Samtíðin - 01.10.1939, Síða 25
SAMTÍÐIN
21
fyr, og liafa sum þeirra sjálfsagl
meira skáldskapargildi en allur
þorri þeirra kvæða, sem ég sakna
í bókinni.
Jón Helgason hefur orðið kunn-
astur sem skáld fyrir ýms háðkvæði
um samtíðarmenn sína. Flest þeirra
orti liann nokkuð löngn áður en
hann varð fertugur. Þessi kvæði
vöktu feiknarlega gleði og hrifn-
ingu, er hann las þau glóðvolg' úr
deiglunni á fundum í Félagi ís-
lenskra stúdenta í Ivhöfn. Nú lief-
ur liöf. tekið það ráð, að sleppa
flestum þessum kvæðum úr hók
sinni. Ekki hefur liann þó getað
stilt sig um að talca hér upp tvö
kvæði, þar sem danglað er í mann
einn, sem mig grunar, að iiöf. hafi
nokkuð milda fyrirlitningu á, þó
að hann vilji að sjálfsögðu ekki ó-
prýða hók sína með því að fara
eins langt út í þá sálma og' efni
standa til.
Jón Helgason er tengdur römm-
um höndum við æltjörðu sína, og
hann gerir miklar kröfur til þess,
að þjóð vor reyni til að vera ís-
landi og íslenskri menningn sam-
hoðin í breytni sinni. Því sárnar
honum, er sendimenn íslensku
þjóðarinnar koma til útlanda með
þeim hætti, að þeir sóa þar í ráð-
leysi fé hinnar fátæku þjóðar sinn-
ar, rétt eins og hún ætti margar
miljónir af erlendum gjaldeyri, sem
hún væri í vandræðum með að
koma í lóg, — en sinna lítt erindi
sínu. Fátækum, íslenskum náms-
manni við Eyrarsund, er orðið hef- t
ur að miða þarfir sínar við lítil j
auraráð, hlýtur að lilöskra gusu- -
ALÞÝÐUBRAUÐGERÐIN
Brauða- og kökugerð.
REYKJAVÍK.
Laugavegi 61.
Sími 1606 (3 línur).
Hafnarfirði.
Slrandgötu 32. Sími 9253.
Keflavík.
Hafnargötu 17. Simi 17.
Seljum okkar viðurkendu
brauð og kökur. Afgreiðum og
sendum heim pantanir með ör-
stutlum fyrirvara.
Hart brauð: Kringlur, skon-
rok og tvíbökur, fleiri teg.,
seljum við með lægsta verði og
sendum um alt land.
ALÞÝÐUBRAUÐGERÐIN,
Box: 873.
TIMBURVERSLU N
ÁRNA JÚNSSONAR
Hverfisgötu 54, Reykjavík
Sími 1333. Símn.: Standard
Hefir ávalt til
fyrirliggjandi
allskonar
timbur