-
son, sem einnig gisti í steininum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
EFNAHAGSMÁL Þýska hagkerfið
dróst saman um fimm prósent
í fyrra, samkvæmt tölum hag-
stofunnar þar í landi sem birtar
voru í gær. Samdráttur sem þessi
hefur ekki sést í Þýskalandi
síðan í seinni heimsstyrjöldinni á
síðustu öld.
Þetta er mun snarpari sam-
dráttur en hagfræðingar höfðu
almennt reiknað með, að sögn
Bloomberg-fréttastofunnar, sem
hefur eftir Nick Kounis, aðalhag-
fræðingi hjá Fortis Bank í Hol-
landi, að vonbrigða gæti með nið-
urstöðuna á fjórða ársfjórðungi
í fyrra enda sýni hagvaxtartöl-
urnar að efnahagsbatinn í þessu
stærsta hagkerfi Evrópusam-
bandsins muni láta bíða eftir sér.
- jab
Efnahagslífið í Þýskalandi:
Beðið eftir
efnahagsbata
SORGMÆDDUR KANSLARI Ríkisstjórn
Angelu Merkel, kanslara Þýskalands,
hefur mokað 85 milljörðum evra, jafn-
virði fimmtán þúsund milljarða króna,
inn í hagkerfið til að koma því út úr
kreppunni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLUMÁL Tveir voru hand-
teknir vegna hnífstungu í Þórð-
arsveig í Grafarholti í gær. Að
því er kom fram á visir.is hlaut
maður sem var stunginn sár á
hendi og var það samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglunni á höf-
uðborgarsvæðinu. Kom fram að
gert hafi verið að sárum manns-
ins á slysadeild.
Hefur visir.is eftir íbúa í hús-
inu þar sem árásin var gerð að
honum og konu hans hafi verið
brugðið vegna árásarinnar. Þau
ætluðu að finna sér aðra íbúð.
„Þetta er búið að fara versnandi í
þessari blokk. Það er alltaf verra
og verra fólk að flytja inn,“ hafði
visir.is eftir manninum sem ekki
vildi láta nafns síns getið. - gar
Maður stunginn í Grafarholti:
Par vill burt úr
ofbeldisblokk
HAÍTÍ Gústaf Bjarnason, fyrr-
verandi landsliðsmaður í hand-
knattleik, er í fríi í Dóminíska
lýðveldinu, sem deilir eyjunni
Hispaníóla
með Haití.
Hann sagðist
hafa upplifað
skjálftann sem
kipp á stærð
við fjölmarga
slíka heima á
Íslandi. Heima
á hótelinu kom
í ljós í sjón-
varpsfrétt-
um að um var að ræða risa-
skjálfta, sem olli gríðarlegri
eyðileggingu í 300 km fjarlægð.
Í ferðamannabænum Puerto
Plata gengur lífið hins vegar
sinn vanagang. „Þetta hefur
ekki snert okkur á neinn hátt,
nema það sem við höfum séð í
fréttum,“ segir Gústaf.
- pg / sjá síðu 6 og 8
Gústaf Bjarnason:
Fann kipp í 300
km fjarlægð
GÚSTAF
BJARNASON
Gunnar Helgi stýrir nefnd
Forsætisráðherra hefur falið Gunnari
Helga Kristinssyni, prófessor við HÍ,
að stýra nefnd sem fjalla á um skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis um
hrunið og gera tillögur til ráðherra um
hugsanleg viðbrögð við henni.
STJÓRNSÝSLA
SPURNING DAGSINS