Samtíðin - 01.05.1958, Qupperneq 33

Samtíðin - 01.05.1958, Qupperneq 33
SAMTÍÐIN 29 MAÐUR nokkur sá, hvar mjög sæmileg föt héngu úti fyrir dyrum á fornsölu. Á verðmiðanum stóð: 700 kr. Maðurinn stakk verðmiðanum á sig, fór með fötin inn í búðina og spurði fornsalann, hvers virði þau væru. „1 mesta lagi 70 króna virði.“ ,,Þá ætla ég að kaupa þau.“ „Kaupa þau. Nú, ég hélt þér vær- uð að bjóða mér þau,“ anzaði forn- salinn undrandi.“ IRLENDINGUR spurði Syngman Rhee, forseta Kóreu, hvort Kóreu- menn væru stundum kallaðir Irlend- ingar Asíu. „Alls ekki,“ svaraði forsetinn, „en Irlendingar eru stundum kallaðir Kóreumenn Evrópu.“ HÁSKÓLAPRÖFIÐ stóð sem hæst. Stúdentinn kúgaðist afmyndaður á svipinn og néri ákaft samna hönd- unum. „Finnst yður fimmta spurningin svo erfið?“ spurði prófessorinn. „Nei, alls ekki. Það er bara svar- ið við henni, sem er svo örðugt við- fangs,“ 'anzaði stúdéntinn. FAÐIRINN: „Mér þykir leitt, að þú skulir vera neðstur í þínum bekk.“ Sonurinn: „Það skiptir engu máli, blessaður vertu. Kennararnir stagl- ast alveg á því sama, bæði efst og neðst í bekknum." „Hvaö þótti þér dásamlegast í Kaupmannahöfn ?“ „Kurteisi þjónanna. Þeir voru allt- af að rétta fram höndina.“ Kaupmenn og kaupfélög Höfum ávallt fyrirliggjandi úrval af allskonar vefnaðar- vörum og smávörum Kr. Þorvaldsson & Co. Þingholtsstræti 11 — Reykjavík

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.