Fréttablaðið - 15.01.2010, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 15.01.2010, Blaðsíða 34
BAKÞANKAR Brynhildar Björnsdóttur 22 15. janúar 2010 FÖSTUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Það er ekki fræði- legur möguleiki á því að þú farir þína fyrstu ferð á lúxus-teppi. Þú getur byrjað fyrstu kennslustundina þína á þessari! Hvað viltu fá? Tja, hvað skal segja, við erum mjög spenntir… Hvað býður þú uppá? Aaa, matseð- ilinn? Já, en þegar ég hugsa mig betur um... Slakaðu á, þú hlýtur að þola þetta! Pabbi, má ég fá álit þitt á einu? Já, hvað er það? Æi, það skiptir ekki neinu máli, mig langar bara að vera ósam- mála einhverjum! Hvernig fannst þér nestið sem ég smurði handa þér? Það var frábært! Ég skipti á samlokunni fyrir búðinginn hans Tinna, banan- anum fyrir búðinginn hennar Petu og gulrótinni fyrir búðing- inn hennar Kötu. Og hélt eftir smákökunum! Þannig að það sem þú ert búinn að borða í dag eru þrír skammtar af búðingi og smáköku Já! Ó nei! Smákakan var samt best, ef það lætur þér líða eitthvað betur. Ég elska flugelda. Mér finnst fátt hátíð-legra en að horfa á ljósblóm springa út í marglitri dýrð, eins og einhver bregði pensli á svartan næturhimin með öllum regnbogans litum, sletti listaverkum út í heiminn sem glitra í kapp við stjörnurnar í smástund og hverfa svo sporlaust og lifa hvergi nema í minningunni. ÉG fæ ekki oft að sjá flugelda. Það er einna helst á menningarnótt sem þeir baða nætur- himininn birtu sinni, viðeigandi enda- punktur hátíðahalda sem marka upphaf haustsins með öllum sínum breytingum og spennandi upphafsreitum. ÉG sé ekki flugelda á gamlárskvöld og hef ekki gert í mörg ár. Ég sé rústrautt mengunarský leggjast yfir borgina og fela tunglið, sem á ekki séns í samkeppninni jafnvel þó að það sé fullt. ÉG sé eldglæringar inni í þessu skýi, stundum helrauðan bjarma sem ætlar aldrei að slokkna. Það er ekki séns að sjá flugelda fyrir flugeldum á gamlárskvöld. EN þó að ég sjái ekki flugeld- ana heyri ég þeim mun betur í þeim. GAMLÁRSKVÖLD í Reykjavík lætur eins og besta Beirút eða Bagdad í eyrum, á miðnætti eru sprengjudrunurnar slíkar að gæludýrum er gefið róandi og ekki er nokkur von til að heyra brandarana í skaupinu ef ætlunin er að horfa á það á plúsnum. OG þó að áramótin séu liðin, já og þrett- ándinn líka, er enn verið að sprengja flug- elda. Jafnvel þótt það sé stranglega bannað samkvæmt lögreglusamþykktum að skjóta upp flugeldum milli þrettándans og 28. desember. UM allt land eru flugeldar sem eftir er að skjóta upp og eigendurnir geta gert það klukkan fjögur aðfaranótt næsta miðviku- dags ef þeim sýnist. Eða dundað sér við að búa til úr þeim sprengiefni til að ná af sér enn fleiri augum og fingrum. ÉG lét mig hafa það að nöldra ekki yfir þessu á meðan björgunarsveitirnar fengu allan arðinn af flugeldasölu á landinu en ef þær ná rétt upp í kostnað vegna samkeppni frá einkaaðilum er mál til komið að hefta ótakmarkað aðgengi að sprengiefni, sama hvað túristum þykir þetta skemmtilegt. Finnum leið til þess að hægt sé að horfa á flugelda á gamlárskvöld í stað þess að heyra bara í þeim og kafna úr mengun. Reykjavík Beirút

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.