Fréttablaðið - 22.01.2010, Side 28
2 föstudagur 22. janúar
helgin
MÍN
núna
✽ á döfinni um helgina
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Vallgarður Gíslason Ristjóri Anna M. Björnsson
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
É
g fæddist einmitt þann 23. jan-
úar árið 1985 og ákvað að fagna
tuttugu og fimm ára afmæli mínu
með stæl,“ segir tónlistarmaður-
inn Davíð Berndsen sem heldur útgáfu-
tónleika á Akureyri á laugardagskvöld-
ið. Plata Davíðs, Lover in the Dark, hefur
fengið mikla spilun í útvarpi og augljóst
að popp undir áhrifum níunda áratug-
arins höfðar sterkt til ungs fólks í dag.
„Ég hef alltaf sótt mikið í þesa fallegu
„eighties“-tóna,“ útskýrir Davíð sem
kallar sig Berndsen. „ Fer ekki allt enda-
laust í hringi, bráðum fer tíska tíunda
áratugarins að komast aftur í tísku,“
segir hann og hlær. En af hverju að
halda tónleika á Akureyri? „ Mamma
er frá Hrísey, pabbi er frá Akureyri og
ég fæddist þar og var þar í nokkra mán-
uði sem smábarn,“ útskýrir hann. „Ég
var búinn að heyra svo margar sögur um
Sjallann að mér fannst tilvalið að fagna
því að verða hálffimmtugur með því að
halda ball þar. Mér fyndist líka skemmti-
legt ef fólk myndi mæta með sannkall-
aðan „eighties“-fíling og jafnvel dressa
sig upp í tilefni kvöldsins.“ Ekkert útlit
er fyrir snjó um helgina fyrir norðan og
því ekkert tækifæri til að skella sér á
skíði. „Það er því eina vitið fyrir alla þá
námsmenn sem ætluðu á skíði að skella
sér bara á djammið á Sjallanum,“ segir
Davíð. Honum til liðsauka á laugardags-
kvöldið eru hljómsveitirnar Retro Stef-
son og Oculus og forsala verður í Imp-
erial á Glerártorgi og það kostar þúsund
krónur inn.
- amb
Berndsen heldur upp á afmæli sitt með stæl
Stefnir í trylling á Sjallanum
Vona að fólk mæti í „eighties“-fíling Davíð Berndsen segir eina vitið að djamma á laugardaginn þar sem snjóinn
vanti í brekkurnar.
H eilsuræktarstöðin Nordica Spa á Hilton-hótelinu á Suð-
urlandsbraut er farið af stað með
sín vinsælu lúxusnámskeið en
þau hafa verið sótt af mörgum
þekktum Íslendingum. „Flestir
eru að ná mjög góðum árangri en
aðaláherslan á námskeiðunum er
þó ekki að léttast skyndilega held-
ur að fólki líði almennt betur og
geti tileinkað sér heilbrigðari lífs-
venjur,“ útskýrir Ragnheiður Birg-
isdóttir, framkvæmdastjóri Nord-
ica Spa. „Skammdegið orsakar líka
orkuleysi og slen og með breyttu
mataræði og hreyfingu vakn-
ar fólk hressara og finnur ekki
fyrir þreytu síðdegis og á kvöld-
in. Það hefur verið fullt í nánast
alla hópana frá því um árslok 2008
og margir sem taka eitt námskeið
koma aftur á annað,“ segir Ragn-
heiður. Þátttakendur eru undir
leiðsögn fimm daga í viku og fá
þar að auki góða fræðslu varðandi
mataræði og næringu. - amb
Stútfullt á lúxusnámskeið:
Skynsemi, ekki
skyndilausnir
Leiðsögn hjá einkaþjálfara
Gunnar Már útskýrir hvernig
mataræði hefur bein áhrif á
aukna líkamsorku.
ÓLÉTT OG SÆT Ofurfyrirsætan
Claudia Schiffer gengur með þriðja
barn sitt og er nú komin fjóra mánuði
á leið. Hér sést hún á gangi um Nott-
ing Hill-hverfi Lundúna í gær.
FÖSTUDAGUR
MÆLIR MEÐ
Sýningu Maríu Dalberg, Bjark-
ar Viggósdóttur og Hörpu Rúnar
Ólafsdóttur í Crymo Gallerí sem
opnar á laugardagskvöldið en þær
verða með vídeóverk, skúlptúra og
innsetningar.
Tónleikum Insol í Havaríi á laugar-
daginn klukkan 16. Frumsamin lög
eins og „Hvenær á Íslandi mun rísa
stjörnusambandsstöð?“ Einstakur
og einlægur.
Noodle station á Skólavörðustígn-
um var að opna á ný. Dásamlega
matarmikil og ódýr súpa sem lætur
alla falla í stafi.
Verkinu Bráðum hata ég þig eftir
Sigtrygg Magnason í Nemendaleik-
húsinu í Smiðjunni sem var frum-
sýnt í gær.
SIGRÚN LILJA GUÐJÓNSDÓTTIR SKÓHÖNNUÐUR
Ég ætla að byrja helgina á að dekra aðeins við karlinn á bónda-
daginn. Þar að auki ætla ég að hvíla mig vel á milli þess sem ég
ætla að hanna á mig kjóla sem ég tek svo með mér út til að vera í
á tískuvikunni í New York!
Fullt hús listamanna
Opnun á sýninguna Ljóslitlífun í
Hafnarhúsinu síðasta föstudag var
afar vel sótt og
var stútfullt af
fallegu fólki sem
kom til að sjá
verk listamann-
anna Sigtryggs
Berg, Þórdísar
Aðalsteinsdótt-
ur og Gabríelu
Friðriksdóttur.
Gestir nutu þess að súpa á létt-
víni og hlusta á hressandi tóna DJ
Musician. Straumurinn frá Hafnar-
húsinu stefndi svo beint yfir á bar-
inn Bakkus þar sem goth-stemning
sveif yfir vötnum í afmæli Sólveigar
Pálsdóttur myndlistarkonu. Meðal
þeirra sem skemmtu sér á Bakkus
voru Davíð Örn Halldórsson, Gabrí-
ela Friðriksdóttir, Krummi Björg-
vinsson og Anna Clausen.
Óli Ofur verður að stjörnu
Ljóst er að auglýsingaherferð fyrir
plötusnúðinn Óla Ofur hefur geng-
ið vel. Plaköt af hinum dularfulla
Óla skreyttu veggi borgarinnar og
baksíðu Frétta-
blaðsins til að
auglýsa kvöld á
NASA um síð-
ustu helgi og má
með sanni segja
að Óli þessi hafi
orðið að hálf-
gerðri súper-
stjörnu í kjölfarið
en troðfullt var á kvöldinu þar sem
fólk steig trylltan dans við mínimal-
ískt teknó.
þetta
HELST
Stórleikur Þorsteins
Gunnarssonar
Enginn vafi leikur á því að Þor-
steinn Gunnarsson stelur senunni
í uppsetningu Vesturports á Faust
í Borgarleikhúsinu. Þorsteinn, sem
er einnig menntaður arkitekt, hefur
ekki stigið á svið í tíu ár en þá
var hann í Kristnihaldi undir Jökli.
Meðal þess sem Þorsteinn hefur
afrekað á arkitektasviðinu er
einmitt bygging Borgarleik-
hússins við hlið Kringlunn-
ar. Athygli vekur hversu hóg-
vær Þorsteinn er gagnvart fjöl-
miðlum en hann hefur afþakkað að
koma í viðtöl við alla stærstu fjöl-
miðla landsins.