Fréttablaðið - 22.01.2010, Blaðsíða 50
30 22. janúar 2010 FÖSTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Í kvöld kl. 21
Ellefta Grasrótarkvöld Gogoyoko og
Reykjavík Grapevine verður haldið
á Hemma og Valda í kvöld. Á tón-
leikunum koma fram þrír listamenn.
ThizOne flytur fjölbreyttan elektró-
seið með óhugnanlegum undirtóni.
Arnljótur leikur sér með gítardrifnar
upptökur og fjölrása segulbandstæki
og Felonius Monk spilar sækadel-
íska takta. Frítt er inn á tónleikana.
> Ekki missa af …
Sænski dúettinn Wildbirds &
Peacedrums heldur tónleika
í Norræna húsinu í kvöld.
Hann er hér við upptökur með
Ástralanum Ben Frost. Dúett-
inn, sem skipaður er hjónum,
byggir frumlega tónlist sína
á söng og takti og hefur gert
tvær plötur. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 21 og Hildur Guðnadótt-
ir kemur einnig fram.
Góðir Íslendingar eftir þá
Jón Pál Eyjólfsson, Hall
Ingólfsson og Jón Atla
Jónasson verður frumsýnt
í kvöld. Verkið tekur upp
þráðinn þar sem Þú ert hér
hætti.
„Það sem við gerum í leikhópn-
um er að fjalla um íslenskt samfé-
lag á hverjum tíma og við reynum
að vera eins nálægt kvikunni og
við getum,“ segir Jón Atli Jónas-
son, sem skrifar Góðir Íslending-
ar ásamt Jóni Páli Eyjólfssyni og
Halli Ingólfssyni. Verkið verður
frumsýnt á Nýja sviði Borgarleik-
hússins í kvöld. Þremenningarn-
ir skrifuðu og léku í sýningunni
Þú ert hér, sem hlaut mikið lof og
athygli í fyrra og þótti vera hárfín
krufning á ástandi þjóðfélagsins
eftir hrun. Í Góðum Íslendingum
er haldið áfram á sömu braut, en
þessi sýning er mannfrekari því
fimm leikarar taka þátt í sýning-
unni auk þremenninganna.
„Við tökum á ástandinu sem
manni finnst ríkja í dag,“ segir Jón.
„Það er rosaleg reiði, gremja, ótti
og ringulreið. Nú er ekki talað um
annað en hvort við eigum að sam-
þykkja Icesave-samninginn eða
ekki. Undirliggjandi er þó miklu
stærri samningur sem við höfum
ekki formað og hvað þá undirritað.
Það er samningurinn um það hvers
konar þjóð við ætlum að vera.“
Jón Atli segir að fólk ætti að
koma á sýninguna af því það sér
sjálft sig í verkinu og fólkið í kring-
um sig. „Þessi tilraunastofa okkur
birtir kannski ekki neina lausn út
úr vandanum, en hún sýnir von-
andi hvar við erum og stingur inn
hjá fólki hugmyndum um það hvert
við gætum farið.“
Viðbrögð áhorfenda við Þú ert
hér voru mjög mismunandi og
Jón Atli á von á að það verði líka
persónubundið hvernig fólk upp-
lifi nýja verkið. „Okkar tilgangur
hefur aldrei verið að vera einhverj-
ir skemmtikraftar,“ segir hann.
„Það kom okkur mest á óvart hvað
fólk hló mikið á Þú ert hér. Öðrum
stökk reyndar ekki bros. Við erum
ekki að gera farsa. Ég vil ekki að
fólk komi á sýningu og hugsi − ó,
hvað við Íslendingar erum fokkt −
og fari svo bara heim og panti sér
pitsu. Maður vill breyta skynjun
áhorfandans og vonar að sýning-
in setji í gang eitthvað hjá honum.
Sýningin á ekki að vera eins og að
fara í sturtu.“ drgunni@frettabladid.is
Ekki eins og að fara í sturtu
REIÐI, ÓTTI OG RINGULREIÐ Jón Atli
Jónasson og félagar taka á ástandinu í
Góðir Íslendingar. MYND/GRÍMUR BJARNASON
Uppfærsla Íslensku óperunnar á
Ástardrykknum eftir Donizetti
hlaut afbragðsgóðan dóm í heilsíðu-
umfjöllun í nýjasta hefti eins virt-
asta óperutímarits heims, Opera
Now. Gagnrýnandinn Ingrid Gäf-
vert hrósar sérstaklega íslensku
söngvurunum: „Garðar Thór Cort-
es var fullkominn Nemorino, ung-
legur og hjartanlega einlægur á
sviðinu, með ítalskan blæ sem var
sérstaklega fallegur í mjúkum,
lágværum köflum og sýndi sig vel
í hinu gælandi Una furtiva lag-
rima. Sem Adina passaði Dísella
Lárusdóttir fullkomlega við hann
í lýrískum yndisleika, peppuðum
upp af öruggum og glitrandi háum
tónum. Hin svala og sjálfsörugga
ljóska í smart svörtum og fjólublá-
um fötum var ekki síður tjáning-
arrík en Cortes og jafnvægið sem
þau náðu í leikgleði og hjartasár-
um var eftirtektarvert.“
Lokasýningin á Ástardrykknum
er í kvöld kl. 20. Er þetta fimmta
aukasýningin sem bætt var við
upphaflegan sýningarfjöldann.
