Fréttablaðið - 22.01.2010, Blaðsíða 44
24 22. janúar 2010 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
SIR FRANCIS BACON (1561-
1626) FÆDDIST ÞENNAN DAG.
„Frægð er eins og eldur,
ef þú hefur kveikt hann
er auðvelt að viðhalda
honum, en ef þú slekk-
ur hann, verður erfitt að
kveikja hann á ný.“
Francis Bacon var ensk-
ur heimspekingur og stjórn-
málamaður. Hann fylgdi
raunhyggju og taldi að mað-
urinn ætti að treysta því
sem skilningarvitin segðu
honum.
MERKISTATBURÐIR
1517 Tyrkir, undir forystu Sel-
íms 1., sigra Mamelúka í
Egyptalandi.
1840 Breskir landnemar kom-
ast til Nýja-Sjálands.
1910 Jarðskjálfti, einn sá öfl-
ugasti sem mælst hefur
á Íslandi, 7,1 stig á Richt-
er, en litlar skemmdir
verða. Miðja skjálftans er
út af Öxarfirði.
1918 Mesta frost mælist á Ís-
landi, -37,9° C á Gríms-
stöðum á Fjöllum.
1962 Sæsímastrengurinn
Scotice, milli Íslands og
Skotlands um Færeyjar,
tekinn í notkun.
1983 Tvö snjóflóð falla á Patr-
eksfirði. Fjórir farast og
margir missa heimili sín.
2006 Cavaco Silva kjörinn for-
seti Portúgals.
Paul Watson, skip-
stjóra og forsprakka
Sea Shepherd-um-
hverfissamtakanna,
var vísað úr landi á
þessum degi árið
1988. Var honum
gefið að sök að hafa
látið sökkva tveim-
ur hvalveiðibátum,
Hval 6 og Hval 7, í
Reykjavíkurhöfn að-
faranótt 10. nóvem-
ber 1986.
Watson var áður
meðlimur í umhverfissamtökunum Greenpeace.
Honum þótti samtökin hins vegar ekki nógu rót-
tæk og stofnaði því ásamt nokkrum skoðana-
bræðrum sínum umhverfisverndarsamtökin Sea
Shepard Conservat-
ion Society til að taka
upp beinar aðgerð-
ir gegn veiðimönnum.
Hugmyndin kvikn-
aði fyrst árið 1976 en
samtökin voru síðan
formlega stofnuð árið
1981.
Samtökin hafa
sökkt tíu hvalveiði-
skipum frá árinu
1979, þar með talið
áðurnefndum íslensk-
um bátum. Vegna
þess var Watson fangelsaður í styttri tíma þegar
hann kom til landsins 1988 og síðan vísað úr
landi.
Heimild: www.wikipedia.org
ÞETTA GERÐIST: 22. JANÚAR 1988
Paul Watson vísað úr landi
Tónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar
var haldin í fyrsta sinn árið 1980 að
frumkvæði Tónskáldafélags Íslands
með tónskáldin Atla Heimi Sveinsson
og Þorkel Sigurbjörnsson í fararbroddi.
„Tilgangurinn var að flytja íslenska nú-
tímatónlist og endurspegla íslenskt tón-
listarlíf,“ segir Kjartan Ólafsson, for-
maður Tónskáldafélags Íslands, sem
stendur ásamt fleirum að þrjátíu ára
afmælishátíð Myrkra músíkdaga sem
hefst á sunnudag.
Hann segir nafn hátíðarinnar dreg-
ið af því að hún er haldin í svartasta
skammdeginu. „Í kringum 1980 var lítið
að gerast á þessum árstíma, íslenska
þjóðin lá í slökun eftir jólahátíðina og
lítið var um tónlistarviðburði. Í þessu
skammdegi fékk hátíðin nafnið en þó
var um engin myrkraverk að ræða held-
ur voru Myrkir músíkdagar fremur ljós
í myrkrinu,“ útskýrir Kjartan.
Hátíðin hefur þróast með árunum
en ein höfuðáhersla forsvarsmanna
hennar hefur verið hafa hátíðina sem
opnasta fyrir ólíkum tónlistartegund-
um en ekki eins þrönga og hliðstæð-
ar hátíðir erlendis. „Árangurinn er
sá að aðsókn og umfang hátíðarinnar
hefur vaxið stanslaust á síðustu árum
en sams konar hátíðir erlendis hafa
verið að minnka,“ segir hann og bætir
við að önnur sérstaða hátíðarinnar sé
að ung tónskáld og ungir áheyrendur
séu fleiri en tíðkast í öðrum löndum.
„Þetta hefur vakið athygli erlendis og
því eigum við von á fjölda gesta, bæði
fjölmiðlafólki og fólki sem sér um stór-
ar hátíðir í Englandi, Hollandi, Þýska-
landi og víðar.“ Enn eina ástæðu fyrir
áhuga útlendinga telur Kjartan vera þá
að þriðjungur verkanna sem eru á dag-
skrá er frumfluttur. „Það er einstætt og
vekur spennu.“
Aðsókn á Myrka músíkdaga hefur
verið góð að sögn Kjartans. Um 2.500 til
3.000 gestir hafa mætt sem þætti gott
jafnvel á mun stærri hátíðum og fjöl-
mennari samfélögum úti í heimi. „Dag-
skráin er enda mjög fjölbreytt. Þar er
jafnt hefðbundin nútímatónlist fyrir
hljóðfæri, raftónlist, sem er framúr-
stefnuleg og tilraunakennd, og jafnvel
tónlist sem nálgast popptónlist,“ segir
Kjartan og tekur fram aðra staðreynd
til að útskýra fjölbreytileika hátíðarinn-
ar. „Aldurssvið tónskáldanna er mjög
breitt. Yngsta tónskáldið, Lydía Grét-
arsdóttir, er 27 ára og elsta tónskáld-
ið, Jórunn Viðar, er rúmlega níræð. Þá
er gaman að geta þess að Íslendingar
eru svo heppnir að vera með eitt hæsta
hlutfall kventónskálda,“ segir hann
stoltur.
