Fréttablaðið - 23.01.2010, Blaðsíða 80
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000
Mest lesið
VISIR.IS
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR AF FÓLKI
Tengsl íhaldsmanna
Ákveðið hefur verið að reisa styttu
af Tómasi Guðmundssyni skáldi í
Reykjavík. Tómas var borgaralegur
íhaldsmaður og áhrifamikill í gegnum
skáldskap sinn. Annar áhrifamikill
borgaralegur íhaldsmaður er Styrmir
Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri
Morgunblaðsins. Það fer því
vel á því að bróðurdóttir
Styrmis, Halla Gunnars-
dóttir, dóttir sendiherr-
ans fyrrverandi, Gunnars
Gunnarssonar, skuli hafa
borið sigur úr býtum
í samkeppni
um hönnun
styttunnar.
Jogastudio.org
Fréttablaðið er með 143% meiri
lestur en Morgunblaðið.
Meðallestur á tölublað,
höfuðborgar svæðið, 18 – 49 ára.
Könnun Capacent í ágúst 2009 – október 2009.
Allt sem þú þarft...
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ
71,4%
29,3%
Frekja gróðapunganna
„Misheppnaðir gróðapungar reyna
að smeygja sér undir regnhlíf skjald-
borgar um heimilin í landinu,“ segir
Jónas Kristjánsson á vef sínum. „Ekki
sé bara slegin skjaldborg um þá,
sem offjárfestu í 30 milljón króna
íbúð og 3 milljón króna bíl. Heldur
líka um þá, sem offjárfestu í 70
milljón króna einbýlishúsi og 7 millj-
ón króna jeppa.“ Hann
átelur Kaffistofuna á
vefmiðlinum Press-
unni fyrir að taka
undir slík sjónarmið.
„Gróðapungarnir
eru lagnir við að fela
frekju sína undir hatti
almennings.“
1 Nafn mannsins sem lést í
rörasprengjuslysinu
2 Fannst látinn í Hvalfirðinum
3 Fimmtán sagt upp á
fréttastofu RÚV
4 Útsendingar svæðisstöðva
RÚV lagðar niður
5 Útvarpsstjóri skilar bílnum
Koss dauðans?
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra hefur líklega hugsað sér gott
til glóðarinnar þegar hún skrifaði
ræðuna sem hún hélt á Selfossi
í fyrradag um sóknaráætlun. Það
lá svo beint við að vitna í hand-
boltalandsliðið, vagninn var farinn
af stað, þjóðin farin að fagna sigrum
– sem reyndar átti eftir að vinna
– og hér var rætt um sókn. Og hvar
er sókn líka? Jú, einmitt. Í handbolta.
En það var eins og við manninn
mælt og menn hefðu getað sagt
sér það fyrr; það fer aldrei vel þegar
stjórnmálamenn fara að káfa utan
í afreksmenn í íþróttum. Bæði
verður úr hallærislegur orðavaðall
úr íþróttamáli og eins er það tryggur
koss dauðans á gengi sportistanna.