Frábærir dómar
ÚR ÁSTARDRYKKNUM Garðar og Dísella:
Ungleg og sjálfsörugg.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 22. janúar 2010
➜ Tónleikar
16.00 Nemendur í Tónlistarskóla
Akureyrar koma fram á tónleikum í
Eymundsson við Hafnarstræti á Akur-
eyri. Enginn aðgangseyrir.
21.00 Gítarveisla Björns Thoroddsen
og félaga verður endurtekin í Salnum,
Hamraborg í Kópavogi. Nánari upplýs-
ingar á www. salurinn.is.
21.00 Grasrótarkvöld gogoyoko og
Reykjavík Grapevine fer fram í Nýlendu-
vöruverzlun Hemma og Valda við Laug-
arveg. Fram koma ThizOne, Arnljótur og
Felonius Monk. Enginn aðgangseyrir.
22.00 Sex hljómsveitir keppa um að
vera fulltrúi Íslands í keppninni Global
Battle Of The Bands. Keppnin fer fram
á Sódómu Reykjavík við Tryggvagötu og
fram koma: Bárujárn, Mikado, Útidúr,
Wistaria, Nögl, Endless Dark ásamt
gestasveitum. Húsið verður opnað kl.
21.
➜ Sýningar
Kristinn G. Jóhannesson hefur opnað
sýningu í Jónas Viðar Gallery við Kaup-
vangsstræti á Akureyri. Opið fös. lau.
og sun. kl. 14-18.
➜ Dansleikir
Dj Valli Sport heldur uppi boogie-
nights-stemningu á skemmtistaðnum
Spot við Bæjarlind í Kópavogi.
➜ Leikrit
19.00 Leikhópurinn Munaðarleysingjar
sýnir verkið Munaðarlaus eftir Dennis
Kelly í Norræna húsinu við Sturlugötu
5. Nánari upplýsingar á www.nordice.is.
Ath. nýr sýningartími.
➜ Fyrirlestrar
14.50 María Sigurðardóttir leik-
hússtjóri LA fjallar um reynslu sína í
leiklistarheimininum í erindi sem hún
flytur í Samkomuhúsinu á Akureyri við
Hafnarstræti. Allir velkomnir og enginn
aðgangseyrir.
18.00 Sandra Kaffo flytur erindi um
hráfæði, aðferðarfræði og tækni, hjá
Maður lifandi við Borgartún 24. Nán-
ari upplýsingar á www.madurlifandi.is.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
Gítarveisla sem Björn Thorodd-
sen stóð fyrir í Salnum í Kópavogi
í nóvember sló svo hressilega í
gegn að veislan verður endurtekin
í kvöld og annað kvöld vegna fjölda
áskorana. Á tónleikunum bauð
Björn til sín mörgum af helstu
gítaristum þjóðarinnar sem spil-
uðu sín uppáhaldslög. Þarna mátti
heyra og sjá listamenn á öllum
aldri (sá yngsti var 22 ára, sá elsti
79 ára), spilandi alla stíla og var
það mál manna að þarna hafi verið
tekinn þverskurður af íslenskum
gítarleik síðastliðin fimmtíu ár.
Eftirtaldir gítaristar koma fram
á tónleikunum: Tryggvi Hübner,
Vilhjálmur Guðjónsson, Ólafur
Gaukur Þórhallsson, Þorsteinn
Magnússon, Björn Thoroddsen,
Halldór Bragason, Jón Páll Bjarna-
son, Sigurgeir Sigmundsson,
Sævar Árnason, Gunnar Ringsted,
Eðvarð Lárusson, Hjörtur Stein-
arsson, Guitar Islancio og Þórður
Árnason auk rythmasveitar sem
skipuð er Jóhanni Hjörleifssyni
og Jóni Rafnssyni.
Sem áður segir verða tvennir
tónleikar í boði, í kvöld og annað
kvöld, í Salnum í Kópavogi.
