Fréttablaðið - 22.01.2010, Blaðsíða 62
42 22. janúar 2010 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
LÁRÉTT
2. ofsi, 6. klafi, 8. forsögn, 9. skordýr,
11. bardagi, 12. ásamt, 14. marg-
nugga, 16. verslun, 17. sönghús, 18.
örn, 20. 950, 21. svall.
LÓÐRÉTT
1. hróss, 3. í röð, 4. ámáttlegt ýlfur,
5. rénun, 7. gera óvandlega, 10.
bergmála, 13. rölt, 15. handa, 16. krá,
19. gangþófi.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. ærsl, 6. ok, 8. spá, 9. fló,
11. at, 12. saman, 14. sarga, 16. bt,
17. kór, 18. ari, 20. lm, 21. rall.
LÓÐRÉTT: 1. lofs, 3. rs, 4. spangól,
5. lát, 7. klastra, 10. óma, 13. ark, 15.
arma, 16. bar, 19. il.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Magnús Tumi Guðmundsson,
prófessor í jarðeðlisfræði við HÍ.
2 Naustið byrjaði að selja mat
undir þessu heiti árið 1958.
3 Ólafur Ísleifsson, lektor í HÍ.
„Ég er oftast á hraðferð og
gleymi að setjast niður og fá
mér morgunmat. Annars finnst
mér gott að fá mér te, hrærð egg
og fletta blöðunum þegar tími
gefst.“
Alexandra Baldursdóttir,
gítarleikari í Mammút.
„Þetta var alveg hrikalega skemmti-
legt, ekki síst vegna þess að ég er
búinn að fylgjast með Frímanni frá
því að hann byrjaði,“ segir Friðrik
Weisshappel, veitingamaður í Kaup-
mannahöfn. Hann fékk óvænta
gesti til sín á þriðjudag þegar sjálf-
ur Frímann Gunnarsson, leikinn af
Gunnari Hanssyni, birtist í dyra-
gátt Laundromat-kaffihússins með
sjálfan Frank Hvam upp á arminn,
aðalstjörnuna úr Klovn-þáttunum
vinsælu. Frímann og Frank voru
þarna að taka upp atriði fyrir sjón-
varpsþátt sem Gunnar er að vinna
að og á að fjalla um sýn Frímanns
á skandinavískan húmor. Frímann
mun heimsækja grínista frá öllum
Norðurlöndunum en það er Jón
Gnarr sem kryfur íslenskan húmor
fyrir Íslands hönd.
Friðrik segir að starfsfólkið hafi
fengið stjörnur í augun þegar það
sá hver var mættur enda Hvam
hálfgerð ofurstjarna í Danmörku.
„Nýi starfsmannastjórinn féll
næstum í yfirlið yfir þessu,“ segir
Friðrik og hlær. Veitingamaðurinn
fékk sjálfur lítið hlutverk, lék þjón
í einu atriðinu og tókst víst ákaf-
lega vel upp að eigin sögn. „Þetta
var bara mikil upplifun, Gunnar
var í gervinu allan tímann og gest-
irnir höfðu alveg ótrúlega gaman
af þessu,“ útskýrir Friðrik en hann
og Frank ræddu mikið saman um
Ísland enda Klovn-stjarnan mik-
ill Íslandsvinur líkt og félagi hans,
Casper Christiansen.
Fréttablaðið hafði samband
við Gunnar sem þá var að snæða
hádegisverð í Kaupmannahöfn.
Hann segir að tökurnar hafi geng-
ið alveg ótrúlega vel. „Það hjálpar
líka mikið að hafa svona mann eins
og Frank, maður nefnir bara nafnið
hans og þá opnast allar dyr,“ segir
Gunnar en tökuliðið hefur verið á
þeytingi um alla Kaupmannahöfn.
