Samtíðin - 01.12.1943, Page 35
SAMTIÐIN
31
ÞEIR ¥ITRU
----_________—'SÖGBU:
Sá maður hefur öðlazt mestan
þroska í lífinu, sem hefur þjáðst mest
andlega og líkamlega og sigrazt á
þjáningum sínum. Hann mun að öðru
jöfnu hafa öðlazt dýpri skilning á til-
verunni en aðrir menn. — Dr. Harry
Emerson Fosdick.
Mennirnir elska baráttuna, en þeir
hirða of lítið um, við hvað barizt er.
Þess vegna heyja þeir stríð við sak-
laust fólk, og árangurinn er eitt hið
ægilegasta böl, sem hugsazt getur. Ef
mennirnir hættu að drepa hver ann
an og tækju einhuga upp sameigin-
lega baráttu gegn hleypidómum, fá-
fræði og fátækt, mundi Veröldin brátt
skána að miklum mun. — Edward
Hulton.
Ef minna væri um eiturgas í heim-
inum, þvrfti vafalaust færri gasgrím-
ur. — F. Murray Mune.
Þreyta stafar ekki alltaf af lasleika
né af of miklu starfi, heldur af röng-
um lifnaðarháttum. — C. T. Rae.
Fáir menn kunna þá list að eldast.
— La Rochefoucould.
Jafnskjótt og þú ert fær um að
segja, hvað þú hugsar sjálfur, í stað
þess að endurtaka það, sem aðrir hafa
sagt áður, ert þú í þann veginn að
verða merkur maður. — J. M. Barrie.
Fyndnin er bitrasta vopn veraldar-
innar. — Pamela Frankau.
Lífsspeki er í því fólgin, að menn
kunni að greina aðalatriði frá auka-
atriðum. — Lin Yutang.
Frakkar eru alvörugefnasta þjóð í
Evrópu. Þeir taka jafnvel stjórnmál
alvarlega! — Duff Cooper .
Nýjar bækur
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi:
Kvæðasafn I—III. Ný heildarút-
gáfa af ljóðum skáldsins. Verð ób.
125 kr., íb. 165 kr. og 225 kr.
Dr. Helgi Pjeturss: Sannýall. Saga
Frímanns eftir að bann fluttist á
aðra jörð og aðrir Nýalsþættir. 256
bls. Verð 20 kr. ób., 28 kr. ib.
Friðrik Á. Brekkan: Maður frá Brim-
arhólmi. Skáldsaga. 398 bls. Verð
35 kr. ób., 45 kr. íb.
Þóroddur Guðmundsson frá Sandi:
Skýjadans, smásögur, 154 bls. Verð
15 kr. ób.
Jón Þorsteinsson: Vaxtarrækt.
Kennslubók í líkamsæfingum —•
einkum fyrir börn með ýmis vaxt-
arlýti. 80 bls. Verð 10 kr. ób.
John Steinbeck: Þrúgur reiðinnar.
Fyrri bluti. Skáldsaga. Stefán
Bjarman þýddi. 378 bls. Verð 28
kr. ób., 38 kr. ib.
Jaroslav Hasek: Æfintýri góða dát-
ans Svejks II. Skáldsaga. Karl ís-
feld þýddi. 330 bls. Verð 35 kr. ób..
45 kr. íb.
Sigurður Haraldz: Nú er tréfótur
dauður. Smásögur. 152 bls. Verð
20 kr. ób.
Aldrei munu jafnmargar bækur
bafa komið á jólamarkaðinn og í ár.
Margar þeirra mnnu seljast upp á
skömmum tíma. Tryggið yður þær
bækur, sem yður langar til að eign-
ast, með því að panta þær bjá okk-
ur. Sent gegn póstkröfn um land allt.
BÓKABÚÐ MÁLS OG MENNINGAR
Laugavegi 19, Reylcjavik.
Sími 5055 — Pósthólf 392.