Fréttablaðið - 14.01.2010, Blaðsíða 42
30 14. janúar 2010 FIMMTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Hafdís Bjarnadóttir gaf
nýlega út annan diskinn
sinn, „Jæja“. Hann fylgir
eftir fyrsta disknum hennar
„Nú“, sem kom út fyrir sjö
árum.
„Þarna á milli var ég að vinna við
að kenna á gítar, svo var ég við
Listaháskólann í þrjú ár og þá fór
ég út í framhaldsnám til Danmerk-
ur í tvö ár,“ segir Hafdís en hún
spilar tónlist sína á rafmagnsgít-
ar. „Ég er búin að vera rafmagns-
gítareigandi í tuttugu ár. Reyndi
fyrst á klassískan gítar en gafst
upp eftir hálft ár. Fannst það bara
ekki nógu gaman. Ég keypti mér
gamlan garm í Rín fyrir tólf ára
afmælispeninginn minn og var svo
glamrandi á hann. Bæði upp úr
sjálfri mér og fór á námskeið. Ég
glamraði sjálf þar til ég fór í FÍH
1995 og kláraði svo það nám 2002.
Upp úr því kom fyrsti diskurinn
minn.“
Passar illa í plöturekkana
Hafdís segist hafa hlustað á alls
konar tónlist í gegnum tíðina
samhliða gítarglamrinu. „Ég var
voða mikið að hlusta á blús og
vissi hvað allir gömlu karlarnir
hétu. Það þótti dálítið spes þegar
ég var þrettán ára og allir voru
að hlusta á Mötley Crüe. Svo tók
maður góðan sprett í þessu sevent-
ís hippaæði sem var í gangi. Ég
kynntist djasstónlist og klassík
– rómantík og upp úr – og þjóð-
lagatónlist. Ég hef alltaf hlust-
að mikið á gríska þjóðlagatónlist.
Nú er ég að hlusta á plötuna með
Robert Plant og Alison Krauss, en
annars hlustar maður bara á allan
andskotann.“
Hvernig kemur þetta svo allt
fram í tónlistinni? Hvernig tónlist
ertu að spila?
„Það er erfitt að setja þetta í
rekka í plötubúð því það er erfitt
að segja akkúrat hvað þetta er.
Þetta gæti verið í flokknum
„annað“, sem var alltaf einn flokk-
urinn í Íslensku tónlistarverðlaun-
unum. Djössurunum finnst þetta
ekki vera djass og poppurunum
finnst þetta ekki vera popp. Þetta
passar hvergi inn. Þetta er annað!
Ég veit ekki hvort ég geti nokk-
uð passað betur inn. Það er voða
bras. Mér finnst bara þægilegast
að láta hugmyndaflugið ráða fyrst
og svo sjá hvað kemur út úr því.
Ég hef líka samið fyrir klassískar
sveitir og þá finnst mér mesta fjör-
ið að henda inn einhverju öðruvísi
til að hræra upp í hlutunum. Og á
sama hátt hendi ég inn einhverju
öðruvísi þegar ég er að semja fyrir
„léttari“ hljómsveitir.“
Nennir ekki að syngja
Tónlist Hafdísar er ósungin sem
sjálfkrafa gerir hana ókommersíal.
„Það er blandað á þessari nýju
plötu. Sumt er svolítið heví stöff
en annað er bara voðalega kósí
instrúmental stöff,“ segir Haf-
dís. Hún segist ekki syngja nema
í neyð. „Það voru tónleikar í haust
þar sem ég ætlaði að fá söngkonu
en svo varð hún veik á síðustu
stundu. Ég varð þá að syngja sjálf.
Ég hef alltaf litið á það að syngja
sem extra vesenis-pakka í líf mitt
því hitt er alveg nóg, að semja og
spila. Ég er líka pínu feimin við að
syngja. Þá fara allir að kalla mann
söngvara og ég þarf alltaf að vera
með trefil til að passa röddina. Ég
er ekki alveg að nenna því.“
Á Sinfóníutónleikum í kvöld
verður flutt verk Hafdísar, Þór-
dísarhyrna. Það er samið upp úr
prjónauppskrift. „Ég var að skoða
nótur eftir Ligeti. Ein blaðsíðan
leit út eins og blaðsíða í prjóna-
bók sem ég á og þá fékk ég þá hug-
mynd að þýða prjónauppskrift í
músík. Ég prjónaði í þrjá tíma og
skráði hjá mér hljóðin og taktinn.
