Fréttablaðið - 23.01.2010, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 23.01.2010, Blaðsíða 31
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 MARÍA MAGNÚSDÓTTIR söngkona heldur útgáfutón- leika í dag á Batteríinu, Hafnarstræti. Plata hennar, Not Your Housewife, kom út í september en beðið var með útgáfutón- leika þar til núna. Húsið verður opnað klukkan 20.30 og um upphitun sjá 3 raddir og Beatur. „Ég ætla nú í bæinn að vera við skírn litla frænda míns. Hann á heima í Noregi og er að fara þang- að aftur eftir jólafrí. Mér hlotnað- ist sá heiður að heilsa upp á hann þegar hann var alveg nýr. Hann er rosa flottur og hvað hann á að heita kemur í ljós í dag klukk- an fjögur. En ég þarf að hendast strax til baka og vinna. Helgin fer sem sagt mest í að hanga í tölv- unni þannig að dagskráin hefur nú stundum verið meira spennandi,“ segir Ingibjörg glaðlega þegar hún er innt eftir áformum sínum um helgina. Ingibjörg er verkefnisstjóri umhverfis- og ferðamála og starf- ar bæði á vegum háskólasetursins á Hornafirði og Kirkjubæjarstofu. Vinnustaðurinn er í vinalegu húsi á Klaustri sem var hótel áratug- um saman. En hvað er hún að gera svona mikilvægt í tölvunni að helg- inni sé fórnað? „Ég er ásamt fleir- um að vinna að verndaráætlun fyrir Vatnajökulsþjóðgarð. Þetta er heilmikið plagg og fjallar bæði um verndun og nýtingu. Þar er verið að reyna að feta þessa línu að nýta náttúruna án þess að ganga á auðlindina. Ég er í hópi fólks frá háskólasetrinu á Hornafirði að vinna áætlunina fyrir suður- og vestursvæðið og við eigum að skila af okkur til svæðisráðs núna um mánaðamótin þannig að það má ekkert slaka á. Þetta liggur á manni eins og mara en samt reyn- ir maður að halda brosinu enda er þetta voða spennandi og skemmti- leg vinna. Bara törn.“ Annars segir Ingibjörg alltaf heilmikið á seyði á Klaustri. „Ég veit að fólk er alveg á fullu að græja þorrablótið sem á að halda um aðra helgi. Þú hefðir frek- ar átt að hringja í næstu viku og spyrja um fyrirætlanir mínar því þá hefði verið meira stuð í kort- unum!“ Þar sem Ingibjörg er þekkt úti- vistarkona er hún spurð hvort hún ætli ekkert að anda að sér fersku lofti um þessa helgi. „Jú, til að halda rænu verð ég að fara í göngutúr upp í heiði eða út að hjóla. En það verður ekkert meira en það. Nema ég skelli mér í laug- ina í dag. Hér er rosa fín sundlaug sem er opin allt árið nema á sunnu- dögum yfir veturinn.“ gun@frettabladid.is Þú hefðir frekar átt að hringja í næstu viku Hvað eiga skírn lítils drengs og skipulag í Vatnajökulsþjóðgarði sameiginlegt? Jú, Ingibjörg Eiríksdóttir á Kirkjubæjarklaustri, ætlar að sinna þessu hvortveggja nú um helgina. Skoðum það nánar. „Ég er ásamt fleirum að vinna að verndaráætlun fyrir Vatnajökulsþjóðgarð. Hún er heilmikið plagg sem fjallar bæði um verndun og nýtingu,“ segir Ingibjörg og stillir sér upp utan við Kirkjubæjarstofu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Lín Design, gamla sjónvarpshúsið • Laugavegi 176 • Sími 533 2220 • www.lindesign.is ÚTSÖLULOK SÍÐASTI DAGUR ÚTSÖLU Í DAG 10% auka afsláttur af allri útsöluvöru Allt að 60% afsláttur af völdum vörum Opið laugardag 11–16 LAGERSALA Grensásvegi 8 - 108 Reykjavík Allar upplýsingar í síma 517-2040 Mikið úrval af ódýrum skóm á alla fjölskylduna Opið virka daga 12:00 - 18:00 - laugardaga 12:00 - 16:00 Verð frá kr. 6.500 ÖRYGGISSKÓR ÚTSÖLULOK Í DAG OPIÐ Í DAG FRÁ KL. 11–17 ALLAR PEYSUR 2 FYRIR 1 ALLAR BUXUR 2 FYRIR 1 BOLIR 2 FYRIR 1 VESTI 2 FYRIR 1 SKYRTUR 2 FYRIR 1 JAKKAR 2 FYRIR 1 KJÓLAR 2 FYRIR 1 SKÓR 2 FYRIR 1 MIKIÐ ÚRVAL AF FATNAÐI FRÁ KR. 1000.- Bonito ehf. Friendtex, Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.