Samtíðin - 01.10.1939, Qupperneq 33
SAMTIÐIN
29
TILKYNNING
frá húsaleigunefnd til fasteigna-
eigenda og leigutaka í Reykjavík
Samkvæml 7. gr. laga um gengisskráningu og ráðstafan-
ir í því sambandi, er á tímabilinu frá gildistöku laganna
til 14. maí 1940 óheimilt að hækka leigu eftir hús og aðr-
ar fasteignir frá því, sem goldið. og umsamið var, þegar
lijgin tóku gildi. Ennfremur er leigusala óheimilt á þessu
tímabili áð segja upp húsnæði, nema hann þurfi á því að
halda fyrir sjálfan sig eða vandamenn sína. Ágreining,
sem rísa kann út af því, hvort ákvæðum þessum sé fylgt,
skal leggja fyrir húsaleigunefnd.
Þá er skylt að leggja fyrir húsaleigunefnd til samþykktar
alla leigumála, sem gerðir eru eftir að lögin gengu í gildi.
Ennfremur ber að láta nefndina meta leigu fyrir ný hús
og húsnæði, sem ekki hefir verið leigt áður.
Nefndin er til viðtals í bæjarþingstofunni í Hegningar-
húsinu á hverjum mánudegi og miðvikudagi kl. 5—7
síðdegis.
Nefndinni sé látið í té samrit eða eftirrit leigusamninga,
er komið er með til samþykktar.
Revkjavík, 6. sept. 1939.
Iliisalciguiiefnd.