Svo stytti ég það reyndar niður í
sex mínútur.“ drgunni@frettabladid.is
Hugmyndaflugið ræður för
ER Í FLOKKNUM „ANNAГ Hafdís Bjarnadóttir með ódýra Samick-gítarinn sinn, sem
hún hefur spilað á árum saman. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Einn þekktasti einkaspæjari sögunnar, Sherlock
Holmes, vaknar til lífsins í nýrri mynd breska leik-
stjórans Guy Ritchie. Sherlock 21.aldarinnar virðist
í fyrstu sýn eiga fátt sameiginlegt með hugmynd-
um almennings um siðprúða spæjarann
með hattinn og pípuna sem Arthur Conan
Doyle skrifaði fyrst um árið 1887 og
birtist í jólahefti tímarits-
ins Beeton. Til gamans
má geta að samkvæmt
heimsmetabók Guiness
er Sherlock Holmes sú
skáldsagnapersóna sem
oftast hefur verið kvik-
mynduð; 75 leikarar hafa
leikið hann í 211 kvikmynd-
um. Óvist er þó hvernig þeim
þekktasta, Basil Rathbone,
líst á nútímaútgáfuna
með Ameríkana í
aðalhlutverki.
Ritchie fer þá leið
að sýna Sherlock sem
óforskammaðan og
sjálfsöruggan kvenna-
bósa. Ef marka má
viðbrögð gagnrýnenda vestan hafs virðist Robert
Downey Jr. fara létt með slík hlutverk enda í góðri
æfingu frá ámóta hlutverki í Iron Man sem Tony
Stark. Sherlock og hans hundtryggi samstarfsmað-
ur, Dr. Watson, reyna í myndinni að koma í veg
fyrir illvirki hins valdamikla Blackwoods. Og njóta
til þess liðsinnis hinnar fögru Irene Adler sem
lengi hefur verið helsti keppinautur Sherlocks í
einkaspæjarageiranum.
Downey leikur eins og áður segir Sherlock en
Rachel McAdams er í hlutverki Irene og
Jude Law bregður sér í gervi Dr. Wat-
sons. Þær sögusagnir ganga nú í Holly-
wood að mynd númer tvö sé þegar
í bígerð og að sjálfur Brad Pitt
muni leika höfuðóvin Holmes, Mr.
Moriarty. - fgg
Sherlock mætir í bæinn
FER Á KOSTUM Robert Downey fer
létt með að gæða Sherlock Holmes
smá hroka og kvensemi enda í góðri
æfingu frá Iron Man-ævintýrinu. Ekki
er hins vegar vitað hvernig aðdáend-
um Basils Rathbone líkar þessa útgáfa
en hann hefur verið talinn hin sanna
ímynd spæjarans snjalla.
> Ekki missa af
Í kvöld verður seinni sýningin
á Endurómun, útskriftarverki
Leifs Þórs Þorvaldssonar úr LHÍ
vorið 2009. Sýningin þykir vera
hrein skynupplifun sem tekst
að bjaga og teygja á skyn-
færum áhorfandans um leið
og hún veitir innsýn í nýjustu
kenningar um mannsheilann.
Útskýrð verða grunnferli skynj-
unar, minninga og drauma.
Verkið er sýnt á Litla sviðinu
og hefst kl. 20.
kl. 19.30
Sigurvegarar úr einleikarakeppni
Sinfóníuhljómsveitarinnar og
Listaháskóla Íslands koma fram
á Sinfóníutónleikum í kvöld. Þeir
eru Helga Svala Sigurðardóttir
flautuleikari og Matthías Sigurðs-
son klarínettuleikari. Auk þess
munu tvö ný verk ungra tónskálda
hljóma: Þórdísarhyrna eftir Hafdísi
Bjarnadóttur og Dreymi eftir Önnu
Þorvaldsdóttur.
Á föstudaginn voru veittir styrkir úr
Listasjóði Dungal í átjánda sinn en
hann var stofnaður til minningar um
Margréti og Baldvin Pálsson Dung-
al, listunnendur og fyrstu eigendur
Pennans hf. Þrír ungir listamenn
fengu í þetta sinn styrki úr sjóðnum,
en sá hæsti að upphæð 500 þúsund
féll í skaut Baldurs Geirs Bragason-
ar. Í fréttatilkynningu segir að Bald-
ur hafi útskrifast með BA-gráðu frá
myndlistardeild Listaháskóla Íslands
árið 2001 og stundað nám við Kunst-
hochschule Berlin á árunum 2005-
2008 og hafi haldið fjölda sýninga og
tekið þátt í margs konar listverkefn-
um bæði á Íslandi og erlendis. Hina
styrkina hlutu Indíana Auðunsdóttir
og Huginn Þór Arason. - amb
Þrjú hlutu styrki
STYRKVEITING LISTASJÓÐS DUNGAL Huginn Þór Arason,
Baldur Geir Bragason og systir Indíönu Auðunsdóttur taka
við styrkjum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
1
3
5
7
9
2
4
6
8
10
Almanak Háskóla Íslands
Þorsteinn Sæmundsson
Íslandsklukkan kilja
Halldór Laxness
Garn og gaman
Jóna Svava Sigurðardóttir
Ofsi
Einar Kárason
Andsælis á auðnuhjólinu
Helgi Ingólfsson
Sjálfstætt fólk
Halldór Laxness
Loftkastalinn sem hrundi
Stieg Larsson
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT
06.01.10 – 12.01.10
Konur eiga orðið...
Salka
Almanak Þjóðvinafélagsins
Sögufélagið
Meiri hamingja
Tal Ben-Shahar