Fréttablaðið - 22.01.2010, Blaðsíða 56
36 22. janúar 2010 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
EM Í AUSTURRÍKI
EIRÍKUR STEFÁN ÁSGEIRSSON
skrifar frá Linz
eirikur@frettabladid.is
EM í handbolta:
Austurríki-Ísland 37-37 (20-17)
Mörk Austurríkis (skot): Konrad Wilczynski 11/3
(17/4), Viktor Szilagyi 9 (13), Roland Schillinger
7 (9), Patrick Fölser 5 (6), Bernd Friede 4 (4),
Markus Hojc 1 (2), Vytautas Ziura (1), Lucas
Mayer (1), Robert Weber (2).
Varin skot: Nikola Marinovic 9 (43/2, 21%),
Thomas Bauer 3 (6, 50%).
Hraðaupphlaup: 13 (Wilczynski 4, Schillinger 4,
Szilagyi 2, Friede 2, Hojc 1).
Fiskuð víti: 4 (Szilagyi 2, Sclinger 2).
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Íslands (skot): Arnór Atlason 8 (12), Ólafur
Stefánsson 7 (9), Róbert Gunnarsson 6 (6), Alex
ander Petersson 6 (7), Snorri Steinn Guðjónsson
6/2 (11/2), Guðjón Valur Sigurðsson 4 (7).
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 13/1 (40/3,
33%), Hreiðar Guðmundsson 6 (16/1, 38%).
Hraðaupphlaup: 11 (Guðjón Valur 4, Arnór 2,
Ólafur 2, Alexander 2, Róbert 1).
Fiskuð víti: 2 (Guðjón Valur 1, Róbert 1).
Utan vallar: 4 mínútur.
Dómarar: Dinu Sorin-Laurentiu og Din Constan
tin, Rúmeníu. Voru með heimadómgæslu af
verstu sort.
ÚRSLIT
HANDBOLTI Guðmundur Guðmundsson sagði
líðan sína hræðilega eftir leik Íslands og Aust-
urríkis á EM í handbolta í gær. Skyldi engan
undra.
„Þetta eru gríðarleg vonbrigði. Ég er með
ónot og tilfinningin er vond og afar óþægileg,“
sagði Guðmundur við Fréttablaðið eftir leik-
inn.
Þegar tæp mínúta var til leiksloka var
Ísland með þriggja marka forystu í leiknum.
En þótt ótrúlegt megi virðast þá tókst Austur-
ríkismönnum að jafna leikinn eftir röð ótrú-
legra atvika.
„Fyrst og fremst verðum við að líta á sjálfa
okkur og hvernig við klúðruðum þessu. Við
náðum ekki að vinna tíma í vörninni heldur
skoruðu þeir strax á okkur,“ sagði Guðmundur.
„En svo hjálpar það heldur ekki til þegar
dómararnir fara að beita óskiljanlegum regl-
um, það er að stoppa tímann í hvert skipti sem
Austurríki skorar mark. Það er bara ekki til í
handboltareglunum, við vorum ekki einu sinni
búnir að ná í boltann í netið þegar þeir ákveða
að stoppa tímann. Þetta gerðist tvisvar undir
lok leiksins. Þetta var bara skandall.“
Hann sagði ýmislegt hafa gengið upp í sinni
leikáætlun og ýmislegt ekki.
„Sóknarleikurinn var frábær en varnar-
leikurinn ekki nógu góður. Við áttum bara að
vinna þennan leik og aftur erum við komnir
í sömu stöðu og gegn Serbum í fyrradag. Við
vorum með unninn leik í höndunum en bara
klúðrum því.“
Hann segir að það sé á valdi þeirra sjálfra
að koma í veg fyrir að það gerist.
„Það á að vera á okkar valdi. Það erum við
sem gerum okkur seka í síðustu sókninni um
að halda ekki boltanum lengur. En það má ekki
gleyma því að dómarar voru búnir að spara
Austurríkismönnum fimmtán sekúndur. Undir
eðlilegum kringumstæðum hefði leikurinn átt
að vera búinn.“
Og segir niðurstöðuna slæma fyrir íþróttina
sjálfa. „Þetta er því miður það sem fylgir þess-
um handbolta. Þetta ætlar að vera viðloðandi
þessa íþrótt og menn virðast ekki ætla að ná að
koma sér út úr því. Þetta voru geðþóttaákvarð-
anir og dómarar beittu þessu bara af því að
það hentaði öðru liðinu. Þetta er bara hneyksli
− algjört hneyksli.“ - esá
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari var langt niðri eftir leikinn gegn Austurríki:
Þetta er bara hneyksli − algjört hneyksli
ÓSÁTTUR Í LEIKSLOK Guðmundur Guðmundsson í
leiknum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/LEENA MANHART
„Ég klikkaði. Það var það sem gerðist og því fór sem
fór,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson eftir jafnteflisleik
Íslands og Austurríkis á EM í handbolta í gær.