Gunnar á ekki nægilega sterk lýs-
ingarorð til að lýsa því hversu mik-
ill hæfileikamaður Frank er. „Hann
er búinn að vera gjörsamlega
frábær, eiginlega framar öllum
vonum.“ Reyndar er Frank mikill
áhugamaður um handbolta og bauð
tökuliðinu heim til sín þegar Ísland
átti leik við Serba. Gunnar segir
Frank alveg hundrað prósent viss
um að Danir muni sigra Íslendinga
í leik liðanna á laugardaginn. „Því
miður komum við heim á morgun [í
dag] því það hefði verið gaman að
vera með honum þegar „strákarn-
ir okkar“ vinna danska liðið,“ segir
Gunnar. freyrgigja@frettabladid.is
FRIÐRIK WEISSHAPPEL: STARFSFÓLKIÐ FÉKK STJÖRNUR Í AUGUN
Frank, Frímann og Friðrik
saman á Laundromat
TVEIR GÓÐIR Frímann og Frank fyrir framan Laundromat-kaffihúsið í Kaupmanna-
höfn sem Friðrik Weisshappel rekur.
Gunnar Sigurðsson frumsýndi
kreppumynd sína, Maybe I Should
Have, í troðfullu Háskólabíói á mið-
vikudagaskvöldið. Í myndinni fylgir
Gunnar slóð peninganna sem „guf-
uðu upp“ og fær ýmsa málsmet-
andi menn til að leggja orð í belg.
Á frumsýningunni var margt góðra
gesta, meðal annars Jón Gnarr, Jón
Baldvin Hannibalsson, Ögmundur
Jónasson, Sigrún Davíðsdóttir
og meirihluti karlakórsins
Fjallabræðra, sem kemur
fyrir í myndinni. Eftir sýn-
inguna var Gunnar hylltur
með standandi lófa-
klappi. Myndin fer í
almenna sýningu 5.
febrúar.
Kynþokkafyllsti karlmaður
landsins verður valinn á
Rás 2 í dag, bóndadag.
Á meðal þeirra sem hafa
hlotið titilinn eru hand-
boltakappinn Guðjón
Valur Sigurðsson,
sjónvarpssjar-
mörinn Logi Berg-
mann Eiðsson
og hinn Nýdanski
Jón Ólafsson. Í dag er talið að
Björn Thors, sem sló í gegn sem
Kenneth Máni í Fangavaktinni, skori
hátt á meðal kvenþjóðarinnar. Þá
er talið að félagar hans af vaktinni;
kynþokkatríóið Ragnar Bragason,
Pétur Jóhann Sigfússon og Jörund-
ur Ragnarsson, fylgi fast á eftir.
Ragnhildur Magnúsdóttir og
Þorbjörg Marinósdóttir, sundlaug-
arverðir Djúpu laugarinnar, sem
hefst á Skjá einum í febrúar, leita
nú logandi ljósi að einhleypu fólki
í ástarleit. Eins og áður verður
þátturinn sýndur á föstudagskvöld-
um, en ógerningur hefur reynst
að veiða upp úr stúlkunum hvaða
nýjungar verður boðið upp á í
þáttunum. Skráning hefst
um helgina á vefsíðu
Skjásins, en búast má
við að örvæntingarfullar
mæður eigi eftir að skrá
einhleypa syni sína og
dætur unnvörpum í
von um kinnarjóð
barnabörn. - drg/afb
FRÉTTIR AF FÓLKI
Fyrirtækið Pegasus hefur tryggt
sér kvikmyndaréttinn að Garðin-
um, dularfullri draugasögu Gerð-
ar Kristnýjar sem kom út hjá Máli
og menningu árið 2008. Leikstjóri
verður Reynir Lyngdal og hefst
vinnan við handritið innan tíðar.
„Mér finnst þetta ofboðslega
skemmtilegt, sér í lagi að Reyn-
ir Lyngdal eigi eftir að leikstýra
henni. Ég hef þekkt hann lengi og
mér finnst hann skemmtilegur,“
segir Gerður Kristný.