Hljóðritun frá tónleikunum í
Salnum er komin út á disk. Þar
má heyra fjórtán tóndæmi þar
sem gítarleikaralandsliðið sýnir
fimi sína. - drg
Veislan endurtekin
GÍTARAR SKOÐAÐIR Samhliða tónleikunum í fyrra var opnuð gítarasýning í Tón-
listarsafni Íslands. Hér eru Björn Thoroddsen, Jón Páll Bjarnason og Ólafur Gaukur
Þórhallsson að virða fyrir sér einn safnmuninn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Sýning á mótmælaskiltum Helga Hóseassonar
hefst í sýningarsal Norræna hússins á morgun
kl. 15. Helgi Hóseasson, sem oft var kallaður mót-
mælandi Íslands, lést 6. september í fyrra eftir
að hafa eytt stórum hluta ævi sinnar í að mót-
mæla á horni Langholtsvegar og Holtavegar. Þar er
ætlunin að koma fyrir minningarskildi um baráttuna. Helgi
var smiður og handverksmaður góður og lagði mikla vinnu í
skiltin fjölmörgu sem hann mótmælti með. Segja má að hvert
þeirra sé listaverk út af fyrir sig. Stór hluti þessara skilta er
nú í einkaeigu en náðst hefur samkomulag um að halda sýn-
ingu á þeim auk þess sem ljósmyndir eftir Gunnar V. Andr-
ésson af Helga með skiltin verða einnig til sýnis. Sýningin
verður opin alla daga nema mánudaga fram til 14. febrúar.
Aðgangur er ókeypis. - drg
Í NORRÆNA HÚSINU Sýning á mót-
mælaskiltum Helga hefst á morgun.
Skilti Helga sýnd
Brennuvargarnir (Stóra sviðið)
Fös 22/1 kl. 20:00 U
Fim 28/1 kl. 20:00 Ö
Fös 5/2 kl. 20:00 U
Mið 17/2 kl. 20:00 Ö
Fim 18/2 kl. 20:00 Síð. sýn.
Fös 12/2 kl. 20:00 Frums. U
Lau 13/2 kl. 20:00 2. K U
Fös 19/2 kl. 20:00 3 K Ö
Gerpla (Stóra sviðið)
Lau 20/2 kl. 20:00 4. K Ö
Fim 25/2 kl. 20:00 Aukas. U
Fös 26/2 kl. 20:00 5. K Ö
Lau 27/2 kl. 20:00 6. K Ö
Fös 5/3 kl. 20:00 7. K Ö
Lau 6/3 kl. 20:00 8. K Ö
Lau 23/1 kl. 15:00 Aukas. U
Lau 23/1 kl. 19:00 U
Fös 29/1 kl. 19:00 U
Lau 30/1 kl. 15:00 U
Lau 30/1 kl. 19:00 U
Lau 6/2 kl. 15:00 U
Lau 6/2 kl. 19:00 Ö
Sun 14/2 kl. 15:00 Ö
Oliver! (Stóra sviðið)
Sun 14/2 kl. 19:00 Ö
Sun 21/2 kl. 15:00 Ö
Sun 21/2 kl. 19:00 Ö
Sun 28/2 kl. 15:00 Ö
Sun 28/2 kl. 19:00 Ö
Sun 7/3 kl. 15:00 Ö
Sun 7/3 kl. 19:00 Ö
Sun 14/3 kl. 15:00
Sun 14/3 kl. 19:00 Ö
Sun 21/3 kl. 15:00
Sun 21/3 kl. 19:00
Lau 27/3 kl. 15:00
Lau 27/3 kl. 19:00
Sun 28/3 kl. 15:00
Oliver! MBL, GB. Nýjar sýningar komnar í sölu.
„Besta leiksýning ársins“ MBL, IÞ. Síðasta sýning 18. febrúar.
Miðasala hafin - tryggið ykkur sæti á fyrstu sýningar!
Lau 23/1 kl. 15:00 Ö
Sun 24/1 kl. 16:00 Ö
Sindri silfurfi skur (Kúlan)
Lau 30/1 kl. 15:00 Ö
Sun 31/1 kl. 15:00 Ö
Undurfalleg sýning fyrir yngstu leikhúsgestina!
Lau 13/3 kl. 15:00 Frums. U
Sun 14/3 kl. 13:00 U
Sun 14/3 kl. 15:00 U
Lau 20/3 kl. 13:00 U
Lau 20/3 kl. 15:00 U
Fíasól (Kúlan)
Sun 21/3 kl. 13:00 U
Sun 21/3 kl. 15:00 U
Lau 27/3 kl. 13:00 Ö
Lau 27/3 kl. 15:00 Ö
Sun 28/3 kl. 13:00
Sun 28/3 kl 15:00
Lau 10/4 kl 13:00
Lau 10/4 kl 15:00
Sun 11/4 kl 13:00
Sun 11/4 kl 15:00
Sprellfjörug sýning um gleðisprengjuna ómótstæðilegu!
Mið 27/1 kl. 20:00
Bólu-Hjálmar (Kúlan)
Fim 28/1 kl. 20:00
Gestasýning Stoppleikhópsins. Aðeins tvær sýningar.
GALLERY BRUNCH
Borðapantanir í síma 552 5700 og á gallery@holt.is
Bergstaðastræti 37 s. 552 5700 holt@holt.is www.holt.is
BEINT Á BORÐIÐ Í HÁDEGINU Á
LAUGARDÖGUM OG SUNNUDÖGUM