Guðjón Valur fékk línusendingu þegar hálf mínúta
var eftir af leiknum í gær og Ísland tveimur mörkum
yfir. Skot hans var hins vegar varið og Austurríkismenn
náðu með ótrúlegum lokakafla að jafna metin áður en
leiktíminn rennur út.
„Ég hafði tækifæri til að klára leikinn en gerði það
ekki. Þannig komust þeir aftur inn í leikinn. Ég tek þetta
einfaldlega á mig því ég á að gera miklu betur,“ sagði
Guðjón Valur. Hann hrósaði Austurríkismönnum fyrir að
berjast fyrir sínu í leiknum. „Já, flott hjá þeim. Þeir börðust
og gerðu það sem þeir gátu. En gerðum við það? Mér
fannst þeir skora mikið af ódýrum mörkum.“
Guðjón Valur sagði einnig að sóknarleikurinn hefði
gengið vel enda hafi liðið skorað 37 mörk. En engu
að síður eigi margir enn mikið inni. „Arnór
Atlason var frábær og Robbi gerði sitt
mjög vel. Við hinir vorum ekki eins og við eigum að vera. Mér finnst
við eiga mikið inni. Hins vegar var varnarleikurinn ekki nógu góður þó
svo að það hafi ekkert komið okkur á óvart hjá þeim.“
Síðasti leikur Íslands í riðlinum er gegn Danmörku á laugardags-
kvöldið. Með sigri fer Ísland áfram í milliriðlakeppnina með þrjú stig af
fjórum mögulegum. „Það er leikur sem við verðum að vinna. Það er
ekkert öðruvísi. Við höfum áður verið á stórmóti og búnir að
mála okkur út í horn. Þannig virðist það ætla að vera
hjá okkur í þetta skiptið. Það er því eins gott að bretta
upp ermarnar og vera klárir þá.“
Arnór Atlason átti, eins og Guðjón Valur sagði,
stórleik rétt eins og gegn Serbíu. „Ég er svekktur yfir að
hafa ekki fengið tvö stig úr þessum leik því við vorum
komnir með þetta. Það er nú sama sagan aftur í þess-
um leik og gegn Serbíu í fyrradag. Við áttum að vera
löngu búnir að loka þessum leik og koma tveimur
stigum í hús. Það eru svo margir samverkandi þættir
í lokin sem gera það að verkum að þetta gerðist.
Það gekk bókstaflega allt á afturfótunum.“
GUÐJÓN VALUR SIGURÐSSON OG ARNÓR ATLASON: VIÐBRÖGÐ EFTIR LEIKINN GEGN AUSTURRÍKI
Ég klikkaði og tek þetta á mig
> Ekki bara einum að kenna
Róbert Gunnarsson sagði að það væri ekki hægt að
kenna einum leikmanni um hvernig fór fyrir íslenska
liðinu á lokamínútunum gegn Austurríki í gær. „Við
höfum klúðrað þessu í lokin í þessum tveimur leikjum
og það er allt liðið sem stendur og fellur með okkar
frammistöðu. En við eigum enn séns. Annaðhvort
förum við áfram og sýnum
þá loksins góðan leik
[gegn Dönum á laugar-
daginn] eða við förum
heim með skottið á milli
lappanna eins og einhverjir
aumingjar.“
HANDBOLTI Dagur Sigurðsson var
vitaskuld hæstánægður með að
hafa náð stig i úr leik Austurríkis
og Íslands í gær en hann er lands-
liðsþjálfari fyrrnefnda liðsins.
„Það var stórafrek hjá okkur
að ná stigi í þessum riðli,“ sagði
Dagur en Austurríki mætir Ser-
bíu í síðasta leik.
„Leikmenn eru nú að springa
úr tilfinningum og nú er að sjá
hvort þeir nái að koma sér á jörð-
ina í tæka tíð. Ég held þó að Ser-
barnir henti okkur ekkert sér-
staklega vel. Þeir eru stórir og
sterkir og því þurfum við að sjá
til.“ - esá
Dagur Sigurðsson:
Stórafrek að ná
stigi í riðlinum
HANDBOLTI Ísland er öruggt áfram
í milliriðlakeppnina ef leik Aust-
urríkis og Serbíu lýkur ekki með
jafntefli. Sá leikur fer fram á
undan leik Íslands og Danmerkur
í Linz á laugardagskvöldið.
Verði niðurstaðan hins vegar
jafntefli er Ísland engu að síður
öruggt áfram svo lengi sem Aust-
urríki og Serbía skora ekki fleiri
en 36 mörk í sínum leik.