Bókin, sem er ætluð lesendum
frá 11 ára aldri, var valin besta
barnabók ársins 2008 af bóksöl-
um og er tilnefnd til Vestnorrænu
barna- og unglingabókaverðlaun-
anna árið 2010. Aðspurð segist
Gerður hafa séð fyrir sér að bókin
gæti hugsanlega hentað sem kvik-
mynd. „Hún gerist á myndrænum
og skemmtilegum stöðum eins og
Hólavallagarði, Fógetagarðinum,
gamla Vesturbænum og í Grjóta-
þorpi. Þannig að þetta ætti ekki að
vera svo flókið og gæti komið vel
út í kvikmynd.“
Sjálf vonast hún til að verða stat-
isti í myndinni. „Ég vona að ég fái
að vera draugur. Ég er viss um að
ég get litið út eins og gröftur upp
úr gröf. Ég setti þetta samt ekki í
smáa letrið,“ segir hún og hlær.
Gerður hefur þegar selt til
Hollywood kvikmyndaréttinn að
bók sinni Myndin af pabba sem
fjallar um ævi Thelmu Ásdísar-
dóttur. Ekki hefur verið ákveðið
hvenær hún verður framleidd. - fb
Garðurinn kvikmyndaður
DRAUGASAGA KVIKMYNDUÐ
Frá vinstri: Valgerður Benedikts-
dóttir hjá Réttindastofu Forlagsins,
Snorri Þórisson framleiðandi, Reynir
Lyngdal, Gerður Kristný og Sigþrúður
Gunnarsdóttir, útgáfustjóri barna- og
unglingabóka hjá Forlaginu.
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, rithöfundur og
leikskáld, verður á meðal þátttakenda í for-
keppni Eurovision-söngkeppninnar sem sýnd
verður í Sjónvarpinu annað kvöld. Óhætt er
að fullyrða að Þórdísi sé margt til lista lagt
því hún hefur að undanförnu staðið í ritdeilu
við hæstaréttardómarann Jón Steinar Gunn-
laugsson.
Þórdís Elva mun syngja bakraddir í lagi
Steinars Loga Nesheim, Every Word, ásamt
bróður sínum, Þórði Gunnari Þorvalds-
syni. „Á gamlárskvöld ákváðum við bróð-
ir minn að strengja áramótaheit saman sem
við mundum efna á þessu ári. Bróðir minn
rekur hljóðverið Stúdíó Ljónshjarta og við
ákváðum að þetta áramótaheit yrði tónlist-
artengt, hann var svo ekkert að tvínóna við
hlutina heldur hringir í mig og segir mér að
við séum að fara að syngja í Eurovision. Á
dauða mínum átti ég von, en ekki þessu, en
ég er kona orða minna og verð að standa við
þau,“ útskýrir Þórdís Elva sem segist hafa
sungið mikið á yngri árum en að söngurinn
hafi verið kominn neðarlega á forgangslist-
ann hjá henni.
Aðspurð segist Þórdís Elva hafa æft sig
hæfilega fyrir keppnina og hefur spilað lagið
endurtekið í hverri brjóstagjöf, en stutt er
síðan hún lá sængurleguna.
Þórdís Elva segir vissulega skrítið að fara
úr ritdeilu um háalvarleg mál yfir í Eurov-
ision. „Mér finnst ég svolítið vera að leika
tveimur skjöldum með því að fara úr ritdeil-
unni yfir í froðuna, en ég ætla bara að vera
samkvæm sjálfri mér. Ég get tekið lífinu
hæfilega alvarlega og á sama tíma staðið á
mínu gagnvart mönnum í ráðastöðum. Ég
skora eiginlega á Jón Steinar hér með að taka
sjálfur þátt í Eurovision, hann getur ekki
verið minni maður en ég.“ - sm
Úr ritdeilu yfir í froðuna
KONA ORÐA SINNA Þórdís Elva Bachmann mun
syngja bakrödd í lagi Steinars Loga Nesheim í for-
keppni Eurovision í Sjónvarpinu á laugardag.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN