Fréttablaðið - 22.01.2010, Side 46
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðs-
sonar
26 22. janúar 2010 FÖSTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Ekkert
mál.
Fá einn
stóran.
Á þinn
reikning.
Hvers konar
staður er þetta
eiginlega, fylgja
engar salthnet-
ur með?
Þú ert
enn með
neistan.
Alveg rétt
hjá þér!
Guði sé lof.
Loksins smá
friður. Tekurðu
aðeins við af
mér,?
Svoleiðis
var það
áður fyrr
en núna er
nýr eigandi
og hann er
nískupúki.
Mamma,
má ég
fá tvö
þúsund
krónur?
Til
hvers?
Það er eitt
gott lag á
þessum
geisladiski.
Viltu
ekki
bara ná
í það á
Netinu?
Þú hefur
sagt að
það væri
eins og að
stela.
Það er
það líka.
En að borga tvö
þúsund krónur fyrir
eitt gott lag er nátt-
úrlega bara rán um
hábjartan dag!
Hæ, sæta
Ég heiti Varði
– og ég er alltaf
á varðbergi.
Ég held ég fái
svona jólatrés-
fót líka.
Ástin mín, við
eigum sex svona
heima.
Já, ég veit,
en þessi er
öðruvísi.
Hvernig þá? Ég þarf ekki að taka til í bíl-
skúrnum til að finna hann.
Ég hef áður viðrað þá kenningu að hlut-skipti stuðningsmanna íslensks íþrótta-
landsliðs sé ekki ósvipað því að eiga alkó-
hólískan helgarpabba. Oftar en ekki er
hann með allt niðrum sig og þegar maður
er við það að missa á honum alla trú tekur
hann sig á og verður í einu vetfangi besti
pabbi í heimi. Alveg þangað til hann hras-
ar næst. Leikurinn við Serba á þriðjudag
rímar vel við þessa kenningu.
EF stuðningsmenn landsliðsins eru eins og
börn alkóhólistans eru íslensku íþrótta-
fréttamennirnir eins og afinn og amman
sem neita að viðurkenna að litli silfur-
strákurinn þeirra eigi við vandamál að
stríða. Það þykir til dæmis alltaf mikil
ósvinna að dæma skref á íslenska liðið.
Strákarnir okkar stíga aldrei of mörg
skref – ef þeir gera það er það vegna
þess að einhver annar lét þá gera það.
EINS og títt er með aðstandendur
alkóhólista erum við sem styðj-
um liðið dálítið meðvirk. Um árið
var til dæmis bannað að reiðast
yfir lélegu gengi á stórmótum;
við áttum alltaf að vera upp-
byggileg og hugsa fallega til
landsliðsins sama hvað yfir
dyndi. Þegar Íslendingar
lögðu Spánverja í undan-
úrslitum í Peking voru
fyrstu viðbrögðin ekki þau að við myndum
keppa um gullið, heldur að við værum búin
að „tryggja okkur silfrið“. Og þegar liðið
tapaði í úrslitaleiknum var soðinn saman
þvættingurinn „gott silfur er gulli betra“.
Þetta hreinræktaða lúseraviðhorf gengur
gegn öllum lögmálum kappleikja; þetta er
eins og að segja að tap sé betra en sigur.
ÞAÐ er kominn tími til að spyrna fótum
gegn meðvirkninni. Þegar íslenska landslið-
ið glutrar niður unnum leik í jafntefli er það
ekki aðeins réttur okkar, heldur skylda að
segja því til syndanna. Við eigum að finna
því allt til foráttu að Snorri Steinn var lát-
inn taka vítið í lokin á móti Serbum, búinn
að vera ískaldur allan leikinn. Ólíkt vítinu
var þetta óverjandi ákvörðun. Þetta var
eins og að fá annað tækifæri til að semja
um Icesave og senda Svavar Gestsson aftur.
REIÐIN varir hins vegar aldrei lengur en
tilefni er til; það eina sem Snorri Steinn
þarf að gera til að komast aftur í náðina er
að skora úr næsta víti. Þetta er fegurðin við
íþróttir – það er enginn í skotgröfum. Reið-
in er bara skjól meðan vonbrigðaélið geng-
ur yfir. Ef við reiddumst ekki þegar lands-
liðið leikur undir getu myndum við varla
gleðjast þegar það stendur sig í stykkinu.
Þetta er ekki tvískinnungur heldur ástríða.
Og án hennar væri tilgangslaust að eiga
landslið.
Meðvirkni eða ástríðu?
OPIÐ VIRKA DAGA 10 – 18 LAU. 11 – 16 SUN. 13 – 16
Faxafen 12 S. 533-1550.
VERÐHRUN
Barnaföt
Flíspeysur 1.990,-
Softshell 3.990,-
Úlpur 3.990,-
Snjóbuxur 6.990,-
Smávara ofl.
Dömu & herra
Skyrtur 1.990,-
Buxur 1.990,-
Softshell 3.990,-
Úlpur 5.990,-
Snjóbuxur 7.990,-
3 í 1 úlpur 9.990,-
Skór 5.990,-
Smávara ofl.
Verðdæmi
Verðdæmi