Vinni Ísland aftur á móti Dan-
mörku skipta úrslit hins leiksins
vitanlega engu máli − Ísland er þá
komið áfram með þrjú stig í milli-
riðlakeppnina. Danmörk yrði þá
með tvö stig og sigurvegari leiks
Austurríkis og Serbíu eitt. Aust-
urríki dugar þó alltaf jafntefli í
þeim leik til að komast áfram. - esá
Möguleikar Íslands:
Viljum ekki
jafntefli
EINS OG SIGUR Dagur Sigurðsson, þjálf-
ari Austurríkismanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/LEENA MANHART
HANDBOLTI Hafi jafnteflið við Serbíu á mánu-
dagskvöldið verið handboltaáhugamönnum á
Íslandi erfitt jafnast það ekkert á við ótrúlega
lokamínútu í leik Íslands gegn Austurríki á
EM í handbolta í Linz í gær. Þá skoraði Aust-
urríki þrjú mörk á 50 síðustu sekúndum leiks-
ins og tryggði sér þar með jafntefli, 37-37.
Eins og sést í meðfylgjandi töflu var
atburðarásin lygileg. En það var fleira sem
kom til. Rúmensku dómararnir spiluðu stórt
hlutverk og gáfu Austurríkismönnum dýr-
mætar sekúndur með því að stöðva leiktím-
ann eftir að þeir skoruðu tvö marka sinna á
lokamínútunni. Reyndar var frammistaða
dómaranna í leiknum öllum sorglega léleg.
Ekki féllu allir dómar með Austurríkismönn-
um en yfirleitt hallaði verulega á íslensku
strákana.
En þrátt fyrir það voru strákarnir búnir
að koma sér í góða stöðu. Snorri Steinn Guð-
jónsson kom Íslandi í þriggja marka forystu
með marki þegar tæp mínúta var til leiks-
loka og héldu þá flestir að íslenski sigurinn
væri tryggður. Meira að segja áhorfendur á
leiknum, sem höfðu stutt sína menn dyggi-
lega allan leikinn, voru búnir að sætta sig við
tap. En ekki Dagur Sigurðsson og lærisveinar
hans. Þeir, rétt eins og í öllum leiknum, gáfust
einfaldlega ekki upp.
Liðin skiptust á að vera með forystu nán-
ast allan leikinn. Útlitið var svart þegar að
Austurríki komst í 13-10 forystu þegar rúmar
ellefu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Þá
sýndi liðið hversu brothætt það getur verið.
En Guðmundur Guðmundsson landsþjálf-
ari tók þá leikhlé og þá sýndi liðið allt aðra
og betri hlið á sér. Liðið skoraði tíu af síðustu
fjórtán mörkum hálfleiksins og átti þar með
möguleika á að gera út um leikinn snemma í
síðari hálfleik.
Það tók þó ekki nema um tíu mínútur fyrir
Austurríkismenn að jafna metin. Aðrar sjö til
að komast yfir. En þá tók Ísland aftur völdin
og kom sér í góða stöðu í upphafi lokamínútu
leiksins. Þá hrundi allt.
Sóknarleikurinn var oftast góður í gær og
þá enginn betri en Arnór Atlason sem hefur
einfaldlega verið besti leikmaður Íslands
í báðum leikjum liðsins til þessa. Að sama
skapi vantaði mikið upp á varnarleikinn í
kvöld, sérstaklega þegar mest lá við.
Oft hefur verið rætt um að breiddin í
íslenska liðinu hafi sjaldan verið betri. Það er
þó ekki að sjá á tölfræðinni. Af útileikmönn-
unum fengu aðeins þrír tækifæri sem voru
ekki í byrjunarliðinu og það í aðeins tíu mín-
útur samtals. Það er vissulega gott að eiga
menn inni fyrir síðari stig mótsins en það er
þó til lítils ef Ísland kemst ekki áfram upp úr
riðlakeppninni.
Það er því allt undir leiknum gegn Dönum á
morgun komið. Vinni Ísland fer það áfram til
Vínarborgar með flest stig allra úr riðlinum
í Linz. Tapi liðið þarf það að treysta á úrslit
hins leiksins í lokaumferð riðlakeppninnar til
að komast áfram og þá aðeins með eitt stig.
LYGILEG LOKAMÍNÚTA Í LINZ
Lokamínútan í leik Austurríkis og Íslands á EM í handbolta verður greypt í minni handboltaáhugamanna
um ókomna tíð. Þá tókst Austurríki að vinna upp þriggja marka forskot Íslands á tæpri einni mínútu.
ÓLÝSANLEGT SVEKKELSI Í LEIKSLOK Íslensku strákarnir áttu eins og öll íslenska þjóðin erfitt með að skilja hvernig
þeir fóru af því missa niður þriggja marka forskot á einni mínútu. FRÉTTABLAÐIÐ/LEENA MANHART
ÓTRÚLEG LOKAMÍNÚTA
59 sekúndur eftir Snorri Steinn skorar 37-34
50 sekúndur eftir Austurríki skorar 37-35
30 sekúndur eftir Guðjón Valur lætur verja frá sér
á línunni.
23 sekúndur eftir Austurríki skorar 37-36
11 sekúndur eftir Ólafur fær dæmd á sig skref
7 sekúndur eftir Austurríki skorar 37-37