Kjartan segir ómögulegt að bera
saman einstaka atburði á hátíðinni þar
sem verkin séu svo fjölbreytt. Í allt eru
á dagskrá 24 viðburðir, 21 tónleikar og
þrír fyrirlestrar enda er hátíðin meðal
annars haldin í samstarfi við Listahá-
skóla Íslands.
Hátíðin hefst svo eins og áður sagði
á sunnudaginn á afar sérstakan hátt.
„Klukkan 16 opnar Ríkisútvarpið í
Efstaleiti dyr sínar. Þar verður einn
samfelldur hljóðgjörningur eftir hópinn
Adapter Ensemble. Þar eru nokkur mis-
munandi verk sem eru tengd saman og
flytjendur verða í ýmsum rýmum í hús-
inu, tónleikarnir eru ókeypis og verða
í beinni útsendingu,“ segir Kjartan og
hvetur fólk til að mæta. Nánari dagskrá
Myrkra músíkdaga er að finna á www.
listir.is/myrkir solveig@frettabladid.is
MYRKIR MÚSÍKDAGAR: ERU ÞRJÁTÍU ÁRA
HÁTÍÐIN ER LJÓS Í MYRKRINU
Landnotkunarsetur Háskóla Íslands og Há-
skólafélag Suðurlands halda ráðstefnu á
Hótel Selfossi, fimmtudaginn 28. janúar 2010.
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra
setur ráðstefnuna en mörg erindi fylgja í kjöl-
farið. Meðal annars verður fjallað um lögfræði
landnotkunar, Evrópusambandið og landnotk-
un, náttúruvernd, þjónustu vistkerfa, dreif-
ingu vatnsauðlindarinnar og jarðveg á Íslandi.
Auk þess verður fjallað um landbúnað, land-
græðslu, skógrækt og mismunandi búsetu-
mynstur.
Ráðstefnugjald er 7.500 kr. en 3.500 kr. fyrir
námsmenn, morgunkaffi, hádegismatur og
síðdegiskaffi innifalið. Skráning þarf að fara
fram fyrir 23. janúar á www.fraedasetur.hi.is
Landnotkun á Íslandi 2010
LANDBÚNAÐUR Heyskapur á Snæfellsnesi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
AFMÆLI
DIANE LANE
leikkona er 45 ára.
BALTHAZAR GETTY
leikari er 35 ára.
Elskulegur faðir okkar, stjúpfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Eyjólfur Arthúrsson
málarameistari, Sóleyjarima 1,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju í dag föstu-
daginn 22. janúar kl. 13.00.
Arthúr K. Eyjólfsson
Anna Eyjólfsdóttir
Felix Eyjólfsson
Ingimundur Eyjólfsson
Guðrún Gerður Guðrúnardóttir
Ásta St. Eyjólfsdóttir
Óskar Eyjólfsson
Unnur Úlfarsdóttir
Þorsteinn Úlfarsson
og aðrir aðstandendur.
FRAMKVÆMDASTJÓRI OG FOR-
MAÐUR Pétur Jónasson fram-
kvæmdastjóri og Kjartan Ólafsson,
formaður Tónskáldafélags Íslands,
halda utan um dagskrá Myrkra
músíkdaga sem hefst á sunnudag.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
Vikulegir fjölskyldumorgn-
ar eru nýjung í starfi Borg-
arbókasafns Reykjavíkur
við Tryggvagötu og í Gerðu-
bergi.
Eitt af markmiðum þeirra
er að veita fjölskyldum
ungra barna óformlega
fræðslu um ýmis málefni
sem varða börn og uppeldi.
Á safninu eru leikföng og
alls kyns bækur fyrir börn-
in og þeir fullorðnu geta
nálgast allt það spennandi
efni sem safnið hefur upp
á að bjóða, bækur, tónlist,
kvikmyndir, blöð og tíma-
rit, auk þess að hitta aðra
foreldra til að spjalla, njóta
samverunnar og þiggja
hressingu. Í aðalsafni er
auk þess lesið fyrir eldri
börnin og sungið með þeim
yngri.
Allir sem eru með ung
börn eru velkomnir, hvort
sem fólk býr í viðkomandi
hverfi eða annars staðar.
Fjölskyldumorgnarnir
eru í Gerðubergssafni á
þriðjudögum frá klukkan
10.30 til 11.30 og í aðalsafni
í Tryggvagötu á fimmtu-
dögum frá klukkan 10.30
til 11.30.
Ingibjörg Margrét Gunn-
laugsdóttir leikskólaráð-
gjafi mun í næstu viku
spjalla um málþroska barna
frá fæðingu til 5-6 ára ald-
urs, hvernig hann gengur
fyrir sig og á hvern hátt má
styðja við hann. Hún verður
í Gerðubergi 26. janúar og í
aðalsafni hinn 28.
Hægt er að fylgjast með
dagskránni á www.borgar-
bokasafn.is. Þar er meðal
annars bæklingur um fjöl-
skyldumorgnana á níu
tungumálum.
- gun
Efling málþroska
Á SAFNINU Bækur vekja gleði barna. MYND/BORGARBÓKASAFNIÐ
MOHAMED
SISSOKO knatt-
spyrnumaður er
25 ára.