Fréttablaðið - 22.01.2010, Síða 53
FÖSTUDAGUR 22. janúar 2010 33
„Það má kalla þetta fyrstu eiginlegu
útgáfutónleikana mína. Ég held ég
hafi aldrei spilað á þannig tónleik-
um áður,“ segir trúbadorinn einlægi
Insol, sem spilar í Havaríi í Aust-
urstræti á laugardaginn. Þar flytur
hann lög af safnplötu sinni, Hátind-
ar, sem kom út fyrir jól auk þess sem
hann spilar lög af tveimur væntan-
legum plötum sínum, „Það og það“
og „Ísland skal aría griðland“. „Ég
býst við að ég fari að dreifa þeim
fljótlega,“ segir Insol. „Önnur plat-
an var tekin upp í nóvember 2008 og
fjallar dálítið um kreppuna. Hin er
öðruvísi, með þjóðernissöngvum og
ástarsöngvum í bland.“
Platan Hátindar hefur að geyma
bestu lög Insol af plötum sem hann
gaf út á árunum 1999 til 2003. Dr.
Gunni sá um að raða lögunum
saman og Brak-hljómplötur gáfu
plötuna út. Átján lög eru á henni,
þar á meðal Hvenær mun hér á
Íslandi rísa stjörnusambandsstöð?,
Blóm, friður og ást, Stelpur vil ég
stórar og Jafnréttið er eina svar-
ið. Tónleikarnir í Havaríi hefjast
klukkan 16 og aðgangseyrir er eng-
inn. - fb
Insol með tónleika
INSOL Tónlistarmaðurinn Insol spilar lög af safnplötunni Hátindar í Havarí.
Leikarinn og leikstjórinn Mel Gibs-
on segist vera sterkari einstakling-
ur eftir hina „opinberu niðurlæg-
ingu“ sem hann gekk í gegnum
þegar hann var handtekinn fyrir
að aka undir áhrifum áfengis árið
2006. Gibson vakti mikla reiði
almennings þegar kom í ljós að
hann hafði talað niður til gyðinga
þegar hann var handtekinn. „Ef
þú spyrð fólk að því hvað það ótt-
ast mest þá er það opinber niður-
læging,“ sagði Gibson í viðtali við
breska blaðið Mirror. „Ef þú marg-
faldar það með öllum heiminum
þá er það nákvæmlega það sem ég
hef gengið í gegnum. Svona lagað
breytir þér,“ sagði hann. Þrátt
fyrir uppákomuna lagði Gibson
ekki árar í bát. „Það sem drepur
þig ekki styrkir þig bara. Svo ein-
falt er það. Það eina sem þú getur
gert er að lifa fyrir stað og stund.
Ekki hafa áhyggjur af framtíð-
inni og ekki sjá of mikið eftir for-
tíðinni. Það er betra að reyna að
læra af henni.“
Gibson, sem er 54 ára, fékk skil-
orðsbundinn dóm eftir atvikið og
lauk afplánuninni í október síðast-
liðnum eftir að hann hafði starfað í
opinbera þágu og farið á AA fundi
í þrjú ár. Hann sést næst á hvíta
tjaldinu í spennumyndinni Edge of
Darkness, sem er jafnframt fyrsta
hlutverk hans í átta ár. Hann er
einnig að undirbúa myndina How
I Spent My Summer Vacation sem
verður gerð eftir hans eigin hand-
riti.
Sterkari eftir niðurlægingu
MEL GIBSON Leikarinn og leikstjórinn
er sterkari en nokkru sinni fyrr eftir hina
„opinberu niðurlægingu“ sem hann
gekk í gegnum.
Hljómsveitin U2 og rapp-
arinn Jay Z hafa tekið upp
lag til styrktar fórnarlömb-
um jarðskjálftans á Haítí.
Þeim til aðstoðar verð-
ur upptökustjórinn Swizz
Beatz. Þetta verður ekki í
fyrsta sinn sem U2 styrkir
þá sem minna mega sín því
eftir fellibylinn Katrinu tók
sveitin upp lagið The Saints
Are Coming með rokkur-
unum í Green Day. „Bono
fékk símtal frá upptöku-
stjóranum Swizz. Hann og
Jay-Z vildu gera eitthvað fyrir fólkið á Haítí. Kvöldið eftir komum
við saman, sömdum lagið, tókum það upp og sendum það til þeirra,“
sagði gítarleikarinn The Edge. Talið er að lagið komi fyrir eyru
manna á allra næstu dögum.
Sömdu lag fyrir Haítí
U2 Hljómsveitin U2 og rapparinn Jay Z hafa
tekið upp lag til styrktar fórnarlömbum jarð-
skjálftans á Haítí.
Hamborgarafabrikkan er nýr
veitingastaður sem opnar á jarðhæð
Turnsins á Höfðatorgi í mars 2010.
Á Hamborgarafabrikkunni verður
frábær og fjölbreyttur matur, einstök
stemning og framúrskarandi þjónusta.
Við erum að leita að starfsfólki sem vill
starfa með okkur frá upphafi við að
móta nýjan og spennandi veitingastað.
HAMBORGARAFABRIKKAN AUGLÝSIR EFTIR
VEITINGASTJÓRA, ÞJÓNUM OG MATREIÐSLUFÓLKI
MEÐ NGTÍMASAMBAND Í HUGA
Hamborgarafabrikkan býður fjölbreyttan mat á
frábæru verði úr fersku, íslensku hágæðahráefni.
Hamborgarar og hollir réttir, salöt og steikur
ásamt úrvali forrétta og eftirrétta.
Viltu byrja með okkur?
Við gerum kröfur um:
O Metnað og hressleika
O Samskiptahæfni og þjónustulund
O Heiðarleika og umburðarlyndi
O Jákvætt viðhorf til lífsins
Á móti þá lofum við þér:
O Frábæru starfsumhverfi
O Tækifæri til að vaxa með okkur
O Góðum launum
Sendu okkur umsókn með mynd á
atvinna@fabrikkan.is eða fylltu út
umsókn á www.fabrikkan.is
Trúnaði heitið.
Simmi og Jói