Samtíðin - 01.10.1939, Page 23
SAMTIÐIN
19
slóðir. Sú list virðist vera næsta tor-
lærð, að gæta þar liófs. Hættan vof-
ir tvens konar yfir, annars vegar
stirðnað og danðasljótt afturhald,
liins vegar rótlaust og stefnulaust
fálm, sem ekki veit fótum sínum
forráð. Þá reynir á eðli vort, upp-
eldið og þá fræðslu, sem vér höfum
lilotið, Iivort vér leiidum í hópi
hinna hóflausu, eða hvort vér ná-
uiri því jafnvægi, sem veitir þrek
í karlmannlegri og drengilegri
menningar- og athafnabaráttu.
Frá því á morgni mannkynsins
hafa mennirnir glímt við þetta tor-
velda viðfangsefni, sjálfrátt og ó-
sjálfrátt. Árangur þeirrar baráttu
er menning þjóðanna. Þrár og
draumar mannanna, um fullkomn-
ara og farsælla mannlíf, benda til
takmarksins, en leiðin til þess ligg-
ur i gegnum mannlegar þjáningar,
vonbrigða og ósigra. Ávinningurinn
er reynsla og þekking, en einn á-
vöxtur þess er nútimaþekking og
vísindi i sálfræði og uppeldi. Feg-
ursti og frumlegasti þáttur mann-
legs eðlis, foreldraástin, liefir fætt
af sér þessa þekkingu, ekki til þess
að bún skuli vera háleit s]ieki nokk-
urra sérfræðinga, heldur að hún
verði hin háleita og einfalda viska,
sem gangi í þjónustu mannlífsins i
vitund allra foreldra og uppalenda.
Hlutverk foreldra í uppeldi og
fræðslu, sem lífið hefir lagt þeim
á herðar, verður aldrei leyst til
fullnustu af öðrum en þeim. Upp-
eldisfræðingar og kennarar veita
þar til aðstoð sína. Hún getur verið
dýrmæt og ómetanleg, ef samvinna
og samúð ræður starfi. Öll opinber
íhlutun um uppeldi og fræðslu mið-
ar aj því, að jafna aðstöðu heim-
ilanna, að gegna þeiiVi skyldi.m sem
best, aðstoða þau og sjá um, að ekki
sé vanrækt neitt það, sem einstakl-
ingum og þjóðinni í heild er fyrir
hestu til menningarlegs þroska.
Heimilin og skólárnir í landinu
standa undir þessum vanda. Þessir
aðilar verða að taka höndum sam-
an, vinna saman, stefna i sömu átt,
fram á leið, og rikið að veita til
allan stuðning, er það má. Samfará
mikilli viðleitni til umbóta i
atvinnuháttum, þarf að fara fram
sem nákvæmust athugun á, hvern-
ig uppeldis- og fræðslustarf heim-
ila og skóla geti borið bestan ár-
angur.
Framh.
Smlöh ðílað
uáuklcmcLcL
BÓNIÐ FlNA
ER BÆJARINS BESTA BÓN