Fréttablaðið - 21.01.2010, Blaðsíða 44
BAKÞANKAR
Dr. Gunna
28 21. janúar 2010 FIMMTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Þótt það blasi nú kannski ekki við, þá legg ég mikla áherslu á það að vera í
stuði. Og ég er í mestu stuði ef ég fíla mig
bæði hipp og kúl. Líði mér hvorki hipp
né kúl þyrmir yfir mig þungbúið óöryggi
og deyfð – já, almennt bara helvítis aum-
ingjaskapur. Best er að vera í svo góðu
stuði að maður spretti upp á morgnana,
lagi sér rótsterkt kaffi og haldist í stuði
fram á kvöld. Þannig er best að vera til.
Þegar ekkert bítur á mann. Þegar maður
getur hnarreistur starað framan í fólk
fullur sjálfsöryggis og mikilfengleika.
Nagli. Efnagrauturinn í heilanum í
ofurjafnvægi. Maður kannski kom-
andi úr ræktinni eins og bólgnar
æðar sem slá af alefli á enninu bera
fagurt vitni. Blastar FM í botn á
fjölskyldubílnum og misskilur glott á
gellu í næsta bíl. Þá líður manni eins
og maður verði aldrei gamalmenni
og hvað þá hrikalega ókúl lík.
NÚ eru erfiðir tímar í stuðinu.
Ég sprett sjaldan á fætur, ligg
bara eins og ræfill og kuðla
sængina í heillöngum svefn-
rofunum þar til ég er næst-
um því orðinn of seinn.
Ég held þetta sé skamm-
degið, vona það alla-
vega. Nenni ekki að vera
svona endalaust. Ég náði botninum nýlega
þegar ég fór að haltra upp úr þurru. Held
ég hafi tognað í svefni – hversu glatað er
það? Við heltið bættist hljóð í öðrum skón-
um. Hittist þannig á að það var komið
risagat á sólann þar sem gutlaði vatn af
götunni. Í hverju skrefi heyrðist eins og
verið væri að stinga fingri í fulla sultu-
krukku. Haltur með aumingjahljóð. Það
er langt síðan mér hefur liðið jafn lítið
kúl.
ÞETTA átakanlega ekki-töff-ástand lag-
aðist fljótlega með nýjum skóm. Mér leið
stórkostlega þegar ég hætti smám saman
að vera haltur. Með hækkandi sól sé ég
svo fram á enn meira stuð. Ég nenni ekki
öðru en að vera bjartsýnn. Já, já, þetta
endar allt á einn veg, en fjandinn hafi að
ég velti mér upp úr því endalaust.
MAÐUR verður að hafa framtíðarsýn.
Á fimmtugsafmælisárinu sé ég mig
blasta FM í fíkniefnasalasvörtum Ford
Mustang. Ég hef náð mér í töff brúnku á
heimsreisunni. Ég er langt undir kjör-
þyngd og það er löngu búið að leysa Icesa-
ve. Dúndur góðæri er komið aftur og
þegar ég keyri fram hjá Hörpu á Hafnar-
bakkanum blasir við risaauglýsing fyrir
tónleikana mína í kvöld. Það er auðvitað
löngu uppselt.
Mikilvægi stuðsins
Því miður!
Þú færð
ekkert að
drekka hér.
Ertu að
segja að
ég sé
fullur?
Jamm!
Blind-
fullur.
Buuuull!
Nú skalt þú
hlusta...
Fáðu þér
frískt loft.
Gott að fá
þig til baka
Þurý Lilja.
Mamma ég vil fá
þitt álit á einu.
Viltu það?
Með því skilyrði að ég eigi rétt á
því að hundsa allt það sem þú
segir og síðar gera grín að þér
fyrir að hafa sagt þetta.
Þýðir það að þú
ert ekki viljug til að
taka á þig sökina
fyrir næstu mistök
mín?
Pass.
Jæja,
við
höfum
þrengt
valið.
Kominn
tími til.
Svo þetta
eru trén
sem kom-
ust í úrslit?
Nei, þessi tré
féllu úr leik.
Þessi tré
komust
í úrslit.
Það er svo
notalegt að fá
þig aftur heim
Golíat. Húsið var
svo tómt án þín.
Pantaðu
í síma
565 600
0
eða á w
ww.som
i.is
Frí heim
sending
*
TORTILLA
VEISLUBAKKI
EÐALBAKKI
LÚXUSBAKKI
DESERTBAKKI
GAMLI GÓÐI
TORTILLA OSTABAKKI
30 bitar
30 bitar
20 bitar
20 bitar
20 bitar
50 bitar
Fyrir 10 manns
Aðeins
1.900 kr.
ÁVAXTABAKKI
Fyrir 10 manns
ÁVAXTABAKKI
Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm.
*Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar.
FERSKT & ÞÆGILEGT