Fréttablaðið - 19.01.2010, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 19.01.2010, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 19. janúar 2010 SEND IÐ OKK UR LÍNU Fréttablaðið og Vísir hvetja lesendur til að senda línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Tekið er á móti efni á netfanginu greinar@frettabladid.is eða á vefsíðu Vísis, þar sem finna má nánari leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni. UMRÆÐAN Jón Gunnarsson svar- ar Katrínu Júlíusdóttur Katrín Júlíusdóttir staðfesti í þættinum Á Sprengisandi að þau verkefni sem iðnaðar- ráðuneytið hefur unnið að með erlendum aðilum væru öll komin í óvissu. Ég lagði henni ekki þau orð í munn eins og hún fullyrðir í Fréttablaðinu. Það ætti að vera mjög hag- kvæmt fyrir erlenda aðila að fjárfesta í íslensku atvinnu- lífi eins og staðan er í dag. Veik króna þýðir að þeir fá mikið fyrir sitt fé; vinnulaun og allur kostn- aður innanlands er hagfelldur. Það hefur ekkert með Icesave að gera hvort hér er áhugavert fyrir erlenda aðila að fjárfesta eins og ráðherrann ímyndar sér. Það eru allt aðrar ástæður sem ráða því. Á ótrúlega stuttum tíma hefur þessari ríkisstjórn tekist að glutra niður því trausti sem á mörgum árum hafði tekist vinna Íslandi sem áhugaverðu landi fyrir uppbyggingu, m.a. í orku- frekum iðnaði. Það hefur hún gert með því að einbeita sér að því að leggja sem flesta steina í götu þeirra sem hér hafa verið í framkvæmdahugleiðingum. Nærtækt er að nefna uppbygg- ingu á Bakka við Húsavík, fram- kvæmdir í Helguvík og aðgerðir Samfylkingarinnar í Hafnarfirði vegna stækkunar í Straumsvík. Allt eru þetta verkefni sem eru okkur lífsnauðsynleg til að auka framleiðslu á útflutningsvörum til að efla hagvöxt í land- inu. Skattahugmyndir ríkis stjórnarinnar hafa sýnt þessum áhugasömu aðilum það að því einu má treysta, þegar vinstri vitleysan fer af stað, að starfsumhverfi atvinnu- lífsins er stórskaðað með fjandsamlegum aðgerð- um. Það samkeppnisfor- skot sem Ísland hafði á mörg önnur lönd lá í duglegu vinnu- sömu fólki, stöðugu pólitísku umhverfi og hagfelldu skattum- hverfi. Þau atriði vógu þungt í samanburði við aðra valkosti sem buðu jafnvel upp á ódýr- ara vinnuafl og lægra orkuverð. Sá tími er því miður liðinn í bili og nú treysta hvorki erlendir né innlendir aðilar stjórnarfarinu hér, með skelfilegum afleiðing- um fyrir uppbyggingu atvinnu- lífs. Skiljanlega halda allir að sér höndum þegar svona er komið. Ráðherranum virðist fyrirmun- að að sjá þetta og fer honum þar líkt og öðrum í þeirri gæfulausu ríkisstjórn sem hún starfar í. Þar leiðir haltur blindan. Höfundur er alþingismaður. Ráðherrararaunir JÓN GUNNARSSON Á ótrúlega stuttum tíma hefur þessari ríkisstjórn tekist að glutra niður því trausti sem á mörgum árum hafði tekist vinna Íslandi sem áhugaverðu landi fyrir uppbyggingu, m.a. í orkufrekum iðnaði.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.