Samtíðin - 01.04.1943, Blaðsíða 35
SAMTlÐIN
31
ÞEIR VITRt
Nýjar bækur
~ SÖGÐU:
Sérhver bjáni getur sett sig á háan
hest og fundið að því, sem aðrir gera.
Flestir bjánar reyna líka að gagn-
rýna aðra. En það þarf heilsteypt
skapferli og stillingu til þess að skilja
aðra menn og vera fús til að fyrir-
gefa þeim. — Dale Carnegie.
Lífið er örðugt bæði fyrir karla
og konur. Það er vissulega sífelld
barátta. Það krefst mikils hugekkis
og orku. En einkum er okkur þörf
á sjálfstrausti, af því að við lifum
í veröld, sem er full af tálsnörum
og blekkingum. — Virginia Woolf.
Fyndinn er sá maður, sem hittir
naglann á höfuðið. — G. Bernard
Shaw.
Við dæmum sjálf okkur um leið
og við tökum ákvörðun um, hvort
við þorum að færast eitthvað í fang
eða ekki. Aðrir dæma okkur fyrir
verk okkar. — Longfellow.
Merkileg tækifæri skapa hvorki
hetjur né bleyður, heldur opna þau
augu fólks og sýna því, hverjir eru
afreksmenn og hverjir hugleysingj-
ar. Menn eldast í kvrrþev og verða
annað hvort sterkir eða Veikir, og
loks kemur sú stund, sem sýnir,
hvort þeir eru. — Westcott biskup.
Ekkert er jafn valt og gæfan. —
G. K. Chesterton.
Hið leyndardómsfulla í tilverunni
er það dásamlegasta, sem til er. Það
er uppspretta allrar sannrar listar og
vísinda. Sá, sem ekki viðurkennir
þetta og dáist að leyndardómum lífs-
ins, er andlega dauður. Augu hans
eru lokuð. — Albert Einstein.
Sigfús Einarsson og Páll ísólfsson:
Sálmasöngsbók til kirkju- og
heimasöngs. Ljósmyndaprentun
eftir útgáfunni 1936. Verð íb. 65
kr. og 75 kr.
Markús Kristjánsson: Tíu sönglög.
Verð 25 kr.
Dale Carnegie: Vinsældir og áhrif.
Vilhjálmur Þ. Gíslason þýddi. 216
bls. Verð ób. 29 kr„ ílj. 38 kr.
Hjalmar Söderberg: Glas læknir.
Skáldsaga. Þórarinn Guðnason ís-
lenzkaði. 168 bls. Verð ób. kr. 20.00.
W. Somerset Maugham: Hjónaband
Bertu Ley. Skáldsagá. 218 bls. Verð
ób. kr. 16,00.
Gunnar Benediktsson; Frá draunium
til dáða. Fræðslurit um þjóðfé-
lagsmál. 31 bls. Verð ób. kr. 3,00.
Kristján Einarsson frá Djúpalæk:
Frá nyrztu ströndum. Ljóð. 80 bls.
Verð ób. kr. 14,00.
Don Tracy: Til himnaríkis og heim
aftur. Skáldsaga. Ásmundur .Tóns-
son þýddi. Verð ób. kr. 17,00.
Látið okkur vita, ef yður vantar
einhverja bók og við sendum yður
Iiana gegn póstkröfu. Höfum úrval
af bókum frá Ameríku, ennfremur
alls konar ritföng og skólavörur.
BÓKABÚÐ MÁLS OG MENNINGAR
Laugavegi 19, Reykjavík
Sími 5055 Pósthólf 392